Vikan


Vikan - 23.08.1979, Blaðsíða 11

Vikan - 23.08.1979, Blaðsíða 11
á íslandi: Er líknarmo besta lausnin? — Við hófum ekki neina fastmótaða stefnuskrá ennþá, sögðu þær Andrea Þórð ardóttir, forstöðumaður, og Sigriður Þor- steinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, en þær féllust á að ræða þessi mál við blaðamann Vikunnar ásamt nokkrum aðstandendurn geðsjúkra og sjúklingum, sem af eðlilegum ástæðum vilja ekki láta nafns síns getið. — Aðaluppistaðan og reyndar kveikjan að þessu félagi eru aðstandendur og svo ailt það fólk sem hefur áhuga á að leggja þessu máli lið. Við trúum því að með aukinni fræðslu sé hægt að minnka þá fordóma sem hingað til hefur verið svo grunnt á í sam- bandi við þessa sjúkdóma og að okkur tak ist að fá fleiri til að leggja hönd á plóginn til ■ að bæta aðstöðu þessa fólks sem er tvi mælalaust einhver sú versta er sjúku fólki er boðið upp á í þjóðfélagi okkar. — Hér er allt of lítið um almenna fræðslu í sambandi við geðræna sjúkdóma. Þess vegna óttast fólk þá og hættir til að taka sjúkdóminn fyrir manninn. Félaginu er líka ætlað að létta nokkru af hinni þungu byrði aðstandenda, sem oft búa við slíkan kvíða, vonleysi og sektarkennd að það er nánast furða að það skuli ekki á endanum fara sómu leið sjálft. Það er þessu fólki ómetanlegur stuðningur að geta komið saman og rætt vandamál sín í fullri hrein- skilni við aðra með sömu reynslu. Kannski er það þessi þörf sem er hvað mest knýjandi í svipinn. Sjúklingar „settir inn" fyrir sjúkdóm sinn — Síðast en ekki síst er ætlunin að reyna að leggja sem mest af mörkum til samvinnu við geðlækna og sálfræðinga, þessar allt of fámennu stéttir sem eru svo yfirhlaðnar störf jm að nánast er vonlaust að þær geti sinnt öllum þeiin þáttum er sjúklingur þarf sér til hjálpar. Enda skortir svo mikið á að þeir hafi yfir að ráða öllu sem þarf til að fylgja eftir endurhæfingu að sjálfri sjúkrahúsmeðferð lokinni. Og það er þar sem við viljum koma inn í myndina. Við gerum okkur fulla grein fyrir að sjálf meðferðin er á engra valdi nema þeirra. En við vonumst til að okkar hjálp geti nýst til að grynnka á vandamálunum eftir sjúkra húsmeðferð. — Einnig viljum við beita okkur fyrir stofnun neyðarstöðvar, en hingað til hafa yfirfull sjúkrahús oft ekki haft önnur ráð handa aðstandendum geðsjúkra en að vísa þeim á fangageymslur lögreglunnar verði sjúklingur árásargjarn. Þannig fá þessir sjúklingar oft að „sitja inni” fyrir sjúkdóm sinn í stað þess að fá nauðsynlega læknis- hjálp og er það sjálfsagt einsdæmi. Á meðan hefur hin nýja geðdeild I.andspítal ans staðið auð sakir hreppakryts. 34* tbl. Vikan XI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.