Vikan - 13.09.1979, Side 41
þunga skólatösku í annarri
hendi og enn þyngri ritvélar-
tösku í hinni. Þá má víst með
sanni segja að íslenskir skóla-
nemendur hafi haft í heiðri ráð-
'eggingar Steins Steinarrs í
kvæðinu Samræmt göngulag
fornt:
... álútir skulu menn ganga!
og hoknir i hnjánum!
og horfa með stilling og festu
áíslenskajörð!
Þessi orð Steins munu nú að
verða úrelt i þessu sambandi, því
ef dæma má af vörum þeim sem
ritfangaverslunin Penninn hefur
nú á boðstólum er gert ráð fyrir
að rétt sé úr bakinu og ,jnenn
gangi nú uppréttir — jafnvel um
hábjartan dag”. Töskurnar eru
flestar mjög léttar, ætlaðar til
þess að bera á bakinu og sér-
staklega hannaðar með burðar-
þol hvers aldurskeiðs í huga.
Penninn hóf göngu sína árið
1932 í húsinu Ingólfshvoli og
var þá bæði ritfanga- og minja-
gripaverslun. Nú mun Penninn
vera eina sérverslun með ritföng
hér á landi. Þar fæst allur skóla-
varningur, allt'frá blýöntum og
strokleðrum upp í ritvél, skrif-
borð og stóla. Verð á vör-
unum er að sjálfsögðu
mismunandi og talsvert margir
valkostir fyrir fólk, hvort sem
eyða á miklu eða litlu til
útgerðar hvers skólabarns.
Mr.$ketc/i
r4ffr
CotORfs
qii
1 y' ■- • jy i jP
Nemendur á grunnskólastigi fá
námsbækur sér að kostnaðar-
lausu, en þegar komið er upp í
níunda bekk þurfa nemendur að
fara að greiða fyrir bækurnar.
í verslun Pennans í Hallar-
múlanum er sérstök teiknideild,
þar sem áhugamenn og atvinnu-
menn geta fengið flest, sem til
þeirra hluta heyrir. Svokallaðir
lyktarlitir vöktu sérstaka athygli
Neytendamarkaðarins, en segja
má að þeir séu ef til vill meira
fyrir yngri aldursflokkana. Þetta
eru svokallaðir tússlitir, sér-
staklega meðfærilegir og
auðveldir í notkun. Þarna er
ekki um að ræða olíutúss,
þannig að auðvelt er að ná
litunum úr fatnaði og af
veggjum. Hver litur hefur sinn
ákveðna ilm, t.d. ilmar gulur
eins og greipaldin og það mun
ekki skaðlegt þótt þau allra
yngstu bragði í hrifningu á
herlegheitunum. Litina er ekki
hægt að taka í sundur nema
nota til þess beitt verkfæri. 8 litir
í kassa kosta 2.705 en 12 litir
2.620. Nokkuð dýrir en munu
vera mjög notadrjúgir.
Það sem mesta athygli vekur ■