Vikan - 03.01.1980, Blaðsíða 6
Sennilega liggja fáar
spurningar fólki jafn-
brennandi á hjarta um
hver áramót og sú, hvað
hið nýja ár kunni að bera
í skauti sér. Að vanda
hefur völva Vikunnar
tekið að sér að svara
þessu eftir bestu getu.
Og þeir sem fylgst hafa
með spám hennar á
undanförnum árum hafa
reynslu fyrir því að sú
hin forvitra er furðu
nösk á framtíðina. T.d.
spáði hún m.a. í fyrra:
Veturinn verður
snjóþungur og hætta er
á snjóf lóðum ...
íslenskur tónlistar-
maður nær góðum
árangri á erlendum vett-
vangi...
Vandamál fólks með
geðræna sjúkdóma
verða mjög á döfinni...
Stórfenglegt eitur-
lyfjamál kemur upp á
VOLVUSPA VIKUNNAR:
HVAÐ
GERIST
ÁRIÐ
1980?
Stórfenglegt eiturlyfja-
mál kemur upp á árinu .. ■
Aðgerðir í sambandi
við húsf riðunarmál...
Afgerandi tíðindi í íran...
í Uganda dregur til
tíðinda...
Trudeau fellur...
Sænsku konungshjón-
in eignast son í sumar..
En hvað um það,
ætlunin er ekki að tí-
unda gamla spá, heldur
vindum við okkur beint
að efninu: Hvernig
reynist árið 1980 okkur?
Ef frómt skal frá segja
var völvan ekkert
sérlega hress með að
leysa úr spurningum
okkar og var ekki laust
við að þunglyndisbar-
lómur fjölmiðlanna
hefði haft sín áhrif á
hana engu síður en aðra
landsmenn. En kannski
e/ það bara af því að þeir
hafa alveg rétt fyrir sér.
— Æi, þetta er alltaf sama
þófið, tjáði völvan okkur mæðu-
lega. — Ég get ekki séð að þjóð-
félagsmálin hjá okkur taki
neinum stökkbreytingum til
hins betra, síður en svo. Ég er
orðin hundleið á því að vera nei-
kvæð, en því miður er lítið gagn
að því þó ég reyni að betrum-
bæta staðreyndir með því að.
segja þveft um h'úg mér.
Eftir að hafa sannfært hana
um að hún yrði ekki látin sæta
ábyrgð á hinni hallandi þjóðar-
skútu fremur en aðrir, féllst hún
þó á að svara fyrstu spurning-
unni:
— Hver verður hagur þjóðar-
innar á því herrans ári, 1980?
— Þrátt fyrir góðan vilja
hinnar nýju ríkisstjórnar til að
halda í skottið á verðbólgunni
hafa þeir því miður ekki erindi
sem erfiði. Það er ekki meira en
svo að þeim takist að halda
henni nokkurn veginn í horfinu.
Langþreyttur almenningur mun
að visu sýna nokkra þolinmæði
fram eftir vetri en svo springur
blaðran. Skærur verða á vinnu-
markaðinum og stjórnar-
samstarfið gengur ekki of vel.
Reyndar skyldi mig ekki undra
þótt efnt yrði til nýrra kosninga
áður en kjörtímabili lýkur.
— Staðan í efnahagsmál-
unum verður þess valdandi að
þeim fjölgar mjög sem freista
þess að flýja land. Og ég held að
við ættum að hætta að gera grín
að frændum okkar, Færeying-
um, því ég sé ekki betur en að
margir leiti þangað. Einnig mun
fólk leita til Kanada meira en
áður og treysta á fyrirgreiðslu
fólks af íslensku bergi brotnu.
— Hvernig heldurðu að viðri?
— Veturinn verður kaldur en
þó ekki jafnsnjóþungur og for-
veri hans. Hann verður storma-
samur, jafnvel svo að tjón hlýst
af. Töluvert verður um slys á
fólki og ég sé ekki betur en þar
beri eitt öðrum hærra sakir
mannskaða.
— Vorið lofar góðu en ekki
held ég að við ættum að hrósa
happi of snemma hvað sumarið
snertir.
— Hvað með aflabrögð og
landbúnað?
— Þar má nú kannski segja
að fátt sé svo með öllu illt . . .
Fiskafli verður betri en fólk
þorði að gera sér vonir um. Hins
vegar mun þrengjast mjög um á
fiskmörkuðum í Bandaríkjunum
og lögð verður mikil áhersla á að
leita nýrra markaða.
— Það heldur áfram að
standa styrr um landbúnaðinn
og ég sé ekki betur en að
búskaparháttum verði breytt að
nokkru, að minnsta kosti ef við
lítum á áratuginn í heild. T.d.
6 Vikan I.tbl.