Vikan


Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 5

Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 5
Gabrielli-Sandwirth. Það er 110 herbergja hótel í gotnesk-feneyskum stíl með innigarði, hagkvaemum og rúm- góðum herbergjum, duglegri og vingjarnlegri þjónustu. Sumarverðið er 22.000 krónur fyrir eins manns herbergi og 40.000 fyrir tveggja manna. Heimilis- fangið er riva degli Schiavoni 4110 og síminn 31580. Næst er Metropole, 64 herbergja hótel í nútíma útgáfu af klassiskum Feneyjastíl, með vel búnum herbergj- um, en of slakri þjónustu. Sumarverðið er 20.000 krónur fyrir eins manns og 26.000 krónur fyrir tveggja manna herbergi. Heimilisfangið er riva degli Schiavoni 4149 og siminn 705044. Þá er það Londra, 70 herbergja hótel, sem fer stöðugt batnandi. Sumarverðið er 20.500 fyrir eins manns herbergi og 31.500 krónur fyrir tveggja manna. Heimilisfangið er riva degli Schiavoni 4171 ogsiminn 700533. Siðan kemur Paganelli, sem áður var getið, 23 herbergja hótel, Heimilisfangið er riva degli Schiavoni 4687 og síminn 24324. Við hlið þess er Savoia, fullu nafni Savoia e Jolanda, 71 herbergis hótel með formlegu yfirbragði en nútima innrétt- ingum, mjög rólegt hótel með stórum herbergjum. Það er eina hótelið í þessari skrá, sem ekki hefur loftkælingu. Sumarverðið er 12.500 krónur fyrir eins manns herbergi og 20.500 krónur fyrir tveggja manna. Heimilisfangið er riva degli Schiavoni 4187 og síminn 706644. Þar við hliðina er Danieli, fína hótelið I Feneyjum, þar sem gista kóngar og prinsar. kardinálar og sendiherrar og auðvitað Hua formaður. Á þessu 246 herbergja lúxushóteli er þjónustuliðið nákvæmt og kurteist undir stjórn signor Barrelet, en kunnáttumenn telja hótelið samt siðra en Gritti og Cipriani. Sumar- verðið er 43.500 fyrir eins manns og Þess verður þú einnig að gæta á öðrum þeim hótelum, sem hér verða nefnd. Yfirleitt eru það bara fá herbergi, sem hafa hið dýrlega útsýni. Þau eru ekki dýrari en hin og þú heimtar slíkt sem ófrávikjanlegt skilyrði. Innréttingar á Monaco eru ákaflega snyrtilegar í léttum og björtum, frönskum stíl. Búnaður á baði er lýta- laus með öllu. Aðalatriðið er þó hinn mikli gluggi, sem opna má alveg upp á gátt. Fyrir utan streyma látlaust strætó- bátar, hraðbátar og gondólar, fullir af iðandi mannlífi. Og í bakgrunni eru svo hinar glæsilegu kirkjur á bökkunum andspænis, kirkjur heilags Georgs og Mariu guðsmóður. Ég horfði á þetta útsýni eins og dáleiddur i fjórar klukku- eins manns herbergi og 12.500 krónur fyrir tveggja manna herbergi, hvort tveggja á sumarverði. Ég hef ekki prófað þetta sjálfur, en i_k 100% mark á Tryggva. Ég veit Iíka, að hótelið er mikið sótt af listamönnum og að signor Paganelli er vingjarnlegur og þægilegur, því að ég hef hitt hann. En þvl miður heimtar hann, að gestir séu í hálfu fæði að sumarlagi, þegar hótelálagið er mest. Strandlengjan frá Flotasafni að Akademíubrú er annars þakin hótelum, sem hafa gott orð á sér og uppfylla skilyrði min um útsýni. Við skulum rekja þau lauslega frá austri til vesturs. Fyrir kónga og kardinála... Austast er Gabrielli, fullu nafni Svona aigldu Fanayingar skartkbaddk á skrautbétum til haiflurs Hua formanni. stundir samfellt yfir einu glasi af Brunello di Montalcino, stolti ítalskra rauðvlna. Ekki var siður notalegt að sofna og vakna við ljúft öldugjálfrið og hafa það á tilfinningunni, að húsið ruggaði á bárunum. Enda hef ég hvergi betur sofið en einmitt í Feneyjum. Og svo má ekki gleyma þvi, að hinn heimsfrægi Harry’s Bar er nákvæmlega þrjá metra frá and- dyri hótels Monaco. ... en Paganelli er ódýrt Þar sem við tslendingar erum orðin ein af lágtekjuþjóðum Vestur-Evrópu, viljum við auðvitað fá ódýrari gistingu en þetta. Kunningi minn, Trygve Ramberg, ritstjóri Aftenposten, var með fjölskyldu sinni I sumar á Paganelli, sem er á Schiavoni-bakka Markúsarlóns. Hann var mjög ánægður með bæði herbergi og baðherbergi. Þar kostar gistingin ekki nema 5.500 krónur fyrir 58.000 krónur fyrir tveggja manna herbergi. Heimilisfangið er riva degli Schiavoni 4196 og síminn 26480. ... og keisarann af Persfu Þá erum við komin að Markúsartorgi. Fyrsta hótelið, sem við komum að vestan þess, er Monaco, sem áður var getið, fullu nafni Monaco e Grand Canal, 80 herbergja hótel, heimilis- fangið er Calle Vallaresso 1325 og síminn 700211. Ekki er gengið frá ströndinni inn í hótelin, sem vestar eru, heldur frá göngugötunni, sem liggur til vesturs frá Markúsartorgi. Þar verður fyrst fyrir Bauer Grúnwald, 210 herbergja nýtt hús að framanverðu, en gamalt hús í Medici-stíl út að Stóraskurði. Þar ræður ríkjum signor Puppo og þar hafði keisarinn af Persíu hótelíbúð númer 212, meðan hann var og hét. Þú getur sjálfsagt fengið hana núna. En sumar- verð á venjulegu herbergi er 27.500 fyrir einn og 44.000 krónur fyrir tvo. Heimilisfangið er camposan Moise 1440 og siminn 707022. Næst er Europa, 140 herbergja hótel með fallegum garði, gott og endurbætt hótel undir stjórn signor Tirelli. Þar er sumarverðið 25.000 krónur fyrir einn og 38.500 fyrir tvo. Heimilisfangið er calle larga 22 Marzo 2159 og slminn 700477. Þá er það Regina, 65 herbergja hótel, endurinnréttað, ferskt og bjart. Regina hefur sama eldhús og Europa og heimtar, að gestir séu i hálfu fæði á sumrin. Sumarverð er 25.000 krónur fyrir einn og 38.500 krónur fyrir tvo. Heimilisfangið er calle larga 22 Marzo 2205 og síminn 700544. Loks er það besta hótelið í Feneyjum, hið margfræga Gritti, 91 herbergis hótel í 15. aldar höll, griðastaður Hemingways, Churchills, Aga Kahns, Karajans, Grétu Garbo og margra fleiri. Doktor Passante hefur tvo starfsmenn á hvern gest, enda er þjónustan frábær, kurteisi og matargerðarlist í hávegum höfðog gífurlegur lúxus á herbergjum. Þar er besta hótelsvíta í heimi, númer 110, upplögð fyrir nýríka íslendinga. En það er líka hægt að sitja bara fyrir utan barinn á skurðbakkanum og sötra te eða campari fyrir lítið verð. Venjulegt hótel- herbergi kostar á sumrin 47.000 krónur fyrir einn og 63.000 krónur fyrir tvo. Heimilisfangið er campo Santa Maria del Giglio 2467 og síminn 26044. Veldu eitthvert af þessum hótelum eða bara tjaldstæðið úti i Lido. Og það mun fara um þig notalegur fiðringur I hraðbátnum frá flugvellinum Marco Polo, — þegar kirkjuturnar Feneyja byrja að rísa upp úr haffletinum, — þegar þú siglir framhjá glergerðareynni Murano, — þegar þú kemur inn á Markúsarlón. Ekkert er hér eins og á öðrum stöðum I heiminum. ★ Jónas Kristjánsson I.tbl. Vlkans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.