Vikan


Vikan - 03.01.1980, Side 39

Vikan - 03.01.1980, Side 39
ætlað pláss. Við megum ekki hlaða í kringum okkur hlutum, sem við erum hrædd um að barnið skemmi. Við eigum að komast hjá óþarfa árekstrum í daglegri umgengni okkar og barn- anna. Ef við erum alltaf á verði, erum sífellt að banna þeim þetta eða hitt, þreytir það báða aðila. Börn, sem alast upp í þéttbýli, verða fyrir geysimiklu álagi dag hvern. Það er svo margt að sjá og heyra. Þau eru í stöðugum hávaða frá umferð og vinnuvélum, á leikvöllunum og dagvistunarstofnunum. Það er hávaði utan við húsin þeirra, í stigagöng- unum og á heimilunum frá útvarpi og sjónvarpi og hinum ýmsu heimilis- tækjum. Það skal því engan undra þó börnin séu geðill, þreytt og stúrin að kvöldi. Barniðvill ekki fara í rúmið á kvöldin, það finnur ekki ró í sínum beinum og þarfnast fyrst og fremst að setjast í fangið á foreldrum sínum til að öðlast jafnvægi og ró. Það þarf að vera kyrrð og ró á heimilunum til að vega upp á móti hinu eril- sama lífi barnsins í þétt- býlinu. Börnin verða fyrir marg- vislegum áhrifum af umhverfi sínu, en ekki alltaf þeim áhrifum sem þau þarfnast til að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við þurfum að sjá til þess, að í umhverfi barns- ins séu þær stærðir, sem það getur kannað sjálft án þess að slíkt skapi hættur og valdi árekstrum. Frá okkar eigin bernsku minnumst við t.d. spenn- andi háalofts eða kjallara, sem fullur var af músum. Það var margt sem þá gat ýtt undir hugmyndaflugið. Barn, sem býr t.d. í fjöl- býlishúsi, hefur e.t.v. ekki grun um hvað háaloft eða kjallari er. Við höldum kannski að börnin fái þá reynslu sem þau þarfnast með lestri spennandi teiknimyndabóka eða úr barnatímum sjónvarps og útvarps. Hvaða áhrif hafa allar þessar skrautlegu mynda- bækur á börnin okkar? Og hver áhrif hefur setan framan við sjónvarpið? Þola börnin (Dessa eilífu áreitni? Skemmtun eða efni ætlað börnum, þar sem þau eru ekki þátttakendur sjálf, gæti með tímanum leitt til þess, að börnin okkar kunni ekki að leika sér sjálf. Þau verða aðgerðar- lausir áhorfendur, verða alls óviðbúin og skilnings- vana, þegar við förum að krefjast einhvers af þeim, er þau vaxa úr grasi og verða fullorðin. Við ættum að kappkosta að gera heimilin og næsta umhverfi okkar vinsamlegt börnunum. Það þarf að vera örvandi og barnið þarf að finna öryggi og hvatningu í umhverfi sínu. Við megum ekki hafa svo fínt í kringum okkur, að athafnasemi barnsins fái ekki útrás á heimilinu. Við megum ekki líta á það sem ógnun við fínheitin, þó barnið leiki sér milli húsgagnanna og munanna okkar í stofunni. Barninu má ekki finnast því ofaukið á eigin heimili. Við hin fullorðnu megum svo ekki gleyma, að börnin þurfa líka frið til að sitja úti í horni út af fyrir sig. Umhyggja hinna eldri má ekki verða yfirþyrmandi. Afskipti hinna fullorðnu geta gengið of langt. Við eigum að leyfa barninu að njóta einveru og kyrrðar, ef það leitar hvíldar. Þau þurfa að læra að meta kyrrðina og hvíldina eins og allt annað. Áríðandi er að börnin okkar eigi þess kost að alast upp við öryggi og læri að treysta á sjálf sig. Það er skylda okkar að gera þeim lífið hamingju- samt og ríkt, vekja þeim trú og traust á lífið og tilveruna. Við eigum að leyfa þeim að kynnast heiminum án óþarfa árekstra. Þýð.:S. h. úr Forbruker rapporter 1. tbl. VlKan 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.