Vikan - 29.06.1978, Side 35
Stúlkurnar, sem tóku þátt í keppn-
inni, komu fram i baðfötum, og
ekki var að sjó að Halldóra Björk
vœri neitt feimin við að koma fram
svona „fáklædd" enda vön
tiskusýningarstúlka.
Hér sóst Silja Allans fró Akranesi
óska Halldóru Björk til hamingju
með sigurínn. Fyrir aftan stendur
Anna Björk Eðvarðs, Ungfrú
Island 1977.
Ég hef áhuga á að fara út í það nám aftur
seinna, en í dag er ég alltof óþolinmóð til að
setjast aftur á skólabekk. Ég ætla semsagt
að bíða með allt frekara nám, þar til síðar.
Nú sem stendur er ég að vinna hjá Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar, en þar hef
ég verið með annan fótinn síðan 1973, en
ég vann einnig hjá Morgunblaðinu í auglýs-
ingamóttöku.
— Svo ertu sýningarstúlka hjá Karon-
samtökunum.
— Já, þar hef ég verið síðan 1975. Mér
líkar óskaplega vel við það starf, ég vinn
með skemmtilegu fólki, og þetta er mjög
tilbreytingaríkt. Við ferðumst mikið, og
það á vel við mig, enda voru það fyrst og
fremst ferðalögin, sem freistuðu min í sam-
bandi við keppnina.
— Hefurðu áhuga á að vinna við fyrir-
saetustörf?
— Já, það hef ég, enda fer ég í keppnina
„Miss Scandinavia” með það fyrir augum
að komast eins langt og ég get og notfæra
mér þá möguleika, sem mér kunna að bjóð-
ast, út í ystu æsar. Þessu starfi fylgja alltaf
ferðalög, og ef allt gengur ekki eins og í
sögu, þá er jú ísland alltaf á sínum stað, og
heim get ég alltaf komið aftur.
— Nú varstu kjörin á kosningadaginn
sjálfan. Mundirðu eftir að kjósa, þótt þú
værir í kjöri sjálf?
— Já, ég mundi eftir þvi. Ég var á Hótel
Sögu á æfingu, pantaði þar kosningabíl, lét
keyra mig upp í Breiðholt, kaus og fór síðan
aftur niður á Sögu og hélt áfram við und-
irbúninginn!!
FINNST GAMAN AÐ
PÓLITÍSKUM
UMRÆÐUM
— Ertu pólitísk?
— Já, það má segja það! Mér finnst allt-
af gaman að pólitískum umræðum, — og
umræðum yfirleitt — þar sem fólk er ekki
sammála, ef fólk einblinir bara ekki of mik-
ið á eigin skoðanir og getur ekki tekið tillit
til skoðana annarra. Það væri lítið gaman
að ræða við fólk, ef allir hefðu sömu skoð-
anir á hlutunum! Ég virði persónulega allar
skoðanir fólks og kem fram við aðra, eins
og ég vil, að komið sé fram við mig.
— Hvað gerirðu í tómstundum?
— Allt milli himins og jarðar! Ég heim-
sæki vini mína og flækist um eins og ég get.
Að vísu er ég bíllaus, en mér finnst óskap-
lega gaman að fara út að keyra, þegar mér
er boðið! Svo fer ég vikulega á fundi hjá
Karon, og einnig er ég í Félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Breiðholti, og þar sæki ég
einnig fundi, þótt fundarmæting mín megi
nú víst teljast fremur léleg vegna anna. Nú,
svo á ég sæti í stjórn Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. Ég sagði Magnúsi L. Sveins-
syni strax, að ég hefði engan tíma í þetta,
en ég hef mikinn áhuga á að fylgjast með
og finnst eindregið, að það þurfi að kanna
betur launakjör fólks. Ég vona bara, að ég
læri eitthvað af þvi að vera í stjórninni.
— Nú segistu vera í Félagi ungra sjálf-
stæðismanna. Skyggði þá ekki fall sjálf-
stæðismanna í Reykjavík á þinn eigin sig-
ur?
— Ég er óhress yfir fallinu, ekki get ég
neitað því, en ég er a.m.k. ekki enn farin að
falla í þunglyndi út af því! Þetta er búið og
gert, og stundum getur breyting orðið til
bóta. Það verður bara að bíða og sjá! Ef til
vill hafa þessi úrslit jákvæð áhrif á alþingis-
kosningarnar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
— Hver eru helstu áhugamál þín?
— Tónlist, söngur, ferðalög — og svo
finnst mér yndislegt að dunda við blóm.
— Ertusmeyk við þær kröfur, semgerð-
ar eru til þín sem Fegurðardrottningar ís-
lands?
— Nei, alls ekki. Ég veit, hvað þessu
fylgir, og reyni að koma fram samkvæmt
því.
— Talar þú þessi fjögur — fimm tungu
mál, sem talin eru æskileg?
— Nei, það geri ég nú ekki. Ég tala
ensku og dönsku og hef lært þýsku og ætla
mér að betrumbæta þá kunnáttu. Ennfrem-
ur hef ég mikinn áhuga á að læra frönsku,
en yfirleitt er töluð enska í þessum keppn-
um, svo ég þarf ekkert að óttast.
FASTAGESTUR Á
SLYSAVARÐSTOFU
— Er eitthvað, sem fegursta stúlka ís-
lands 1978 eróánægð með í fari sínu?
— Ég er óskaplegur hrakfallabálkur!!
Ég er fastagestur á Slysavarðstofunni; fer
þangað ekki sjaldnar en einu sinni á ári!
Það er staðreynd, að ef ég ætla að ganga
virðulega um Austurstrætið þá misstíg ég
mig og dett, eða eitthvað þess háttar!
— Ertu ánægð með lífið í dag?
— Já, ég er mjög hamingjusöm mann-
eskja. Það er til dæmis ekki til vont veður á
Islandi í mínum augum. Ég fagna hausti
jafnt sem vori. Veðrið skiptir mig engu
máli, það er fólkið í kringum mig, sem ég
læt mig varða um. Ég þakka og lofa hvern
dag, sem ég lifi. Mér er alveg sama, hvernig
fólk talar um mig; ég á minn vinahóp, og
það fólk þekkir mig, og veit hvernig ég er.
Meðan ég á mína tryggu vini er ég ham-
ingjusöm. akm.
26. TBL.VIKAN 35