Vikan


Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 41

Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 41
Maggie í sírenu sjúkrabils í simanum. Svo rann það upp fyrir henni. þegar hún var búin að leggja á, að hún gat enn heyrt hana fyrir utan. Þannig að systir hennar var ekki í Flórens — og ekki heldur í Paris, eins og umboðsmaður t hennar hélt. Hún var hér i London og þaðekki langt undan. Maggie fann til mikillar gremju, með- an hún leitaði að Jules Nash i síma- skránni, en hún fann bara númerið í búðinni, svo hann hlaut að hafa leyni- númer. Hún reyndi að hringja í verslun- ina, án þess þó að gera sér miklar vonir, enfékkekkertsvar. Henni var órótt, og hana langaði til að tala við einhvem, svo hún dró glugga- tjöldin til hliðar og leit yfir til Steve. Þar var líka niðamyrkur. Loks gerði hún það, sem hún hefði átt að gera þegar i stað. Hún hringdi til Ross á hótel hans í Amsterdam. en hann var ekki við. Hún skildi eftir skilaboð og bað um, að hann hringdi til hennar. Hún var lengi á fótum, en siminn var þögull. Síðar, þegar Maggie lá vakandi og hlustaði á lágværan umferðarniðinn í London, braut hún heilann um það, hvort Ross hefði fengið skilaboðin frá henni og ekki getað hringt — eða ekki viljað það. Hann hafði ef til vill ekki bóginn gat það verið, að hann væri ekki kominn heim. Loks sofnaði hún, og glæsikvendi sprönguðu i gegnum drauma hennar í fylgd með hlæjandi eiginmanni hennar. r Arla næsta morgun hringdi sím- inn, og hún þaut af stað til að ansa, sannfærð um, að þetta hlyti að vera Ross. En þetta var þá viðbjóðsleg rödd Bernies, sem fræddi hana á því, að það væri best fyrir hana og systur hennar, að hún pakkaði niður og væri farin, áður en Donna kæmi aftur heim. Maggie lagði á, án þess að svara. Hún var hrædd, en hún var ekki slík gunga, að hún yfirgæfi Donnu, þegar illa stóð á hjá henni. Auk þess hafi Maggie engan staðaðfaraá. Fáeinum stundum síðar hringdi dyra- bjallan. og Jules var fyrir utan, þegar hún lauk upp. Hann brosti glaðlega og sagði: „Ég ætlaði bara að fullvissa mig um það, að allt væri í lagi hjá þér. Ég hef lokað á mánudögum, svo ég hef ekkert komið hingað siðan á laugardaginn var.” Hún bauð honum inn i kaffi, og þegar þau voru sest, sagði hún: „Þú vissir auð- vitað, að Donna kemur heim i kvöld?” „Já.” Jules setti frá sér bollann. „Ég þarf að biðjast afsökunar. Ég vissi, hefði getað gefið þér meiri upplýsingar. Það var bara það, að fyrst Donna var ekki búin að segja þér, hverjir það voru, nú, þá fannst mér það ekki vera i minum verkahring.” „Hún fór burt, er það ekki?” sagði Maggie eitruðum rómi. Hann leit undrandi upp: „Almáttugur minn. já. H vers vegna spyrðu?” „Það er ekki mitt að hafa neina skoð- un á þvi, ef hún hefur ekki sagt þér, hvort hún fóreðaekki. Jules bældi niður bros, tók aftur upp boilann sinn og fékk sér sopa. „Hún gæti hafa komið til baka, fyrr en hún bjóst við,"sagði hann. „Og fyrr en hún viðurkennir. Já, það gæti verið ástæðan. Ég reyndi að hringja til þin í gærkvöldi, Jules, en fann ekki simanúmerið þitt." „Ég skal láta þig fá það núna,” sagði hann og rétti henni spjald, þar sem á var letrað nafn hans, símanúmer og heimil- isfang. Cornwall Gardens, sá hún. Það var nægilega nærri til að það hefði heyrst i sjúkrabilssírenu i simanum og síðan i ibúðinni þegar á eftir. Jules spurði ekki. hvers vegna hún vildi ná sambandi við hann. Ef til vill vissi hann það. Maggie hélt, að ef hún hefði hringt kvöldið áður, þá hefði Donna svarað i simann, en það kom henniekki við. Engu að siður kærði hún sig ekki um, að yngri systir hennar lygi að henni og blekkti hana. Hana sveið undan þvi. Það varð þögn, og síðan sagði Jules: „Ég veit ekki, hvers vegna þér geðjast ekki að mér, en ég veit, að það gerir þér ekki." Maggie fann, að hún roðnaði, sér til mikillar gremju. „Mér — mér geðjast ekkert illa að þér. Hvers vegna heldurðu það?" „Láttu ekki svona, Maggie. Ég er ekk- ert fifl," sagði Jules. „Þú veist kannski ekki heldur, af hverju það er? Er þetta eðlisávisun?" Einstök Þjónusta fyrir Stór-Reykjavík Við mælum flötinn og gerum fast verðtilboð. Þér komið og veljið gerðina, við mælum og gefum yður upp endanlegt verð — án nokkurra skuldbindinga. Athugið að þetta gildir bæði um smáa og stóra fleti. Þér getið valið efni af 70 stórum rúllum eða úr 200 mismunandi gerðum af WESTOIM teppum. Við bjóðum mesta teppaúrval landsins í öllum verð- flokkum: STAKAR MOTTUR 41 MIKLU ÚRVALI: Danskar — Enskar — Tékkneskar — Indverskar og Kínverskar. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 26. TBL. VIKAN 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.