Vikan


Vikan - 13.09.1979, Page 27

Vikan - 13.09.1979, Page 27
„Auðvitaðeru þau það!” Andrew hló. „Þau eru vinir mínir. Alf lofaði að koma til Skotlands um tíma þegar ég opna minn eigin stað.” „Ó, já.” Raunveruleikinn þrengdi að hamingju hennar. „Er — konan þín líka góð á skíðum?” „Mjög góð. Og börnin vitanlega líka.” „Vitanlega." Hjarta Carriar herptist saman og henni létti þegar þau komu aftur heim á hótelið. Hún sagði dauf- lega: „Þakka þér kærlega fyrir skemmti- legt kvöld.” „Carrie! Bíddu aðeins...” En skyndilega opnuðust dyrnar. Þarna stóð fjúkandi reið ungfrú Tate. „Svo þarna ertu, Caroline! Allt i lagi. Hvar hefur þú verið? Veistu hvað klukkan er? Það er næstum komið mið- nætti! Sjáðu nú til —” Augnablik var Carrie orðlaus. En svo jafnaði hún sig. „Það eru engar reglur um timann! Þér kemur ekkert við...." „Ég ber ábyrgð á þér. Þú hefur engan rétt til....” „Þetta er allt í lagi, Virginia, hún var með mér.” Andrew gekk fram og ungfrú Tatevarðennfölari. „Svo ég hafði þá rétt fyrir mér! Eg sá ykkur bæði laumast út. Hvað á konan þin eftir að segja? Þetta gerir allt enn verra...” En Carrie beið ekki eftir að heyra meira. Afbrýðisamar grunsemdir ungfrú Tate eitruðu kvöldið, eyðilögðu það og hún þrengdi sér inn fram hjá henni, með grátkökk í hálsinum. 1 fyrsta sinn í mörg ár grét Carrie sig í svefn. Siðasti dagurinn reis fagur og heiður eins og allir hinir dagarnir og Carrie hugsaði þrjósk með sér þegar hún batt á sig skíðin: —Ég ætla að njóta hverrar sekúndu, því ég sé Andrew Blair aldrei framar.” „Þú ferð varlega.” Frú Faraday kom til þess að kveðja hana. „Hafðu ekki áhyggjur, þetta er mjög einföld leið.” Andrew stansaði hjá þeim í snjóiðu. „Ég skal lita eftir henni, frú Faraday.” „Ég er viss um að þú gerir það. En hún veit stundum ekki hvenær hún er sigruð.” —Ég veit það núna, hugsaði Carrie bitur með sér. Af konu og þrem börnum. —Ég vildi þið töluðuð ekki eins og ég væri ekki hér. Hún renndi sér frá þeim eins glæsilega og hún gat, hún heyrði þau segja eitthvað og þau hlógu. En svo hafði hún ekki tíma til þess að hugsa um neitt annað en snjóinn undir skiðunum, að halda sig í réttri fjarlægð frá næsta manni og reyna að muna allt sem Alf hafði kennt henni. Brautin lá hægt á brattann. Carrie neitaði að líta við. Það var allt í lagi meðan hún leit ekki niður. En um hádegi varð hún að gera það. Þau voru komin að litlum kofa. Andrew lyfti hendinni. „Við æjum hér og snæðum. Hálftíma hvíld, en farið ekki úr augsýn.” „Er þetta ekki stórkostlegt — hvilíkt útsýni! — Hvar er myndavélin mín!” Upphrópanirnar gengu frá manni til manns en Carrie stóð og sneri baki í það allt þar til Andrew sagði: „Hvað finnst þér um útsýnið, Carrie? Er það ekki hrikalega fagurt?” Þá varð hún að líta á það og líkami hennar varð að mauki. Henni fannst eins og jörðin hyrfi undan fótum þeirra. „Stórkostlegt!” Orðin komu í rykkjum. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að við værum komin svona hátt.” „Þetta er auðveld leið. Það er örlítið erfiðara að fara til baka, en það er ekkert sem allir geta ekki.” Nema ég! Ó, hvers vegna var ég að koma? Hvers vegna sagði ég ekki bara nei? Ég er að deyja úr hræðslu. Hvaða máli skiptir álit Andrews Blair? Hún hafði hagað sér eins og bjáni og nú þurfti hún að gjalda fyrir það. En hún gat ekki eytt því sem eftir var ævinnar hérna uppi og það var aðeins ein leið niður, á skíðunum. Fyrsta hálftímann gekk allt vel. Brautin lá niður afliðandi brekku og sólin, sem skein framan i hana og hljóðið í skíðunum hennar fengu hana til þess að gleyma hve hátt uppi þau voru. En skyndilega féll brautin. Með hryllingi horfði hún á þegar fólkið fyrir framan hana hvarf úr augsýn og svo skaust hún fram og niður. Einhvern veg- inn hélt hún jafnvægi, hún þvingaði skíðin sín til hliðar og snarstansaði. Hún stóð þarna skjálfandi og horfði á hina þjóta úr augsýn fyrir stóran snævi- þakinn klett. Hún mátti ekki missa af þeim. En um leið og hún stakk stöfunum í snjóinn heyrði hún hávaða sem fékk hana til þess að hika. Hún leit upp. Þar sem stuttu áður hafði verið slétt og sindrandi brekka var nú stór grófur snjófláki á hraðri ferð niður. Hann virtist stefna beint á hana. Hún gat sig hvergi hrært. Hún fann hvernig snjórinn lyftist og skalf undir henni, en einhverju kraftaverki var fyrir að þakka, að hann brast ekki undan henni. Skriðan rann fram hjá henni, skall á trjánum fyrir neðan og lokaði leiðinni. „Carrie! Carrie, er allt í lagi með þig?” Áköf rödd Andrews barst til hennar. „Ég — ég held það.” Hún reyndi ekki aðdylja hræðslu sina. „Hlustaðu Carrie, farðu aftur upp brekkuna eins varlega og þú getur og renndu þér svo beint niður eins hratt og þú getur. Ég kem svo og hitti þig.” „Nei.” Fjöllin allt í kring skoruðu á hana og i eitt skipti fyrir öll gafst hún upp. „Ég get það ekki. Það er of bratt. Égget þaðekki.” „Þú getur það víst, Carrie. Þú verður að geta það. Ég segi að þú getir það og þess vegna getur þú það. Þetta var óvænt skriða en það gæti komið önnur. Gerðu það, Carrie, farðu nú aftur.” Hún vissi aldrei hvaðan hún fékk kraftinn og hugrekkið. Kannski frá Andrew. Hægt hélt hún upp á ská og svo í stuttum misjöfnum ferðum renndi hún sér niður brekkurnar. Hún rann á- fram þar til hún var orðin hvit af snjó, vöðvar hennar spenntust og háls hennar varð þurr af hræðslu. Þá allt í einu sá hún Andrew koma undan jaðri trjánna, hann veifaði til hennar og hún vissi að hún var næstum hólpin. „Carrie, komdu Carrie!” Hann dró hana inn í öryggi trjánna og skyndilega voru handleggir hans komnir utan um hana, hann hélt henni þétt upp að sér og hún hafði hvorki afl né vilja til þess að streitast á móti. Hann tók um höku hennar og augu hans voru ekki hlý og full kátínu, heldur dökk af áhyggjum og svolitlu öðru sem Carrie gat ekki trúað. „Gerðu þetta aldrei framar, hræddu mig ekki svona,” hvíslaði hann. Svo byrjaði hann að kyssa hana, eins og hann ætlaði aldrei að hætta því. Einhvern veginn tókst henni þó að lokum, þrátt fyrir sterkar tilfinning- arnar, að komast aftur til raunveruleikans. Hún reyndi að losa sig, en hann hélt henni fast. „Nei — nei — konan þin.” Henni til skelfingar þá fór hann að skellihlæja. „Fyrirgefðu.” Hann kyssti hana aftur, blíðlega. „En ég held að við höfum bæði syndajátningu fram að færa. Til að byrja með þá hefur þér gengið mjög vel í dag, miðað við stúlku, sem er ákaflega lofthrædd og hrædd á skíðum.” „Ó.” Hún starði skelfd á hann. „Þú vissir það þá? Hvernig? Segðu ekki að það hafi verið mamma! Hvernig gat hún! Þvilíkur svindlari, hlýtur þú að hafa hugsað um mig!” „Þvert á móti, ég dáðist að þér. Og elskaði þig vegna þess.” Carrie hefði dottið ef hann hefði ekki enn haldið með handleggjunum utan um hana. „En þú — þú ert kvæntur.” „Þaðer ég ekki.” „Ertu það ekki?” Var hún raunverulega vakandi? „Og áttu ekki þrjá krakka með mislinga?” Hann hristi höfuðið. „Ekki einn einasta. Sjáðu til Carrie, ég veit hvernig skíðahótel eru, þau likjast nokkuð skemmtiferðaskipum, og ég kom ekki hingað til þess að skemmta mér. Ég kom hingað til þess að vinna og til þess að læra. Svo ég skáldaði upp konu og fjöl- skyldu til þess að vernda mig." „Fyrir fólki eins — eins og ungfrú Tate?” „Einmitt. En ég gat ekki skilið á stundinni um leið og ég varð ástfanginn af þér. Mamma þín skildi það alveg.” Hún greip andann á lofti. „Mamma? Áttu við að hún hafi verið með i sam- særinu allan tímann? Oh, biddu bara þar til ég hitti hana — þegar ég hugsa til þess sem ég hef þurft að þola.” Hún reyndi að stappa í jörðina, en gleymdi skíðinu sem var fast við hana. „Ég býst við að hún hafi líka sagt þér, að ég væri ástfangin af þér, er það ekki?” „Hún gerði það. Hún er mjög glöð, hún mamma þin.” „Hún er líka samviskulaus tvi- skinnungur!” En hún sagði þetta svo blíðlega að þau fóru skyndilega bæði að hlæja. ENDIR. Þetta er allt í lagi, eftir 20 ár verðuröu siginn niður á rassinn og getur þá setið. 37. tbl. Vikan 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.