Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 31
1
s
Opnuplakat
SILFURKÓRINN - VINSÆLASTI
KÓR LANDSINS
Ef miðað er við hljóinplötusölu er
Silfurkórinn vinsælasti kór landsins.
Með honum hafa komið út þrjár LP
plötur, Hvít jót, Tuttugu vinsœlustu lög
síðari ára og Rokk. rokk, rokk. Samtals
hafa þær selst í 22-23 þúsund eintaka
upplagi.
Silfurkórinn var gagngert stofnaður
til að syngja inn á plötur. Svavar Gests
útgefandi auglýsti eftir söngfólki I blöð-
unum og stór hópur gaf sig fram. Allt
kvenfólkið í kórnum hefur verið með frá
upphafi og helmingur karlanna. Allt er
þetta fólk upptekið I alls kyns störfum og
margir syngja i öðrum kórum. Því hefur
hópurinn næsta litið komið fram saman.
Það hefur raunar gerst aðeins einu sinni.
þegar Silfurkórinn flutti lög af plötunni
Rokk, rokk, rokk í sjónvarpi fyrr á þessu
ári.
Sami kórstjóri og útsetjari hefur
unnið nteð Silfurkórnum á öllum
þremur plötunum. Hann er Magnús
Ingimarsson, kunnur tónlistarmaður og
vel að sér I öllum tegundum tónlistar.
VIKAN innti Svavar Gests eftir þvi á
dögunum, hvort væntanleg væri ný
plata með Silfurkórnum. Hann kvaðst
vera að velta hlutunum fyrir sér; af
orðum hans mátti þó ráða að landsmenn
mættu alveg eins búast við fjórðu Silfur
kórsplötunni. hvert svo sem viðfangs-
efnið verður I það skiptið. Ef marka má
viðtökurnar á þremur fyrstu plötunum
er ekki ástæða til annars en ætla að hún
hljóti einnig góðar viðtökur.
1. tbl. Víkan 31
I