Vikan - 23.08.1979, Blaðsíða 28
Miloa rorman MtaHórl teamt aðallaikurunum i Hárinu á strönd-
inni i Cannas.
Dorsey Wright og Annie Golden eru biómabömin í Hárinu. Þwí
var fleygt að Milos Forman hafi litið til hennar hýru auga og
kallað hana Pecek, sem þýðir Iftill hundur á tékknesku.
Fyrrverandi kona Milos Forman býr í Prag ásamt tveimur
sonum þeirra hjóna. Hér sést Forman heimsœkja hana og með
honum er söngkonan Cheryl Barnes en flutningur hennar á
laginu Easy To Be Hard er einn ógleymanlegasti þáttur myndar-
„Besta söngvamynd síðan
Kabarett var sýnd,” sögðu
bandarísk dagblöð um Hárið
sem nú hefur farið sigurför um
heiminn.
En Hárið er ekki einungis góð
afþreyingarkvikmynd. Hún er
hluti af sögu sjöunda áratugsins,
sem ekki er grafinn og gleymd-
ur, þó sjálf hippa-menningin
hafi blómstrað og visnað á þeim
13 árum sem liðin eru, síðan
Hópeenumar I Hárinu vom teknar upp I Central Peric.
söngleikurinn var frumsýndur á
sviði.
Sagan um sveitastrákinn frá
Oklahóma sem kemur til New
York af því að hann hefur verið
kallaður í herinn, og lendir í
ævintýrum sem hann hafði
aldrei órað fyrir með hóp af síð-
hærðum strákum og stelpum í
Central Park, er orðin ímynd
um bandaríska unglinga sem
voru uppi á þessum tíma. — Þó
að sagan sé að nokkru leyti
ádeila á martröð þessa tíma,
Víetnam-stríðið, þá er Hárið alls
ekki nein mynd með ógurlegan
boðskap. Hún býður fyrst og
fremst upp á góða tónlist og
skemmtun yfir uppátækjum
hippanna.
Sveitastrákinn, sem kemur til
stórborgarinnar í rútu, leikur
John Savage, sem eflaust margir
muna sem félaga Robert De
Niros í Hjartarbananum, (The
Deer Hunter). Treat Williams
leikur aðalleiðtoga hippagrúpp-
unnar. Aðrir leikarar eru Dorsey
Wright, Annie Golden og
Donald Dacus, Beverly D’Ang-
elo sem er ríka stórborgarstúlk-
an og Cheryl Barnes söngkona,
sem gerir lagið Easy To Be Hard
að hápunkti myndarinnar.
Milos Forman (leikstýrði
einnig One Flew Over The
28 ViKan 34. tbl.