Vikan - 03.01.1980, Page 13
Sundlaug i Fjölbrautaskóianum í Breióholti. Vaggskraytlngar eftir Hildi Hákonardóttur og Þorbjörgu Höskuldsdóttur. Hönnun: Arkhönn.
Hluti af Baby-Teen húsgögnum Jóns
Ólafssonar og Péturs B. Lúthers-
sonar. Baby-Teen húsgögnunum var
ætlað að fylgja börnunum frá vöggu
til fullorðinsára. Ekki reyndist grund-
völlur fyrir framleiðslu þeirra.
Einarssyni. Ég settist síðan á skólabekk
sumarið 1961 eftir að hafa tekið
inngöngupróf í skólann. Námið tók þrjú
ár.
1 skólanum var unniö að ýmsum verk-
efnum eins og ég sagði áður.
Samkeppnir voru haldnar og var hlutur
okkar íslendinganna ekki síðri en hinna.
— Hafðir þú tækifæri til þess að
starfa í Danmörku að námi loknu?
— Að loknu námi var ég búsettur i
Kaupmannahöfn ásamt konu minni,
Ingibjörgu Árnadóttur hjúkrunar-
fræðingi og tveimur börnum okkar sem
þarfæddust.
Á daginn vann ég á teiknistofu við
ýmis störf s.s. innréttingateikningar í
dönsku ferjurnar sem ganga á milli
Kaupmannahafnar og Oslóar. en á
kvöldin, um helgar og jafnvel um nætur
unnum við félagarnir Pétur B. Lúthers-
son að þróun og teikningum ýmissa hús-
gagna og lampa. Á ýmsu gekk, það
skiptust á skin og skúrir, en þessi ár voru
okkur barnaár likt og það sem nú er
nýliðið. Við unnum þá að húsgögnum
sem gætu fylgt barninu, eða börnunum
frá vöggu til fullorðinsára. Húsgögn
þessi nefndum við BabyTeen.
Húsgögnin virtust fá góðan byr og ég
man að þegar við keyrðum gegnum
I. tbl. Vikan 13