Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 14
VIKAN og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta:
Húsgagna-
arkitekt
í námi
og starfi
borgina á leið út á flugvöll þaðan sem
ferðinni var heitið til starfa á íslandi, þá
voru barnahúsgögnin okkar á mest áber-
andi stöðum í öllum húsgagnaversl-
unum Kaupmannahafnar. En þá, eins
og nú, virðast þeir fullorðnu hafa haft
meiri áhuga á stássstofuumhverfi frekar
en umhverfi barna sinna. Það reyndist
ekki vera grundvöllur fyrir framleiðslu
húsgagnanna og einungis fáir fengu
tækifæri til að sjá þau .vaxa með
börnunum.
— Hvernig hefur svo starfið gengið
eftir að heim kom?
— Er heim kom hélt brauðstritið
áfram. Hinn eiginlegi vinnudagur
lengdist og þörfin fyrir að leggja hönd á
plóginn á fleiri vígstöðvum jókst.
Verkefnin voru flest á sviði innréttinga
fyrir einstaklinga, félög eða stofnanir.
Þessu samfara vann ég mikið fyrir félag
okkar, Félag húsgagna- og innanhúss-
arkitekta. Undirbúningur og þátttaka i
sýningu húsgagnaarkitekta 1968,
sem við Pétur tókum sameiginlega þátt
í, er mér minnisstæður frá þessum árum.
Á árinu 1972 var mér falið að hanna
orlofshús ásamt öllu innanstokks í landi
Svignaskarðs í Borgarfirði fyrir Iðju,
félag verksmiðjufólks í Reykjavík. Þetta
verkefni hefur verið mér afar kært
einkum vegna einstaklega góðrar
samvinnu við forráðamenn félagsins og
þeirra nánu tengsla við náttúruna sem
verkefnið bauð upp á. Bæði hús og hús-
búnaður var sérhannað og húsin
nánast látin spretta upp á milli kjarrsins
i landinu.
1 ársbyrjun 1973 stofnuðum við
Guðmundur Þór Pálsson arkitekt
teiknistofuna Arkhönn sf. Verkefni
okkar hafa einkum verið fyrir ríki og
sveitarfélög, þ.e.a.s. á sviði hönnunar
stærri bygginga s.s. skóla, sjúkrahúsa
o.þ.h. 1 því sambandi mætti nefna
sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum auk
endurbyggingar þess sem þurfti eftir
gosið. Þá má einnig nefna gamla sjúkra-
húsiðsem breytt var í ráðhús.
Nú vinnum við m.a. að hönnun Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, Seljaskóla,
endurbyggingu Sundskála Svarfdæla,
sem er elsta yfirbyggða sundlaug
landins, auk margra annarra verkefna.
Eins og sjá má af framantöldu þá
skortir ekki verkefnin. Því er jafnframt
Álstóll, hannaður 1968 af Jóni
Ólafssyni og Pótri B. Lútherssyni.
Erlandar fyrirspurnir bárust en
ekkert hefur orðið af framleiðslu
enn sem komið er.
þannig varið með hönnuði að verk
þeirra fylgja þeim um aldur og ævi líkt
og börn mæðrum sínum. Starfið er
lifandi og fjölbreytt og krefst þess einnig
að fylgst sé vel með öllum nýjungum.
Vinnudagurinn er oft erilsamur og
langur, við þurfum stundum að geta
brugðið okkur í gervi sáttasemjarans eða
sálfræðingsins auk hinnar eiginlegu
hönnunar.
Til að auka og bæta hibýlamenningu
hér á landi tel ég markmiðin vera: Að
stuðla að bættu fagurfræðilegu mati
einstaklingsins á umhverfi sínu. Að
stuðla að aukinni híbýlamenningu með
þvi að leiðbeina þeim fullorðnu og fræða
þá ungu.
Mest lesna
tímarít á Islandi
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Hagvangs.
VUSM
14 Vikan 1. tl