Vikan


Vikan - 03.01.1980, Síða 7

Vikan - 03.01.1980, Síða 7
„Langþreyttur almenningur mun að vísu sýna nokkra þolinmæði fram eftir vetri en svo springur blaðran. Skærur verða á vinnumarkaðinum og stjórnarsamstarfið gengur ekki of vel." Ekki er það g/æsilegt. Hér sést almenningur bíða eftir því að fá keypta mjólk í verkfalli fyrir nokkrum árum. „.. . þeim fjölgar mjög sem freista þess að fíýja land. Og við ættum að hætta að gera grín að frændum okkar Færeyingum, því ég sé ekki betur en að margir leití þangað." „ Veturinn verður kaldur . . . Hann verður stormasamur, jafn vel svo að tjón h/ýst af." verður lögð meiri áhersla á grænmetis- og alifuglarækt. — Hverju spáirðu um forseta- kosningarnar? — Vegna erfiðrar stöðu innanlands verður lagt hart að núverandi forseta að halda áfram. Ólafur Jóhannesson sest í helgan stein og fer ekki í framboð. — Hvað með Albert? — Hann verður ekki forseti. — Verður þetta mikið afbrotaár? — Smáglæpir aukast töluvert eins og t.d. fjárdrættir og skatt- svik, a.m.k. þeir sem kemst upp um. Fíkniefni verða mjög í brennidepli og þá sérstaklega „. .. ég sé ekki betur en að búskaparháttum verði breytt að nokkru, að minnsta kosti ef litíð er á áratuginn í heild. T.d. verður lögð meiri áhersla á grænmetis- og alifuglarækt." innflutningar á sterkari efnum. íslendingar biandast í eitt stór- málið í viðbót. Og ég sé ekki betur en að eitthvað komi fram sem beinir athyglinni aftur að Geirfinnsmálinu. — Hvernig mun Flugleiðum vegna? — Flugmenn munu reynast t>eim þungir í skauti og rekstur- inn verður síður en svo auðveld- ur. Samt spái ég því að Eyjólfur hressist nokkuð en það verður ekki fyrr en þeir hafa tekið ákvörðun sem mun í fyrstu valda þeim miklum óvin- sældum. Töluvert verður um breytingar á Norður-Atlants- hafsfluginu. — Er það eitthvað fleira sem þú vilt taka fram um innlend málefni? — Já, ég spái miklum átökum innan Sjálfstæðisflokksins, X.tbl. Vifcan7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.