Vikan


Vikan - 29.06.1978, Qupperneq 55

Vikan - 29.06.1978, Qupperneq 55
— Henrik fær bara það, sem honum ber lögum samkvæmt, það er allt saman ' lagi. Ánægjubros leið yfir andlit Nönnu. en hún flýtti sér að fela það. — Við verðum að tilkynna honum, að mamma sé öll. sagði hún skömmu siðar, — áttu von á, að hann komi til jarðarfararinnar? — Það er ekki gott að segja. svaraði Tómas, — hann er nú dálitið sérvitur •••og... - Og-> Nanna leit spyrjandi á bróður sinn. — Nú ... ekkert sérstakt. svaraði hann óstyrkur. — ég var bara að hugsa um. að það væri kannski eins gott. að hann kæmi ekki. Hann passar ekki inn i rammann. Við getum alveg eins átt von á. að hann komi i óviðeigandi klæðnaði. hann er vanur að ganga einkennilega til fara. Peysum og gallabuxum og þar frameftirgötunum. — En við neyðumst samt til að til- hynna honum látið. — Tja . . . ég sendi þá skevti. svaraði Tómas tregur. — Býr hann ennþá i þessu greni þarna úti i skógi? — Já. Pála kom inn í svefnherbergið með silfurkertastjaka og setti þá á borðið við rúmið. — Við vorum að tala um. að Henrik vrði að fá að vita um andlát mömntu. sagði Nanna, — hann kemur sjálfsagt ckki að jarðarförinni. en hann verður samt að la að vita. að hún sé dáin. — Ég skal aka úteftir til hans og scgja honum það. sagði Pála þeim til mikillar furðu. — Þú! — Já. Ég fer strax. Ég kem aftur eins fljótt og ég get. Hvenær hafið þið hugs- að ykkur. aðjarðarförin verði? — Áföstudag. sagðiTómas. Pála kinkaði kolli. Hún yfirgaf her- bergið. án þess að segja fleira, og út um gluggann horfðu systkini hennar undr- andi á hana aka brott. Það var ólikt henni að taka frumkvæði i nokkru máli. HENRIK sat og horfði á mynd. sem stóð á trönum. þegar bill ók upp að litla húsinu hans og stöðvaði við dyrnar. Hann leit út um gluggann og sá. hvcr var á ferðinni. Hann stóð upp og lagði dúk yfir myndina. Hann snéri sér ekki við. þegar dyrnar opnuðust að tv.ski iians. — Góðan daginn. Henrik. sagði Pála. — Góðan daginn. Pála. sagði hann. án þess að lita upp frá teikningu. sem hann varað rissa upp. Hún gekk alveg til hans og lagði hönd- ina á öxl hans.. — Henrik. sagði hún hljóðlega, — ég cr komin til að segja þér að mamma er dáin. Hann kinkaði kolli. — Já ég veit það. svaraði hann stilli- lega. — Veist þú það? spurði Pála undr- andi, — hvernig getur þú vitað það? Það er ekki nema klukkustund síðan hún dó. Hefur Tómas sent skeyti? Henrik hristi höfuðið. — Nei, svaraði hann, hér hefur eng- inn verið. Pála settist og horfði á hann. Um var- ir hans lék dularfullt bros, og það var eins og hann hugsaði um eitthvað dýrð- legt. — Mamma verður jarðsungin á föstudaginn. hélt hún áfram. — kemur þú? — Auðvitaðekki. ansaði hann. — ég vil ekki, að mín fina fjölskylda þurfi að skammast sin fyrir glataða soninn. Tóm- asi léttir sjálfsagt. þegar þú segir honum það. Pála leit fast á hann. Henrik var hissa, þegar hann sá. að augun stóðu full af tárum. — Henrik. sagði hún hægt. — ég hef komist að þvi. að Nanna og Tómas eru vondar manneskjur. Ég vissi það ekki fyrr en nú. Það rann upp fyrir mér núna, þegar mamma var að deyja. Það er ekki bara það. að þau skuli hafa fengið mömmu til að gera erfðaskrá. þar sem þér er ætlað minna en okkur. Það er nokkuð annað. Nokkuð. sem ég get ekki skýrt fyrir þér. Við sátum öll yfir mömmu. þegar hún dó, en þau fylltu mig viðbjóði. mér var helkalt ... ó. ég get ekki lýst því fyrir þér. Hann reis upp og gekk til hennar og lagði handlegginn um herðar hennar. — Þú þarft ekki að segja mér neitt. Pála. sagði hann rólega. — ég veit. að mamma fékk fallegt andlát. Hún mætti iþvi, sem er handan við gröf og dauða. með fögnuði og eftirvæntingu i hjarta sinu. — Það veist þú ekki. Henrik. sagði Pála kjökrandi. — þú varst ekki hjá henni. Hann sleppti henni og gekk að trön- unni og tók myndina varlega i hendurn- ar. — Svona dó mamma. sagði hann. Pála starði á myndina. Myndin næstum blindaði hana. Hún starði á dansandi dýr. litskrúðug trén. fuglana. sem flugu gegnum blikandi loft- ið. og geislann. sem kont að ofan og skein yfir dansandi hópinn. — Pabbi ... og mamma. hvislaði hún. — Já. Pála. sagði hann. — svona upplifði ég dauða mömmu. Skilurðu nú. af hverju mér er sama. hvort ég verð við- staddur jarðarförina eða ekki. og hvers vcgna ntig gildir einu. þó ég erfi ekki þessa peninga. sem Nanna og Tómas ásælast. Enginn hefur hlotið stærri arf en ég. hann getur enginn tekið frá mér. Þess vegna er ég rikari en Tómas og Nanna geta orðið. Skilurðu það. Pála? Hún kinkaði kolli og gat ekki haft augun af þessunt tveim mannverum á léreftinu. Já. hún skildi hann. ENDIR. Paradís eða helvíti ..Konan er partur af Paradís." eins og sá franski sagði. Að ósekju mætti bæta þar við. að konan sé lika partur af helviti. Segir ekki eitlhvað á þessa ieið í heilagri ritningu: ..Betra er að rigni eldi og brennisteini en hlusta á þrasgjarna konu." Þetta er hluti af svari Örlygs Sigurðssonar listntálara við samvisku- spurningu Vikunnar: „Hvað er það fyrsta. sem þú tekur eflir í fari kvenna?" Og þeir voru fleiri. sem svöruðu þessari spurningu skemmtilega. en svörin birtast í næstu Viku. Viðtal við Melchior Hljómsveitin Melchior hefur nú sent frá sér fyrstu breiðskífu sína. sem ber heitið „Silfurgrænt ilmvatn." og er þess vænst. að hún hljóti góðar viðtökur. Melchior er reyndar ekki ný af nálinni, en hefur lítt haft sig í frammi fyrr en á liðnu ári. Að sögn flytjenda er á plötunni „létt- klassísk popptónlist i jassstíl." frum- samin. j næstú Viku verður spjallað við Melchior um allt og ekkert og allt þar á milli. Þegar Erró hét Ferró Einn af stærstu viðburðum Listahátíðar 1978 var sýningin á verkum Errós. í næsta blaði eru birtar litmyndir frá opnun sýningarinnar, sem jafnfrantt var opnun hátíðarinnar. Sigurjón Jóhanns- son tók myndirnar. en hann hefur fylgst með ferli Errós frá fyrstu tið og átti við hann blaðaviðtöl fyrr á árum. Sigurjón rifjar upp viðbrögð landsmanna við fyrri sýningum listamannsins. þegar hann hélt Ferró. og hafa áreiðanlega margir gaman af þeirri lesningu. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn. Ásb. Sigurðsson. Anna Kristine Magnúsdóttir. Hrafnhildur Sveinsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri; Ingvar Sveinsson. Ritstjórn i Siðumúla 12. auglýsingar. afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. sinti 27022. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 530. Áskriftarvcrð kr, 2000 pr. mánuð. kr. 6000 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega. eða kr. 11.300 fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. gjalddagar: Nóvember. febrúar. mai. ágúst. Áskrift í Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega. I NÆSTU VIKU 26. TBL.VIKAN 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.