Vikan


Vikan - 03.01.1980, Page 25

Vikan - 03.01.1980, Page 25
hélt hún. Þú ert sætur og góður eins og þú ert. Vertu bara svona eins og þú ert. Svona svaraði hún ævinlega og svona leið veturinn, en hann var viss um að Dúddu þætti vænt um hann, svo viss sem hann var um sínar tilfinningar. Hann vildi alltaf eiga hana — alltaf, þó þau væru svona ung núna, hann vissi upp á hár hvað hann vildi. Þetta var hans fyrsta ást og þetta yrði sú síðasta. Dúdda mundi alltaf verða sú eina. Veturinn leið, vorprófin komu. Hann reyndi að lesa, hann mætti ekki falla á vorprófinu, því hann ætlaði að læra og verða eitthvað — eitthvað mikið fyrir Dúddu. Við og við gat hann einbeitt sér, einn i næði í herberginu sinu. Dúdda naut aðstoðar Gurriar og stóð sig nógu vel og er prófin stóðu sem hæst hittust þau minna og minna, þvi að nú var nóg að gera og allir að nota tímann til próf- lestrar. Hann komst að því að hann hafði lært allt of lítið yfir veturinn og hversu mikið hann þurfti að leggja á sig til að læra hverja námsgrein vel til prófs og það mátti Matti eiga að nú las hann. Góðar prófeinkunnir skyldi hann fá fyrir Dúddu. Hann skyldi sýna henni hvers hann væri megnugur, en það var oft erfitt að festa hugann við námsbækurn- ar, þegar hugurinn var allur hjá þessari elskulegu stúlku. Dúdda og Gurrí eru á kafi í lestri. Hann hringdi og Dúdda var ekki heima. Hann hringdi til Gurriar en Dúdda var ekki þar, sagði Gurri. Éger að lesa, sagði hún, hvernig gengur þér. Biddu Dúddu að hringja þegar hún kemur. Dúdda hringdi ekki til hans þennan daginn, ekki daginn eftir. Þá fór hann heim til hennar. Mamma hennar sagði að hún væri hjá Gurri. Þangað fór hann, Gurrí kom til dyra. Nei, nei, Dúdda er áreiðan- lega heima að lesa, sagði hún, hún hefur ekki komið hér i dag. Ó, hvað hann var þreyttur og leiður, vonsvikinn. Það var eins og Dúdda væri að forðast hann. Hvað hafði breyst milli þeirra? Hann hafði ekki séð hana svo óralengi, víst ekki í eina 3 sólarhringa samfleytt. Hún sem alltaf sagði: Vertu eins og þú ert, þú ert svo sætur og góður, og allt svoleiðis. Hann mundi allt svo vel. Prófin voru búin. Matti sótti próf- skírteinið sitt, ágæt frammistaða. hól frá kennaranum. Greinilega góð ástundun við próflestur, getur orðið hörkunáms- maður. Hann var ánægður. Dúdda gekk fram, tók við sínu prófskirteini, falleg var hún, blíð og brosandi í þröngu galla- buxunum og þunnri blússu. Ljósa hárið lék laust niður um axlirnar. Hún gekk þarna fram hjá honum, brosti sínu alfall- egasta brosi, hún hafði ekkert breyst. Hann beið hennar fyrir utan skólann, þar sem þau voru vön að hittast allan veturinn. Þarna kom hún en hún var ekki ein. í fyrsta lagi var hlussan hún Gurrí með henni og ekki nóg með það, bróðir hennar Gurriar, þessi hjassalegi, dökkhærði strákur með Travolta- klippinguna og í svörtum, þröngum buxum og jakka, þrátt fyrir aukakílóin, hélt í höndina á Dúddu. Þau hlógu og mösuðu hvert upp í annað og öllum fannst þeim tilveran sýnilega dásamleg. Matti sneri sér að húsveggnum, þóttist vera að leita að einhverju i vösunum, meðan þau fóru fram hjá. Þau tóku ekki eftir honum og hann heyrði Dúddu segja: Mikið svaka er gott að vera búin i skólanum. O, hvað ég hlakka til að fara með mömmu ykkar og pabba norður og hugsa sér að vera fyrir norðan í heilan mánuð, og hér sem alltaf rignir. Þar hafði Matthias það. Dúdda, yndið hans, var töpuð í þennan líka tröllkall. Dúdda, Dúdda, hvers vegna? Hvað hafði hann, það sem ég hef ekki. Matti gekk hægt af stað heimleiðis, best að sýna mömmu árangur lestursins i tölum. Sú yrði glöð. Dúdda þetta fífl, eða fituhlunkarnir, systkinin sem héngu utan i henni. Hann stansaði aðeins áður en hann kom heim að garðshliðinu og þurrkaði nokkur stór, þung tár, sem runnu niður kinnar hans. Mamma skyldi ekki sjá tárin hans, enginn skyldi sjá þau. Það skyldi enginn sjá hann grenja út af stelpu — hann sem var orðinn 12 ára og þó aldrei nema hún Dúdda væri að verða þrettán var hún ekki tára virði. Hann Matthías Guðmundsson snýtti sér, rétti úr sér og gekk rösklega inn úrdyrunum heima hjá sér. Hann varfrjáls. Sögulok. Eftirmáli: Þessi saga er það léleg að blaðið sem birti gömlu söguna mína fyrir áratug endursendi mér hana. Ég fékk sem sagt þann dóm að ég væri ekki ritfær, sögu- þráðurinn væri ekki nógu líflegur, engin spenna i sögunni og fleira var nefnt neikvætt. Og ég sem hélt að það þyrfti hvorki upphaf né endi í sögum nú til dags. Svona fór það nú og ég er hætt við aðgramsa í kvæðadraslinu minu, sem ég hnoðaði saman hérna á árunum með hjálp bragfræði, málfræði og fleiri góðra bóka. Langur timi líður sjálfsagt þar til ég áræði að hefjast handa með stóru skáldsöguna, en það eru nú til fleiri vikublöð en þetta, sem tók opnum örmum við fyrstu ritsmið minni, svo við sjáum hvað setur. Missið bara ekki vonina, lesendur góðir. 1. tbl. Vikan 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.