Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 43
dómur fyrir heilbrigt fólk. Oftast gengur
veikin yfir á einni viku, en menn geta
verið nokkuð langan tíma að jafna sig.
Eldra fólk, eða fólk með króniska sjúk-
dóma, getur farið illa út úr veikinni jafn-
vel svo að dragi til dauða. Það er því
fyllsta ástæða til að taka sjúkdóminn
alvarlega.
MEÐFERÐ
Bólusetningu gegn inflúensu hefur
verið beitt i nokkrum mæli. Aðallega
hefur öldruðu fólki, heilsulitlu og þeim
sem vinna mikilvæg störf, staðið slikt til
boða. Eitthvað mun einnig um að vinnu-
veitendur hafa fengið bólusetningu fyrir
starfsfólk sitt, ef nægt bóluefni hefur
verið til.
Ekkert meðal vinnur á inflúensuvirus,
en sömu verkjalyf og við kvefi koma aö
haldi. Lyfin lækka hitann og lina verki.
bað má líka nota sterkari verkjalyf en
venjulegar verkjatöflur, en fara með
allri gát, þvi hætta er á aukaverkunum
og að fólk verði háð sterkari lyfjum.
Langoftast er sjúklingurinn búinn að
ná sér eftir eina viku. Ef ekki, er þörf að
leita læknis. Það skaðar ekki að leita
hans fyrr — sérstaklega ef það gæti róað
fólk. Oftast gerir læknirinn ekki annað
en að staðfesta að þetta sé inflúensa og
veikin verði bara að hafa sinn gang. En
ef um aldrað fólk er að ræða og fólk með
króniska sjúkdóma, t.d. lungna-
sjúkdóma, er sjálfsagt að leita læknis
strax. Oft kemur fyrir að fólk fái lungna-
bólgu upp úr inflúensu og þá er þörf
skjótra aðgerða.
VÖRN GEGN
INFLÚENSU
Það er ekki mikið, sem við getum gert
til að forðast veikina. Fólk smitast t.d. :
hvernig svo sem það klæðir sig. Orsök
þess, að sumir sleppa við sjúkdóminn, er
mismunandi viðnámsþróttur. Maður
getur verið smitberi án þess að veikjast
sjálfur.
Þegar faraldur gengur er rétt að
forðast margmenni. Þeir sem óttast um
heilsuna geta gert sínar ráðstafanir. Þeir
sem veikjast eiga að vera heima, bæði
sjálfra sin vegna og annarra. Reynslan
hefur sýnt, að inflúensa gengur aðallega
íjanúarogfebrúar.
VEIKINDADAGAR
Eins og áður er sagt, er þess yfirleitt
ekki þörf að leita læknis, þegar um kvef-
pest eða inflúensu er að ræða. Læknar
eru yfirleitt störfum hlaðnir og oftast
óþarfi að ónáða þá — þó auðvitað séu
undantekningar á, eins og fram hefur
komið hér áður. Sumir þurfa að fram-
visa læknisvottorði á vinnustað og er þá
rétt að hafa samband við heimilislækni í
síma á fyrstu dögum veikinnar.
Varasamt er að fara of snemma af
stað eftir inflúensu, eftirköstin eru oft
verri en sjálf veikin. Það er sjálfsagt að
forðast óþarfa áreynslu og umsvif,
meðan verið er að jafna sig til fulls.
Hér áður fyrr dóu þúsundir manna af
völdum inflúensu — spánska veikin var
þar skæðust. Nú til dags er sjaldgæft að
veikin dragi fólk til dauða og er það fyrst
og fremst því að þakka, að fólk hefur
meira mótstöðuafl gegn veikinni. Bættur
hagur fólks hefur leitt til betri heilsu og
nú eru kunn lyf, sem geta dregið úr
veikinni og læknað fylgikvilla.
Inflúensufaraldur gengur oftast einu
sinni á ári og er veikin mismunandi
slæm. Það eru nú nokkur ár liðin síðan
verulega slæm inflúensa hefur gengið
hér. Fólk, sem er heilsulítið, er hvatt til
að láta bólusetja sig í tíma, þegar fréttist
af inflúensu. Efnið er vörn í 3 mánuði og
sfðan kann að vera þörf að endurtaka
ónæmisaðgerðina.
Mest lesna
tímarítáíslandi
samkvæmt
fjölmiólakönnun
Hagvangs.
m
l.tbl. Vlkan 43