Vikan - 13.09.1979, Page 10
Guðmundur Víglundsson, vélstjóri á
togaranum Maí og höfuð sjö manna
fjölskyldu. Hann smyglaði sér ásamt
félaga sínum með flugvél frá Keflavík til
New York og til baka aftur án nokkurra
athugasemda eftirlitsmanna. Ef eitthvað
hefði komið fyrir þá félaga í stórborginni,
lent í slysi eða þvíumlíku, þá eru allar
líkur á því að þeir hefðu fyllt flokk þeirra
manna sem af og til virðast hverfa
sporlaust.
skónum sem ég var búinn að ganga á nær
sleitulaust í 20 klukkustundir og þá voru
fætur mínir orðnir svo bólgnir að ég komst
ekki aftur í þá. Leið nú og beið þar til okkur
fannst vera tilkynnt um brottför Loftleiða-
flugvélar. Við rukum upp, gegnum herbergið,
niður brunastigann og upp í vagn sem flutti
farþegana á annan stað á vellinum þar sem
flugvélin beið. Það fór ekkert á milli mála
að þarna var Loftleiðavél en eitthvað þótti
okkur flugfreyjan sem stóð við land-
ganginn suðræn og torkennileg útlits og
ekki var búningurinn frá Loftleíðum, svo
mikið vissum við. Gáfum við okkur á tal
við hana og það má segja að fyrir einbera
tilviljun komumst við sem betur fer hjá því
að fljúga ókeypis alla leið til Argentínu en
þangað var ferð flugvélarinnar heitið i
leiguflug. Við snerum þvi til baka og fórum
upp i biðsalinn aftur.
Svo kom kallið og nú fór ekkert á milli
mála að verið var að tilkynna um brottför
XO Vlkan 37. tbl.