Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 48
Með vörtu á hendinni
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir
mig draum, sem mig dreymdi fyrir
stuttu. Ég var stödd í skóla, sem er
nálægt heimili mínu, og þarna voru
margir krakkar. Ég stóð upp við lágan
vegg og var að horfa á fólkið. Þá kom
til mín strákur, sem ég hef verið hrifin
af lengi. Hann stóð rétt hjá mér, og
við horfðumst í augu, bæði mjög ást-
fangin. Svo færði hann sig alveg til
mín og tók utan um mig, en fyrst tók
hann í höndina á mér og benti á
vörtu, sem ég var með, og brosti. En
við stóðum svona saman, og þá endaði
draumurinn. Ég tek það fram, að ég
hef aldrei verið með þessum strák, og
núna er hann með annarri stelpu.
Hvað heldurðu, að þetta tákni? Með
fyrírfram þökk.
Einhverjar minniháttar hindranir verða
á vegi þínum við framkvæmdir áætlana
þinna, en þær verða þó ekki til að
skemma neitt fyrir þér. Þú færð góðar
fréttir og hamingjan bíður þín. Þú átt
marga velviljaða vini, sem styðja þig í
hvívetna, en vartan er merki þess, að þú
verðir að vera varkár í athöfnum þínum
fyrfst um sinn. Þér mun fylgja gæfa og
gengi i ástarmálum.
Klippti í sundur
lakið
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig að ráða
eftirfarandi drauma fyrir mig. Fyrri
drauminn dreymdi mig fyrir ca.
tveimur og hálfum mánuði. Mig
dreymdi, að ég væri komin í hús, þar
sem strákur, sem ég er búin að vera
með í þrjú ár öðru hverju, á heima.
Gift vinkona mín var með mér. Þegar
við komum inn í húsið blasti við
okkur tvíbreitt rúm, þar sem strák-
urinn svaf. Fannst mér, að önnur vin-
kona mín hefði sofið hjá honum, en
hún var ekki í rúminu. Sá ég svarta
skó á gólfinu við rúmið, sem mér
fannst hún eiga. Þá fórum við inn í
annað herbergi, þar sem vinkona mín
lá sofandi. Síðan fórum við inn í hitt
herbergið aftur. Þar tók ég skæri og
fór að klippa í sundur lakið, sem strák-
urinn lá sofandi á. (Lakið var hvítt).
Fannst mér lakið hafa verið saumað
saman úr hveitipokum, eins og gert
Mig
dreymdi
° \í V
var áður fyrr. Fannst mér ég klippa
eftir saumunum, sem voru í lakinu.
Tók ég lakið undan honum og hélt
áfram að klippa það. Þegar ég hætti að
klippa, hékk það saman á smá parti,
og kuðlaði ég því þá saman og henti
því í rúmið til hans. Fórum við að því
búnu fram að dyrunum, og var ég
mjög sár. Þegar ég var að fara út um
útidyrnar, leit ég við, og vaknaði hann
þá og brosti til mín. Sagði ég þá við
hann, að hann væri ræfdl (eða eitt-
hvað svipað), og fór út og skellti á eftir
mér hurðinni. Hinn drauminn dreymdi
mig ca. tveimur mánuðum seinna. Mér
fannst ég fá nafnlaust hótunarbréf. í
því stóð, að ég yrði skorin á háls, ef ég
gerði ekki það sem bréfritari skipaði
mér að gera, þegar hann myndi koma.
Nafnið mitt og heimilisfang var skrifað
í bréfið. Ég varð mjög hrædd. Þegar
maðurinn birtist, fannst mér hann vera
róni, því hann var í frakka og með
hatt, og skipaði hann mér að láta sig
hafa egg. Ég átti sex eða sjö egg í 10
eggja pakka. Fannst mér það ekki nóg
og sendi strákinn minn út í búð til að
kaupa 6 eggja pakka (6 egg) í viðbót.
Lét ég þá báða kassana með eggjunum
I hvítan plastpoka og lét manninn hafa
hann. Fór maðurinn þá. Þannig endaði
sá draumur. Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
G.K.Í.
Fyrri draumurinn er nokkurs konar við-
vörun til þín. Þú virðist hafa of mikið
sjálfsöryggi og gætir lent í vandræðum
þess vegna. Þú átt hættulegan keppi-
naut að, sem þú getur þó auðveldlega
sigrað, ef þú bregst skjótt við. Þú lendir í
einhverjum vandræðum í viðskiptum
eða í starfi. Þú mátt eiga von á, að vin-
áttusamband þitt við einhvern slitni, en
þó tel ég ekki líklegt, að þar sé um að
ræða piltinn, því seinni hluti draumsins
veit allur á gott. Þú færð óvæntar og
góðar fréttir, og einhver viðburður færir
þér mikla hamingju. Reiðin, sem kom i
ljós hjá þér í lok draumsins, merkir góð-
an árangur í ástarsambandi, og kemur
pilturinn þar við sögu. Síðari draumur--
inn er þér fyrir erfiðri baráttu, sem þú
þarft að heyja, og þú verður að gæta að
þér i peningamálum. Endurnýjun á vin-
áttusambandi verður þér til mikillar
gleði, og gæfan mun fylgja þér.
Brotinn
endajaxl
Kæri draumráðandi
Mig er búið að dreyma svipaðan
draum tvisvar, en hann var þannig, að
mér fannst sem endajax! í neðri góm
dytti úr eða molnaði, en ég man
ekkert samhengi við það, nema að í
seinna skiptið fannst mér ég hugsa:
„Þetta er allt í lagi, fyrst þetta er
endajaxl, en það er verra, að ég þarf
að láta draga úr mér rótina ”. Með fyr-
irfram þakklæti fyrir birtinguna.
Dísa.
í þessu tilviki boðar tannmissirinn þér
mjög erfiða tíma i fjármálum og hugsun
þín í sambandi við tannrótina er viðvör-
un til þín að lána ekki peninga, þar sem
þú munt ekki fá þá endurgreidda.
Að eignast
fimmbura
Kæri draumráðandi.
Geturðu sagt mér, hvað táknar að
dreyma sig eiga fimmbura, allt dökk-
hærða og fallega stráka. Mér fannst ég
ógurlega hamingjusöm, og ég var
hreinlega grútspæld, þegar ég vaknaði
og engir fimmburar sjáanlegir.
KÁ.
Hversu óyfirstíganleg, sem vandamál
þín kunna að líta út, mun allt fara vel,
þú munt verða hamingjusöm, og gæfan
blasir við þér í öllu, sem þú tekur þér
fyrir hendur. Þetta er eitt besta tákn,
sem komið getur í draumi, og þá ekki
síður, þegar um drengi er að ræða.
48 VIKAN 26. TBL.