Vikan


Vikan - 29.06.1978, Síða 32

Vikan - 29.06.1978, Síða 32
1958 1978 „Meðanégá mína tryggu vini, er ég hamingjusöm ” Sunnudaguririn 28. maí 1978 verður víst ógleymanlegur dagur fyrir marga. Þann daggekk þjóðin til sögulegrar atkvæða- greiðs/u íborgar- og sveitastjórnarkosningum. En þeir voru fjöl- margir, sem greiddu atkvæði tvisvar þennan dag. Þeir, sem það gerðu, voru einnig að kjósa fulltrúa þjóðar okkar, fegurstu stúlku íslands, sem mun keppa fyrir Islands hönd í keppninni ,,Miss Scandinavia” í Finnlandi á þessu ári og í keppninni ,,Miss Universe” á næsta ári, en sú keppni er þýðingarmesta fegurðarsamkeppni veraldar. Níu stúlkur kepptu um titilinn „Ungfrú ísland 1978”, en að keppninni stóð Ferða- skrifstofan Sunna. Sjö rnanna dómnefnd og troðfullur salur af gestum á Sunnukvöldi völdu fulltrúa þjóðarinnar, og fyrir valinu varð Halldóra Björk Jónsdóttir, en hún var einnig valin „Ungfrú Reykjavík 1978”. Halldóra Björk er fædd 16.12.1956 í Reykjavík, dóttir Bryndísar Jónsdóttur og Jóns Björnssonar. Hálfs árs flutti hún til Vestmannaeyja, þar sem hún bjó til níu ára aldurs. — Sem stendur vinnur hún hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, en einnig er hún starfandi módel hjá Karon- samtökunum, svo andlit hennar er þjóðinni sennilega vel kunnugt. Á síðastliðnu ári (nánar tiltekið 7.7.77 kl. 7!) keypti hún sér íbúð í Breiðholti, ásamt systur sinni, Þor- gerði, sent einnig er vinsæl Ijósmyndafyrir- sæta (hefur m.a. verið mikið á myndum fyrir Torgið) svo hún hefur komið ár sinni vel fyrir borð, þótt ung sé. Halldóra Björk er óneitanlega falleg stúlka, en það er ekki það eina, sem hún hefur til að bera. Hún hefur fallega og fág- aða framkomu, er einlæg, en afskaplega glaðvær og hláturmild. Hún hefur ákveðn- ar skoðanir á öllum hlutum og á auðvelt nteð að tjá sig. Það er því onætt að full- yrða, að Sunnugestir hafa valið rétt, er þeir greiddu Halldóru Björk atkvæði sitt sem Fegurðardrottningu íslands 1978. FYRST OGFREMST ÆVINTÝRAMENNSKA — Hvenær var valið í keppnina og hvernig? — Það var valið í þessa keppni rétt fyrir áramót. Farið var eftir ábendingum, og einnig valdi Heiðar Jónsson sjálfur þær stúlkur, sem honum leist vel á. Við vorum sjö stúlkurnar úr Reykjavík, sem talað var vel og rækilega við. Síðan komum við fram á þremur Sunnukvöldum. Þar greiddu gest- ir 1 salnum atkvæði, og kosin var stúlka kvöldsins. Á lokakvöldinu voru atkvæðin talin, og þær þrjár, sem flest atkvæði hlutu, fóru svo í úrslitakeppnina. — Hvernig stóð á því, að þú fórst í þessa keppni? — Ævintýramennska fyrst og fremst. Ég hef áhuga á fyrirsætustörfum og fannst þetta gott stökkbretti fyrir atvinnumögu- leika erlendis. — Hvert er álit þitt á fegurðarsam- keppnum almennt? — Mér finnst þessar keppnir góð land- kynning, en þó verð ég að segja, að mér finnst óþarfa prjál í sambandi við þetta er- lendis. Það mætti vel láta peningana, sem eytt er í þessar keppnir, renna í eitthvað nauðsynlegra, en þvi geta þær stúlkur, sem þátt taka 1 fegurðarsamkeppnum, víst lítið 32 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.