Vikan


Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 53

Vikan - 29.06.1978, Blaðsíða 53
Maðurinn hennar var ekki einu sinni fær um það. Hann var sjálfur undir áhrifum Nönnu og Tómasar. Þau höfðu búið svo um hnútana. að hann yrði sam- starfsmaður þeirra i fjölskyldufyrirtæk- inu. Þegar það var afráðið. hafði Cecilia haldið. að þau gerðu það af góösemi. en nú vissi hún. að það var vegna þess. að þau vildu fá vald yfir honum. Vesalings Marteinn. En Henrik gátu þau ekki kúgað. Hann gerði eins og honum best hent- aði. Þau kölluðu hann drykkjurút og slæpingja. og einu sinni hafði Cecilia meira segja sjálf trúað. að yngsti sonur hennar væri eins og þau létu. En svo hafði hún lcsið eitthvað. sem hann hafði ritað. og séð nokkrar mynda hans og heyrt hann spila tónvcrk sin. Það var reyndar ekki svo langt siðan. Aðeins nokkrir mánuðir. og hún hafði ekki verið samvistum við hann nema stutl. En hún upplifði meiri unaðen hún hafði notið nokkru sinni allan þann lima. sem hún hafði verið með hinum börnunum þrcm. En nú var hann ekki hér. Ef cg halla aftur augunum og hugsa sterkt til hans. kcmur hann kannski. hugsaði hún og lét þung augnalokin aft- ur. Um leið heyrði hún rödd Nönnu. Nanna var ekki að tala við hana. Hún talaði til Pálu og Tómasar. — Nú held ég. að þessu sé alveg að verða lokið. sagði hún. — heldurðu ekki. að þú ættir að hrfngja strax í kap- elluna Tómas, svo að við getum komið mömmu þangað strax á morgun. KOMDU, mamma. Hún fann hlýja. mjúka hönd taka um sína. og nú sá hún andlitið. — Henrik. hvislaði hún. — þú komst þá eftir allt saman. H.ann hrosti hliðlega — Auðvitað, mamma, sagði hann, — ég kem alltal. þegar þú kallar á mig. Nú skulum við eiga ánægjustund. Manstu eftir ævintýraskóginum okkar? — Já. drengur minn. Ég man eftir honum. þó nú sé langt um liðið. Þú varst aðeins smádrengur, þegar við gengum um hann. og ég gat aldrei skynjað hann á sama hátt og þú. Ég sá ekki allt. sem þú sást. — Þu getur það núna. mamma, sagði hann og brosti glaðlega. Já. hugsaði hún. Henrik hcfur rétt fyrir sér. Nú gct ég upplifað þann ævin- týrahcim. sem hann sýnir mér. Ég vil ganga með honum um hinn töfrandi æv- intýraskóg. sjá með augum hans. heyra með hlustum hans og nema með tilfinn- ingum hans. — Já. drengur minn. sagði hún glað- lega. — Taktu mig með þér. Hönd hans hélt fast og tryggt um hennar. og hann leiddi hana bliðlega ál'ram. Hún varekki nitfðir hans lengur. Hún var litil stúlka. sem gekk með stór- um. sterkum manni og hlýddi á söng fuglanna. Blöð trjánna \oru ekki bara'græn. Þau hærðust i gullnum. rauðum. bláum og rósbleikum litum og mynduðu per- sónur lullar af lifi og fegurð. Allt rann saman í órofa yndissýn. Og dýrin komu léttstig fram milli trjánna. Þau dönsuðu milli trjánna og yfir bylgjandi grasið. og fagurblár himininn hvelfdist vfir þessa fögru rnynd. — Sjáðu. mamma. sagði Henrik hljóðlega. — þau dansa fyrir þig. Þau kalla á þig. Þaðvarsatt. Söngur fuglanna. Lýsandi litur trj- ánna og dýrin. ailt þetta kallaði á hana. Þau vildu. að hún tæki þátt i gleöi i a. Hún. Hcnrik brosti til hennar. og hún fyllt- ist fögnuði. Hún stóð urn stund og horfði i brosandi andlit hans og varð gagntekin nýjum þrótti. Dansa gegnum skóginn. Hún tók nokkur spor og fann. að hönd hennar sleppti Henriks. en það. sem hann hafði gefið henni af lífsþrólti sinum. hafði hún enn. 26. TBL. VIKAN 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.