Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 31
— Nú þegar er Hallargarðurinn
(Slottsparken) griðastaður (jessa unga
fólks, og við verðum að gæta okkar i
umgengni við unga fólkið þar. Áður gát-
um við farið einn og einn inn í hópana
og náð tali af þeim, sem við vildum vita
nánari deili á, en nú verðum við að vera
þrir, fjórir saman. ef við viljum ræða við
einhvern í hópnum. Samt getum við átt
á hættu að lenda í stympingum — þau
lita á nærveru okkar sem ögrun, og þvi
verðum við að fara að öllu með itrustu
gát.
— Það er íullyrt, að hópurinn i Hall-
argarðinum reyki einkum hass, en harða
kjarnann sé einkum að finna á Egertorg-
inu. Eruð þið á sama máli?
— í stórum dráttum. já.
— Þekkið þið viðskiptavinina?
— Við gerðum það. en það hafa bæst
margir nýir i hópinn og margir mjög
ungir, þetta 13lil 14 ára.
— Er auðvelt að komast yfir eiturlyf i
Osló í dag?
— Það er fullyrt i okkar eyru. að
bæði morfin og heróin sé nú ódýrara hér
en i Kaupmannahöfn.
— Hvert er verðið á morfini?
— Um 300 krónur (nærri 15 þús. isl.l
fyrir skammtinn.
— Hvaðerskammturstór?
— Við reiknum með. að 20 skammt-
ar fáist úr einu grammi af morfini. og
morfinisti þarf að kaupa fyrir 1500—
2000 krónur á sólarhring (70—90 þús.
isl.l.
— Hvernig fá þeir þessa peninga?
— Margir ná þessu með því að selja
öðrum eiturlyf. Margir komast yfir pen-
inga með innbrotum og vændi. Flestar
stúlknanna i harða kjarnanum bjóða
bliðu sina úti á götunum.
— Stundantargirpiltarvændi?
— Ekki svo margir úti á götum. en
nokkrir reyna þá leið á veitingastöðum
og i klúbbunum.
— Erlendis frá berast þær fréttir. að
þefjun af kókaini sé nú helst i tisku með
al langt leiddraeiturlyfjanevtenda . . .
— Við höfum ekki orðið mikið varir
við það hér. en dálitið þó. Mest er um
pillur úr morfinefni. sem eru seldar á
250—300 krónur stykkið. og þeir, sem
lifa á þessum pillum. þurfa fimrn til átta
stykki á sólarhring.
VIÐRAMMAN
REIPAÐDRAGA
— Það ætti að vera Ijóst. að það
hljóta að vera fleiri i eiturlyfjasmygli en
götufólkið hér. sem slær saman i ferð til
Kaupmannahafnar.
— Það er rétt. það eru einkum þeir
stóru. sem sjá um. að nóg sé til hér á
markaðinum.
— Og fá þeir að starfa frjálst og
óhindrað?
— Nei. við og tollverðirnir reynum
allt, sem i okkar valdi stendur. til að hafa
upp á þeim. sem standa á bak við þenn-
an óþverra. En við eigum ekki svo auð-
veldan leik með okkar löngu strönd og
mörgu hafnir. Yfir landamærin frá Sví-
þjóð koma daglega 20—30 þúsund bíl-
ar. Við getum ekki rannsakað hvern bil,
það segir sig sjálft.
— Hvaðan koma eiturlyfin?
— Við ætlum, að mestur hlutinn af
hassinu komi frá Líbanon. en harðari
efni komi eins og áður frá Austurlönd-
um gegnum borgir í Vestur-Þýskalandi
og Rotterdam eða Amsterdam.
— Hafið þið oft hitt fyrir fólk sem
reynir að rækta sjálft eiturlyf?
— Á viku fresti eða svo yfirheyrum
við fólk, sem hefur sett Cannabisplöntur
i potta. En i flestum tilfellum eru þessar
plöntur svo veikburða. ef svo má að orði
komast. að verkan þeirra er litil sem eng-
in.
Osló er semsagt ekki lengur stærsta
sveitaþorp i htimi.
UmhverfIs jöröina
á30dögum
meó einkaþjón ef þú óskar
Og að sjálfsögðu býður þú með þér gesti á kostnað
Dagblaðsins.Slík eru sigurlaunin í áskrifendaleiknum núna.
Gistar verða nokkrar helstu stórborgir heims, þar sem
dvalið verður á lúxushótelum og má þar nefna Royal
Cliff Hotel í Bangkok, sem taliðer eit't glæsilegasta hótel
jarðarinnar. Ferðaskrifstofan Sunna sér um ferðina.
Því fyrr sem þú gerist áskrifandi og þar með þátttakandi
í áskrifendaleiknum, því fleiri möguleika hefur þú til
að hreppa hnossið.
Njóttu þeirrar eftirvæntingar og spennu sem fylgir því
að vera með í áskrifendaleiknum okkar.
Áskrifendasími 27022
26. TBL. VIKAN 31