Vikan - 13.09.1979, Blaðsíða 34
Átta hringar
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi undarlegan draum. Ég
var stödd í kaupfélaginu hér heima.
Þegar ég kem með vöruna að húðar-
horðinu þá átti stelpan enga skipti-
mynt. Ég beið lengi við borðið en
þegar hún kom aftur þá sagði ég að ég
ætti nóga smápeninga. Éannst mér þá
sem hún liti niður í töskuna en samt
var eins og á botninum væri fullt af
rusli. Hún fór að leita að smápening-
um en fann bara kóktappa, blaut blöð
og annað rusl. Þá fór ég að leita og
fannst mér eins og ég væri að leita
innan við dyrnar á kaupfélaginu.
Þegar ég var búin að leita nokkurn
tíma fór ég að finna hringi, fyrst gull-
hring, svo silfurhring og fann ég alls
átta hringi. Einnig fann ég neðan af
eyrnalokkum og var það allt úr gulli
með bláum steini. Hringarnir voru allir
með rauðum steini. Fólkið í búðinni
var mjög hissa á öllum þessum hring-
um. Stelpan I búðinni átti einn hring-
inn og sýndi hún enga ánægju yfir að
hann væri kominn í leitirnar. Hina
hringana þekkti enginn.
Ein áhyggjufull.
P.S. Eg er hrifin af strák, gæti þetta
boðað samband á milli okkar?
Þú átt mjög auðvelt með að umgang-
ast annað fólk og eignast þess vegna
fljótlega vini af báðum kynjum. Lík-
lega verða vinir af hinu kyninu fleiri
en einn og ekkert í þessutn draumi
bendir frekar til ákveðins sambands
við þennan tiltekna strák. Þessi
draumur getur komið fram á mörgum
árum.
Ég hreinskrifa bréfin
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða
fyrir mig einn draum sem mig dreymdi
fyrir nokkru. Eg var stödd I skólanum
sem ég geng I. Eg labba fram hjá
stelpu sem við getum kallað L og strák
sem ég hef aldrei séð. Strákurinn horfir
fast á mig þegar ég labba fram hjá.
Svo settist ég á gluggakistu eina rétt
hjá þeim og enn horfði strákurinn á
mig. Eftir stutta stund tekur L eftir
þessu og segir við strákinn: „Ef þú
getur ekki hætt að horfa á hana get-
urðu bara verið með henni en ekki
Mig
dreymdi
mér. ” Daginn eftir hitti ég strákinn
fyrir utan skólann og heldur hann á
bréfum í hendinni. Eg fer upp að
honum og hvísla: „Ertu með L á
föstu?” Þá segir hann: „Já, en ég vildi
að ég væri með þér. ” Nokkur af bréf-
unum eru til L en hin til mín. Þá segir
hann: „Eg hreinskrifa bréfin og læt þig
svo fá þau. ” Við það vakna ég. Með
fyrirfram þökk fyrir birtingu.
RR.
Þér væri hollast að treysta ekki um of
á laus sambönd við hitt kynið og fara
gætilega í öllum samskiptum við þér
áður ókunna skólafélaga. Ekki er
ósennilegt að þú kynnist fremur var-
hugaverðum persónuleika, sem hefur
talsverð tök á þér og ef ekki er varlega
farið gætir þú beðið tjón af kynnun-
um. Gerðu þér far um að hugsa um öll
sambönd við hitt kynið af rökvísi og
taklu ekki ákvarðanir nema að vel at-
huguðu máli.
Hann var með hringinn
Elsku draumráðandi!
Mig langar svo óskaplega að biðja
þig að ráða fyrir mig drauma (eiginlega
alveg eins). Eg vona að þú gerir það
fyrir mig því að ég held að þeir tákni
eitthvað. Mig dreymdi þá tvær nætur I
röð. Sá fyrri er svona: Maðurinn
(giftur) sem ég var með kom heim á
dráttarvél og ég tók strax eftir því að
hann var með giftingarhringinn sinn
(hann gengur ekki með hann) og
fannst mér hann gera það bara til að
kvelja mig (því að ég elska hann).
Þá vaknaði ég.
Sá seinni er svipaður. Sami maðurinn
kom heim á dráttarvél og var hann
með hringinn. Eg átti að fara með
honum og hjálpa honum að sprauta
beljur. Gengum við veginn og tók ég
eftir því að hann dró §kyrtuermina
niður fyrir hringinn svo að ég sæi
hann ekki. Við töluðumst ekki við á
leiðinni. Fannst mér endilega að kona
hans léti hann vera með hringinn (svo
að ég kveldist) og að hann vilji ekki
vera með henni. Strax og hann kom
heim leit hann fyrst á mig til þess að
vita, hvort ég tæki nokkuð eftir
hringnum. Ég kvaldist við að sjá hann
með hringinn. Þá vaknaði ég. Þakka
birtinguna.
3261-1222
Flest í þessum draumi bendir til að
þarna sé um að ræða afleiðingu af
hugsunum þínum í vökunni. Slika
drauma er sjaldan að marka og þú þarft
ekki að hafa miklar áhyggjur af þýðingu
þeirra. Þó skaltu fara varlega í öllum
samskiptum þínum við mann þennan,
því fljótfærni af þinni hálfu getur haft
slæmar afleiðingar fyrir framtið þína.
Rauður og grænn litur
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða
fyrir mig eftirfarandi draum. Mér
fannst ég sitja með barn I fanginu sem
átti að vera dóttir mín. Hún var að lita
mynd af stelpu og krotaði alla
myndina út með rauðum og grænum
lit. Svo fannst mér ég vera beðin að
skrifa nafnið hennar og föðurnafn. Eg
man ekki hvað hún hét en ég skrifaði
nafn og föðurnafn manns, sem ég hef
verið með eitt kvöld.
Ein áhyggjufull.
Litir tákna ekki alltaf það sama í draumi
og draumráðendum ber yfirleitt ekki
saman um tákn lita í ýmsum tilvikum.
Grænt þarf til dæmis ekki alltaf að vera
ills viti í draumi, þótt yfirleitt sé hann
viðvörun til dreymandans um að gæta
sín á tunguliprum smjöðrurum. Rautt er
yfirleitt allra lita bestur í draumi, en ef
hann er mjög dökkur getur það verið
bending um að dreymandi eigi að stilla
skap sitt betur. Langlíklegast er að þessi
tiltekni draumur þinn sé einungis
afleiðing hugsana í vökunni og því lítið
mark takandi á öðrum táknum hans.
34 Vikan 37- tbl.