Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 17
það vill klessast undir hlífinni og
í kringum hringinn, sem hnífarn-
ir eru festir í.
Bensín —
eða rafmagns
Vélarnar eða mótorarnir i
sláttuvélunum eru annað hvort
knúnir áfram af bensíni eða raf-
magni. Til eru tvenns konar
bensín-mótorar, tvígengis eða
fjórgengis. Þeir, sem eru tvígeng-
is, ganga fyrir bensín- og olíu-
blöndu, og þarf ekki að smyrja
þá sérstaklega. Fjórgengisvél-
arnar ganga fyrir bensíni ein-
göngu, og verður að smyrja þær
eins og aðrar vélar.
Gríðarlegur hávaði getur ver-
ið frá bensínvélunum, eins og
flestir kannast örugglega við.
Þannig geta sunnudagsmorgn-
arnir í hverfum með stórum lóð-
um orðið ónæðissamir, þegar
allir eru úti að slá. Stór og hæg-
gengur mótor er talinn hljóðlát-
ari en lítill og hraðgengur. Tví-
gengis mótorar eru taldir há-
vaðasamari en fjórgengis. Á
margar vélarnar, sem við
skoðuðum, hefur verið settur
stór hljóðkútur, sem á að draga
verulega úr hávaðanum.
Rafmagnsvélarnar
hljóðlátari
Rafmagnsmótorarnir eru
miklu hljóðlátari — þeir nánast
suða, þegar vélin er í gangi. En
rafmagnsvélarnar geta verið
hættulegar, ef t.d. er slegið yfir
snúruna, sem nauðsynleg er til
þess að flytja orku til vélarinn-
ar.
Einn sölumaður rafmagnsvél-
ar benti á, að það gæti einnig
verið hættulegt að ryksjúga yfir
snúruna, þegar ryksugað er inn-
anhúss. En bæði er, að ryksugan
er ekki útbúin með hárbeittum
hnífum og gólfteppin okkar ekki
að jafnaði eins loðin og óslegin
grasflöt.
Erlendis eru til sláttuvélar,
sem ganga fyrir rafhlöðum, en
okkur til mikillar furðu fundum
við enga slika á markaðinum
hér.
Samantekt þessi er gerð eftir
bestu vitund og gat blm. ekki
fundið fleiri fyrirtæki, sem flytja
inn aðrar tegundir en hér eru
taldar upp. Söluaðilar garð-
sláttuvéla eru fjölmargir víða
um land.
Viðgerðaþjónustan
Sölumenn sláttuvélanna full-
vissuðu okkur um, að yfir vetur-
inn reyndu þeir að koma vara-
hlutalager sínum í gott horf og
reyndu þannig að leysa vanda
viðskiptavina sinna, þegar
garðsláttur stendur sem hæst,
ef vélarnar bila. Þó getur komið
fyrir að biða þurfi eftir einhverj-
um varahlut — en það er aldrei
mjög lengi.
A. Bj.
VIKAIM Á
NEYTENDAMARKAÐI
Maurinn.
RAFMAGNS: ZIEMSEN SÍS Ármúla G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON
Tegund. SUFFOLK RAPIDE 14 FLYMO LOFTPÚDAVÉL BLACKb DECKER D 606 BLACK Er DECKER D 808
Verð. 38.315 71.000 Um kr. 25.000 Um kr. 35.000
Grassafnarí. Jó, fylgir Nei Nei Já
Þyngd. 16 kg 13 kg - -
Sláttubreidd. 35 cm (14") 38 cm 30 cm 30 cm
Siéttuhæð. Þreplaus stilling 3 hæðarstill. 3 hæðarstill. 3 hæðarstill.
Tegund hn'rfa. Valsavél 1 hnrfur 1 hnrfur 1 hnrfur
Ábyrgð/mótor. Ársábyrgð Nei Ársábyrgð á hugsanl. verksm. galla Ársáb. á hugsanl. verksm. galla
Aths.: 300 w 1,4 amp. Snúran fylgir ekki. 1000 w 21 m löng snúra fylgir. 380 w 15 m snúra fylgir 500 w 15 m snúra fylgir.
Innan við 10 kr./klst Innan við 20 kr./klst Innan við 10kr./klst Innan við 10 kr./klst.
26. TBL.VIKAN 17