Vikan


Vikan - 03.01.1980, Page 18

Vikan - 03.01.1980, Page 18
Sönn frásögn Nóttin langa Nú komst ekki annað að i huga mér en að við yrðum að reyna að halda á okkur hita. Okkur hafði tekist að kveikja eld og halda honum lifandi með bensín- lekanum af flugvélinni. Það var erfitt, og nú var flöktandi eldsloginn að deyja út. „Jay,” hrópaði ég upp yfir mig. „Steinarnir! Þeir halda í sér hita. Við getum troðið þeim í vasana til að halda hita á höndum okkar, og við getum staflað upp grjóti við fætur okkar.” Ég fann lykt af sviðnandi holdi Ég tróð mér inn um litlu farangurs- dyrnar á flugvélinni, henti út ýmsu laus- legu, sem yrði bara fyrir okkur, og reyndi að búa svo um, að sæmilega mætti fara um okkur um nóttina. Við yrðum nánast að standa með fæturna i stélinu, og við yrðum að hnipra okkur saman, eins og við gætum, því ískalt næturloftið léki um okkur gegnum rif- una, sem komið hafði á búkinn. „Við verðum að stafla eins mörgum steinum og við getum f stélið,” sagði ég, um leið og ég klöngraðist út. „Við ættum að komast þarna fyrir basði, en við verðum að hlaða heitum steinum í kringum okkur. Ef til vill er það eina von okkar til að þrauka af þessa nótt.” Jay ansaði ekki, og hann hreyfði sig ekki. Ég stillti mig um að hreyta i hann ónotum. Mér fannst ég hefði átt að geta reitt mig á hann, en ailan timann siðan áreksturinn varð hafði hann virst sinnu- laus og ófær um að taka ákvarðanir. Ég fálmaði í kringum mig í myrkrinu eftir heitum steinum. Ég fann lykt af sviðnandi holdi og kenndi stingandi sárs- auka i lófunum, en ég beit á jaxlinn og hélt áfram ætlunarverki mlnu. Vinstri handleggurinn var greinilega brotinn, en einhvern veginn tókst mér að koma nokkrum steinum inn i stél flugvélar- innar. t hvert sinn sem ég bætti við nýjum steini, fann ég, hvemig vélin kipptist til, og ég velti því fyrir mér, hversu mikið hún þyldi, áður en hún rynni aftur á bak niður urðina. Ég hnipraði mig saman i stél- botninum, og i fyrsta skipti i heila eilifð, að þvi er mér virtist, leið mér nú næstum þvi vel. Steinarnir höfðu yljað álhreiðrið mitt. Jay olli mér miklum áhyggjum „Jay,” kallaði ég. „Það er bara hlýtt og notalegt hérna. Troddu þér inn til min.” Auðvitað yrði skelfing þröngt, en hitinn frá likama hans yrði til bóta. Jay svaraði ekki. Mér þótti liklegt, að hann hefði kúrt sig niður við þann yl, sem enn væri að fá úr nokkrum steinum 18 Vikan 1. tbl. þarna úti, og ég kallaði út til hans: „Jay, réttu mér nokkra steina i viðbót.” „Nei . . .” sagði hann og eitthvað meira, sem ég heyrði ekki, en nú var mér nóg boðið. „Andskotinn hafi það, Jay, þú drepur þig ekki á þvi að rétta mér nokkra. steina.” Ég þagnaði, þegar ég heyrði, að röddin var orðin grátklökk. Stilltu þig nú, hugsaði ég. Svo heyrði ég Jay brölta inn í flug- vélina að framan. Mér'ér ékki ljöst, hvað það tók langan tíma að stafla sex steinum i viðbót í stélið. Mér fannst það taka heila eilífð, en það var þess virði, þvl hitaaukningin var greinileg. Loftið i þessu byrgi var næstum því hlýtt, og ég fann til ánægju yfir þvl, sem ég hafði gert. Ég dró silki- slæðuna mina yfir andlitið á mér og hnipraði mig saman. Lauren, sagði ég við sjálfa mig, þú hefur staðið þig vel. Það var einmitt það, sem mér fannst. Ég hafði staðið mig vel, miðað við Eigin frásögn Laurenar Eldon af flugslysi, sem hún lenti í ásamt tveim- ur öðrum, og þeim ógnum, sem á eftir fylgdu. kringumstæður og þann útbúnað, sem við höfðum. Jay olli mér hins vegar miklum áhyggjum. Mér var farið að finnast ég eiga að bera ábyrgð á honum, og mér þótti það miður. Ég skildi hann ekki. Hann hafði lifað af áreksturinn, hann var fær um að bera sig um, og þó vildi hann ekki hjálpa mér á neinn hátt. Og nú fannst mér ég verða að hjálpa honum. Kannski mótaðist afstaða mín af því, að ég var svo viss um, að ein kæmist ég ekki lífs af. Við ætluðum aö lifa þessa nótt af saman. Ég kallaði til hans að koma og leggjast hjá mér. Það tók hann langan tíma að troða sér niður í holuna til mín. Mér varð hugsað til þess, þegar ég horfði á hann sveifla sér léttilega inn í flugmannssætið um morguninn. Ég hafði dáðst að liðlegum líkama hans. Nú var lftið eftir af þeim glæsileika. „Skórinn þinn!” hrópaði ég upp yfir mig. „Hvað er orðið af skónum þínum?” „Það skiptir engu,” tautaði hann og virtist standa á sama, þótt hann hefði misst annan skóinn. En hann gæti misst fleira en skóinn, hann gæti misst nokkrar tær, jafnvel fótinn. Guð minn góður, hvernig átti ég að gera honum ljóst, hversu alvarlegt þetta var? „Vertu ekki að þessu nöldri,” tautaði hann ergilegur. Hann var á stöðugu iði að reyna að koma sér þægilega fyrir. Ég hafði hugsað mér, að við hnipruðum okkur þétt saman og löguðum líkamina hvorn að öðrum til þess að nýta sem best hitann hvort frá öðru og steinunum. Ég hefði mátt vita betur. „Við megum ekki sofna” Jay gat með engu móti legið kyrr. Hann skipti um stellingu í sífellu, og ég fann, hvernig litla flugvélin sviptist til eftir hreyfingum hans. Ég var skelfingu lostin. „Hættu þessu brölti,” æpti ég, „þú drepur okkur með þessu.” Hann kyrrðist stundarkorn, en áður en langt um leið byrjuðu sömu lætin aftur. Allt í einu fann ég, að hann tróð hendinni undir jakkann minn, og svo fann ég kalda fingur hans á nöktu hörundi minu undir pilsinu. FÖRUNAUTUR ÞEIRRA VAR DAUÐINN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.