Vikan - 29.06.1978, Síða 6
¥
PÖSTIKIW
Sjúkraþjálfun
og fleira
Sæll og blessaður heillakarl!
Ég vona að þú sért við hesta-
heilsu og getir svarað nokkrum
spurningum fyrir mig. Þær
snerta ástarmál mín ekki
nokkuð, því ég ræð sjálf fram
úr þeim.
Vindum okkur að efninu.
Ég fer í I. bekk framhaldsdeild
næsta vetur (svokallaðan 5.
bekk). Mig langar að vita. hvaö
ég þarf að vera mörg ár í við-
bót í skóla, ef ég fer í sjúkra-
þjálfunarnám. I hvaða skóla er
þetta nám stundað? Þarf ekki
að Ijúka námi erlendis ?
Svo þarj ég að koma með dá-
lítið handa þér til að leiðrétta.
Þú varst spurður í einni Viku í
vetur (ég man ekki í hvaöa
tölublaði) hvað margar mann-
eskjur á landinu hétu
..BESSA ". Þú svaraðir, að eng-
in héti þessu nafni hér á landi,
en þar geröir þú laglega vit-
leysu, því að minnsta kosti ein
manneskja hérlendis heitir
þetta. Ég þekki stelpu, sem
heitir Bessa.
Jæja. ég hef ekki hugsað mér
að ganga af þér dauðum með
þessu bréji. sem ejlaust er alveg
Bjóðum þéf mhið úrval af ótrúlega falegum
kristalsvanjm á sérstaklega góðu verði.
lllil.-
i.Kisriii
Laugaveg 15 íí 14320
yftrþyrmandi leiðinlegt. En þótt
það sé leiðinlegt, þá er ég
viss um, að þú birtir það. Ég
man ennþá, hvað ég er gömul,
og svo trúi ég ekki á stjörnu-
merki (allavega alveg mátulega
lítið). Ég vona, að þú sért enn
við hestaheilsu, þegar þú hefur
lokið við að lesa bréftð. Ég
hef oft verið að velta þvífvrir
mér, hvort Helga, uppáhaldið
þitt, en óvinkona allra hinna
(eða flestra hinna), fái aldrei
kveisu. Hún er ábyggilega mjög
hraust, ef hún hefur þolað allt
þetta bréjaát áfldlalaus,. En
li\ að um það. ég bið að heilsa
þér og öllum iiinum starfs-
mönnum Vikunnar og vona,
að Vikan verði áfram gott
blað, eins og hingað til.
Vertusœll. 1325—1004
Sjúkraþjálfunarnám er stundað í
Háskóla íslands, og til að geta
hafið það nám, þarftu að hafa
lokið stúdentsprófi. Ekki mun
vera krafist sérstakrar lágmarks-
einkunnar, en allar umsóknir
eru vegnar og metnar, og aðeins
er hægt að taka inn 17 nem-
endur árlega. Þessu námi áttu að
geta lokið hérlendis, og áætlaður
námstími mun vera um fjögur
ár. Allar nánari upplýsingar um
þetta geturðu fengið á skrifstofu
Háskóla íslands, sími 25088.
Hvað viðvíkur Bessumálinu, þá
hefur Pósturinn þegar svarað
leiðréttingu vegna þess, þ.e. að
allar „Bessur” á landinu, heita
öðru nafni á undan. Við Helga
erum bæði við hestaheilsu, og
hún versnaði ekkert eftir lestur
bréfs þíns. Helga hefur aldrei
fengið kveisu, óundirrituð bréf
og ókurteisleg eru hennar upp-
áhaldsfæða, og fátt fer betur í
„maga” hennar. Kveðju þinni til
starfsmanna Vikunnar er hér
með komið á framfari, — með
þakklæti! Vertu sæl.
Hvar búa
Indíánar?
Kæri Póstur!
Ég þakka allt gamalt og gott.
Mig langar að spyrja þig
þriggja spurninga, og ég vona,
að þú getir svarað þeimfyrir
mig. (Þær eru svolítið óvenju-
legar). Eru til ekta Indíánar?
Og hvar á hnettinum eiga þeir
Hjónaband í upplausn
Kæri Póstur.
Ég leita til þín í vandræðum mínum, til að reyna að flnna
besta svarið. Ég er með kornabarn og heimili, en ég er svo
löt, að það fer allur dagurinn í það að hugsa bara um
barnið. En það er ekki nógu gott, því húsbóndinn er alveg
orðinn snar og hótar því alltaf að reka mig á dyr, en gefur
mér alltaf séns, en hann er nú á þrotum. En ég skil þetta
bara ekki. Ég vinn ’ekki úti, og ég þoli ekki rusl, en samt er
allt á öðrum endanum, enginn matur, nema annað slagið,
rusl út um alla íbúð. Svo skammast ég mín svo, þegar koma
gestir, en ég hugsa alltaf vel um barnið, það er það besta.
Hvað á til bragðs að taka? Kæri vinur, vona eftir besta
svari. Hvernigjára tvíburar (kvk.) og naut (kk) saman?
Með fyrirfram þakklæti.
H.H.
Já, ekki er nú útlitið gott. Ég gæti best trúað, að eitthvað sé að
þér líkamlega og þú hafir hreinlega ekki þrek til þess að gera
fleira en að hugsa vel um barnið. Hjálpar eiginmaðurinn þér
ekkert? Hann verður að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því,
að það er líka vinna að annast nýfætt barn, svo það er skylda
hans að hjálpa þér við heimilisstörfin, þegar hann kemur úr
vinnu. Ég er ekki svo viss um, að þetta sé eingöngu leti að þér.
Þú ættir að leita læknis, ef þér finnst þú ekki hafa meiri þrótt
en þetta. T víburastelpa og nautsstrákur eiga mjög vel saman.
6 VIKAN26. TBL