Vikan


Vikan - 03.01.1980, Síða 34

Vikan - 03.01.1980, Síða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst SÆLIR ERU SYFJAÐIR Það var allt hljótt á skrifstof- unni nema hvað flugurnar suðuðu í gluggakistunum og sleiktu sólskinið. Bókhaldarinn sat dottandi yfir höfuðbókinni, skrifstofustjórinn sat með höfuðið á milli handanna og steinsvaf, auglýsingastjórinn lá hrjótandi yfir auglýsingu sem átti að birtast daginn eftir í kvöldblöðunum og ungu skrif- stofustúlkurnar hrutu kvenlega við sjálfvirku skrifstofutólin sín. Af og til slógu þær þó einn og einn staf inn á vélarnar. En allt í einu gelti kalltæki skrifstofu- stjórans ógurlega. Hann rauk upp, leit ruglaður í kringum sig, lagfærði gleraugun, sem höfðu sigið niður á neðri vör, og teygði sig siðan svefndrukkinn eftir isvartakkanum. — Halló, muldraði hann um leið og hann reyndi að bæla niður geispa sem var alveg kominn upp í kok. Það var forstjórinn sjálfur. — Ég þarf að tala við fröken Mortens. Er hún þarna? Skrifstofustjórinn gat ekki lengur haldið geispanum i skefj- um, hann teygði vel úr sér og geispaði síðan svo herfilega að hann hefði auðveldlega getað gleypt feita flóðhestinn úr dýra- garðinum ef sá hefði fyrir tilviljun átt leið framhjá. — Fyrirgefið hvað ég er syfjaður, herra forstjóri. Ég steinsvaf þegar þér hringduð — hvern vilduð þér ná í....? — Fyrirgefðu, Madsen minn, ég hef líklega ýtt á vitlausan hnapp, ég ætlaði ekki að vekja þig. Ég er eitthvað hálf dasaður í dag. Madsen skrifstofustjóri lagði tólið á. Svo sat hann smástund og hristi þungt höfuðið, sveigði sig og beygði, geispaði síðan aftur, ekki minna en í fyrra skiptið, stóð upp og gekk yfir í hinn enda skrifstofunnar. Þar klappaði hann ofurvarlega á axlirnar á fröken Mortens sem lá flöt á skrifborði sínu. — Þú átt að fara inn til forstjórans og taka niður bréf, fröken Mortens. Fröken Mortens hreyfði sig ekki. Hún svaf. Hún lá fram á skrifborð sitt eins og hún hefði engar ráðagerðir um að vakna næstu 100 árin eða svo. Skrifstofustjórinn hristi hana til. — Guð ... hva .., sagði hún rugluð og strauk ljósa lokkana frá augunum . . . hvar er ég? — Nú, það ert þú, herra skrifstofu- stjóri! Ég svaf svo fast og dreymdi dásamlegan draum — Henrik prins held ég að það hafi verið. — Þú átt að fara inn til forstjórans. Fröken Mortens teygði sig rólega ofan i tösku sína og náði i varalitinn, smurði honum á varirnar og sneri sér síðan að skrifstofustjóranum. — Nú ætti ekki neinn að sjá að ég hafi verið sofandi, eða hvað? Skrifstofustjórinn svaraði engu. Hann stóð með lokuð augun og vaggaði fram og til baka. — Nei, þetta gengur ekki, herra skrifstofustjóri. Þér getið Stjörnuspá llruiurinn 21. nuirs 20.april Nýja árið byrjar hjá þér af miklum krafti og eld- móðurinn kemur mörgum ættingjum þínum á óvart. Farðu varlega i allar stór- ákvarðanir því hugsun þín er ekki nægilega rökrétt í bili. Ef feimninni er einu sinni visað á bug mun sigurinn vís og það er fremur ræfilslegt að láta undan eigin aumingja- skap. Nýjar og ferskar hugmyndir verða ekki framkvæmdar án átaka. YiuliA 2l.iipríl il.maí Löngu liðin sorgarsaga skýtur upp kollinum og nú verður lifsreynslan, sem þú öðlaðist á þeim tíma, þér til ómetanlegs gagns. Gættu þín á að einangrast ekki um of frá kunningjunum. Sporðrirckinn 24.okl. !Miiói. Þörfin fyrir aðdáun annarra rekur þig til ýmissa athafna sem draga slæman dilk á eftir sér. Illt umtal hefur mikil áhrif á sálarlíf þitt og nausyn að þér lærist að leiða það hjá þér. Ttibuntrnir22.mai 2l.júni Óþarfa viðkvæmni í ákveðnu máli getur komið sér mjög illa og þú skalt gera þér grein fyrir að tíminn læknar öll sár, þetta árið sem önnur. Sökktu þér nú um tíma niður í skyldu störfin. Hngniiiðiiiinn 24.nói. 2l.dcs Gerðu þér ljóst að í mörgum tilvikum getur enginn utanaðkomandi hjálpað þér og svo getur einmitt verið um núverandi ástand. Hertu upp hugann, árið verður þér happadrjúgt. kr litiinii 22.júni J.Vjúli Erfiðleikar steðja að í byrjun þessa árs en þú stendur þig með prýði. Skynseminsegirþérað blanda ekki öðrum í ;málið. Það reynist siðar rétt vera og betri dagar renna upp. Sluingcilin 22.dc\. 20. jnn. Byggðu upp líf þitt frá áramótum á alveg nýjum grunni og minnstu þess að ekkert er unnið við að stinga höfðinu í sandinn. Sannlcikurinn er yfir- leitt sagna bestur. Lánið leikur við þig og heppni þín virðist einstæð. Athafnir þínar stjórnast að einhverju leyti af þessari staðreynd og eftir skamman tíma rennur upp fyrir þér ástæðan fyrir þessu öllu. Tainsbcrinn 2l.jan. lú.fcbr. Eyddu ekki miklum tima í umhugsun því óvæntir atburðir virðast ætla að fara fram úr þínum djörfustu vonum. Gríptu gæsina meðan hún gefst, því ekkert ástand varir að eilifu. Skriður er kominn á eitthvað sem þér hefur fundist dragast nokkuð lengi. Þú ert með hugann fullan af nýjum og ferskum hugmynd- um, sem þyrftu helst að komast í fram- kvæmd án tafar. Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars Árið verður fremur ánægjulegt ef dæma má eftir ágætri byrjun. Það er þitt að ákveða á hvern máta þú vilt nýta þau tækifæri sem gefast og varasamt er að setja markið of hátt. 34 Vikan I. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.