Vikan


Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 12

Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 12
VIKAN og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta — Hvað táknar orðið húsgagna- arkitekt, — er það einhver sem eingöngu teiknar húsgögn eins og nafnið virðist bera með sér? — Því er þannig farið að frumherjar stéttarinnar völdu sér þetta heiti, — töldu ýmislegt annað vera húsgagn en borð og stól, — jafnvel að orðið húsgagn gæti verið samheiti svo margs á einu heimili. Þannig er það reyndar einnig meðokkar starf og þau verksviðsem það nær yfir. — Nú skilst mér að stétt ykkar sé orðin allfjölmenn, — er hugsanlegt að húsgagnaarkitektar hafi næg verkefni í svo fámennu þjóðfélagi? — Nei, þaðer tæplega mögulegt. Eins og menn vita, sem um húsgögn hugsa og fylgjast með islenskri húsgagnagerð, hönnun þeirra og framleiðslu, þá er líkt fariðað hvort tveggja er flutt til landsins niðurgreitt. — Hvað táknar þetta? — Meginhluti þeirra húsgagna og innréttinga sem flutt eru til landsins eru hönnuð af erlendum arkitektum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og rætt er um þegar staða íslenskrar húsgagna- og innréttingaframleiðslu er metin, er mikill hluti og jafnvel mestur hluti þessarar erlendu framleiðslu styrktur á einn eða annan hátt í heima- landi sinu. Innflutningur þessi dregur ekki síður úr atvinnumöguleikum okkar húsgagnaarkitekta en hann dregur úr framleiðslu innlendra fyrirtækja sem að iðngreininni starfa. — Hvað er um námið að segja? — Um námið er það að segja að þar til fyrir nokkrum árum var það skilyrði sett að væntanlegur nemandi hefði lokið námi sem sveinn í húsgagnasmíði og að því loknu unnið við fagið a.m.k. þrjú ár, eða sem samsvarar meistaraprófi. Fyrst að þeim tima liðnum þótti viðkomandi hæfur til að hefja framhaldsnám. Það er eingöngu hægt að stunda erlendis og að gefnu tilefni má taka fram að fleiri staðir en Danmörk koma til greina í því santbandi. Jón Ólafsson húsgagna- og innanhússarkitekt „Að stuðla að aukinni híbýlamenn- ingu með því að leiðbeina þeim fullorðnu og fræða þá ungu” HÚSGAGNA ARKITEKT I NÁMI OG STARFI — 1 hverju var nám þitt t.d. fólgið? — Námið var einkum fólgið í lærdómi margs konar teikniaðferða til að byrja með, rannsókn á tilurð hlutanna og gerð þeirra og síðan þjálfun í að meta nota- gildi og fagurfræðilegt gildi þeirra og raða þessu saman í réttum hlutföllum viðsköpun nýrra hluta. — Hafa inntökuskilyrði breyst og jafnframt námstilhögun? — Inntökuskilyrði hafa breyst i þá átt að nú er ekki lengur gerð krafa um að við- komandi hafi lokið námi í húsgagna- smíði og er það að vissu leyti miður. Stúdentspróf eða önnur samsvarandi menntun er nú skilyrði fyrir inngöngu. Námið tekur fjögur ár en uppbyggingu þess er háttað hliðstætt og áður. Meiri áhersla er þó lögð á jjátt verklegrar kennslu. — Hvar stundaðir þú nám? — Sjálfur sótti ég til Kaupmanna- hafnar til náms eftir að hafa lokið sveinsprófi í húsgagnasmíði hjá Helga Verðlaurmlampi, hannaflur af Jöni Ólafmsyni og Pétri B. Lútherssyni. Skólaverkefni fré érinu 1962. 12 Vikan 1. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.