Vikan - 13.09.1979, Side 63
Meðan bæði lifðu var
hann talinn fyrirvinna
Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að svara einni spurningu fyrir mig.
Maður og kona búa saman ógift í nokkur ár — svo deyr
maðurinn af slysförum við vinnu. Hann er líftryggður
vegna vinnu sinnar. Hver á aðfá líftrygginguna og úr
lífeyríssjóði hans?
Meðan bæði lifðu og unnu úti var hann talinn fyrirvinna
og þar af leiðandi fékk konan ekki atvinnuleysisstyrk, þótt
hún yrði atvinnulaus. En nú kemur líftryggingin hvergi
fram eftir því sem konan veit — og heldur ekki
lífeyrissjóður. Kveðja. S.O.S.
í 52. gr. laga nr. 67, 1971 um almannatryggingar segir að
eftir tveggja ára sambúð njóti fólk sömu réttinda til bóta og
ef um gift fólk væri að ræða. Tveggja ára reglan gildir þó
ekki ef sambúðaraðilar eiga börn saman eða eiga von á
barni, þá koma full réttindi strax.
I þessu tilviki hefði konan átt að fá ekknalífeyri eða
ekknabætur, eftir þvi sem við á, slysatryggingu og annað
það sem Tryggingastofnun ríkisins hefur innan sinna
veggja. Leiki einhver vafi á að svo hafi verið, ætti hún að
hafa samband sem fyrst við stofnunina, þvi sé þetta dregið
úr hömlu getur allt reynst erfiðara viðfangs.
Hvað lífeyrissjóðinn og líftrygginguna varðar gildir allt
önnur regla. Þar er sambúð ekki viðurkennd og því á hún
ekki rétt á greiðslum frá þeim aðilum, burtséð frá hversu
lengi sambúðin hefur varað.
Málaskóli
Kæri Póstur!
Eg er ekki í ástarsorg eða
vanfær eins og flestar stúlkur
sem skrifa þér.
En mér liggur á að vita svörin
við spurningunum sem hér
liggja og ég vona að Helga sé
södd þegar þér fáið þetta bréf.
Hér koma svo spurningarnar.
1. Hvað þarf maður að vera
gamall til að fara í málaskóla?
2. Er nauðsynlegt að hafa lokið
3. bekk?
3. Hvert snýr maður sér til að
sækja um skólann?
4. Hvað er námið venjulega
langt?
5. Hvar er málaskóli á Islandi?
Eg vona að þú getir svarað
spurningunum mínum. Með
fyrirfram þökk fyrir birtingu.
' Bless. 537
Talsvert betra hefði verið, ef þú
hefðir tekið fram hvaða máli þú
hefur áhuga á. Öll algengustu
tungumál eru kennd í mála-
skólum hérlendis og eru að
minnsta kosti tveir slíkir í síma-
skránni. Hringdu bara og þar
færðu upplýsingar um það, sem
þú hefur sérstakan áhuga á að
læra. Það eru allir aldursflokkar í
málaskólum, þú getur byrjað í
barnadeildum og flutt þig ofar
eftir því sem getan eykst. Engin
menntunarskilyrði eru sett fyrir
inngöngu.
Það væri allt í lagi að vinna
hérna ef glasabörnin væru
ekki alltaf grátandi ofan í
glösunum.
37- tbl. Vikan 63