Vikan - 29.06.1978, Qupperneq 7
heima. Hvað lestu úr skrift-
inni?
4.5.12.
Já, það eru til ekta Indíánar i
heiminum. Helst er að finna
óblandaða Indiána á Amazon
svæðinu í Suður-Ameríku, nán-
ar tiltekið norðanvert í Brasilíu,
en einnig er nokkuð af þeim í
Venezuela og í Perú. Þeir búa í
frumskógum og eru mjög ein-
angraðir og frumstæðir, og því
hafa þeir haldið stofninum
óblönduðum. Einnig er hægt að
finna Indíána í Mið-Ameríku,
en þá hafa þeir yfirleitt blandast
hvítum mönnum. Skriftin ber
með sér, að þú sért fremur fljót-
fær og óþolinmóð.
Viljið þið
kaupa söguna
mína
Kæri Póstur.
Viltu segja mér nokkuð. sem
ég er í vanda með. Ég er að
skrifa sögu og er komin
nokkuð langt með hana. Ég er
11 ára. Munduð þið vilja taka
söguna í blaðið, ef hún heppn-
ast vel hjá mér? Þetta verður
sennilega bara smásaga. Ég bið
þig að svara mér og ekki henda
þessu. Eru öll bréf birt í Póst-
inum, ef þau eru undirrituð?
Svo að síðustu: Hvað er happa-
tala, steinn, blóm, vikudagur
o.s.frv. fyrir þann, sem er
fæddur 11.4.? Hvað lestu úr
skriftinni? Vertu bless.
Rithöfundur.
Þú ættir að vélrita söguna upp,
ef þú ert ánægð með hana, og
senda hana ritstjóra Vikunnar,
Kristínu Halldórsdóttur. Ef
sagan telst ekki birtingarhæf,
færðu hana endursenda. Það
sakar að minnsta kosti ekki að
reyna! Flest öll bréf eru birt í
Póstinum, ef þau eru undirrituð,
en samt ekki öll. Sum eru svo
heimskuleg, að það tekur því
ekki að svara þeim!! Happatölur
þínar eru 2 og 9, happalitur er
rauður, happadagur fimmtu-
dagur, rós er blómið þitt, en um
steininn veit ég ekki. Skriftin er
alltof ómótuð til að hægt sé að
lesa úr henni eitthvað af viti, en
ber þó með sér, að þú sért frem-
ur óþolinmóð.
Láttu nú sjá,
að þú getir
svarað fleiru!!
Heill og sæll!
Fyrir nokkrum árum var mynd
í sjónvarpinu um arkitekt,
bandarísk-danskkan held ég. Nú
langar mig að vita, hvað hann
hét og bók, sem hann gaf út,
með leiðbeiningum handa fólki,
sem vildi búa sér til húsgögn
sjálft. Láttu nú sjá, að þú getir
svarað fleiru en hver passar við
hvern o.s.frv., því annars veit
ég ekki, hvern ég á að spyrja.
Bestu þakkir til ykkar á
Vikunni fyrir allt gamalt og
gott.
Kær kveðja. r. ,■
Ein forvitin.
Pósturinn var alveg ákveðinn að
sýna. að hann geti sko svarað
fleiru . . . en . . . það tókst ekki!
Þeir hjá sjónvarpinu mundu
ekki einu sinni eftir þessari
mynd og eyddu gífurlegum tíma
í að komast að einhverju fyrir
þig um þennan mann. en án
árangurs. Því miður.vinan, en
þú gætir reynt að spyrjast fyrir í
bókaverslunum, kannski er ein-
hver þar. sem man eftir þessari
bók.
Upplýsingar um
Shaun Cassidy
í síðustu viku var spurt um
Shaun Cassidy, og vissi Póstur-
inn heldur lítið um hann þá. Úr
þeim málum hefur nú ræst örlít-
ið, og fékk Pósturinn eftir-
farandi upplýsingar: Shaun
Cassidy er nú orðinn einn af
frægustu söngvurum Bandaríkj-
anna, en auk þess hefur honum
vegnað vel sem sjónvarps-
stjörnu. Þættirnir, sem hann
lei’kur í, heita „Hardy Boys” og
eiga miklum vinsældum að
fagna. Shaun er ógiftur og á ekki
einu sinni „fasta” vinkonu, eftir
þvi sem best er vitað. Þegar
hann er ekki að vinna, eyðir
hann mestum tíma sínum i að
k'ika v ið hundinn sinn eða horfa
á sjonvarp. Honum finnst gott
að vera sem mest í einrúmi. For-
'ldrar hans eru leikkonan Shir-
Jones (The Partridge Family)
4 Jack Cassidy, en faðir hans
'rst í eldsvoða árið 1976. er
ibúð hans brann til kaldra kola
Alft til hljómflutnings fyrír.
HEIMILID - BÍLINN OG
DISKÓTEKIÐ
BÍLASTEREO
/setning og viðgerðar-
þjónusta af fagmönnum.
ÁÁLAUTOMATIC radiq
-..................................inrr...................
1 1 ............
Úrval sf bílaloftnetum.
Stereoútvörp
Kassettutæki og kraftmagnarar.
Töskur fyrir kassettur og margtfleira.
D i. . i
i\aaio
ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVÍK
SIMAR: 31133 83177 PÓSTHÖLF1366
26. TBL.VIKAN 7