Vikan


Vikan - 03.01.1980, Síða 44

Vikan - 03.01.1980, Síða 44
Framhaldssaga TÍMARNIR BREYTAST OG TCHLURNAR M Þess vegna ke vinningurinn í milljón Tímarnir breytast bílar af Honda Civic ha nur líklega engum á ppdrætti SÍBS verð crónu vinningar verð Þess vegna verða ininni gerð í aukavinh iinn af þessum eftirs óvart að hæsti ur 5 milljónir og a nú 25. a þrír sparneytnir ing í ár. óttustu í dag. Tímarnir breytas SÍBS breytist vinni Við höldum okkuk" f jórum. Dreifum r til 18750 vi Ogenn sem fyrrer til að styðja sjúká En í happdrætti rjgshlutfallið þó ekki. við einn á móti ær 650 milljónum ihningshafa. ^fgangurinn notaður til sjálfsbjargar. 9B Starf SÍBS felur í sér aukið öryggi fyrir alla landsmenn. bók í b/aðformi fæstá næsta b/aðsö/ustað „Nokkrum. Ég ók stundum bílnum hans Dermott, hann átti Cortínu, siðan Zephyr og að lokum Mercedes rétt áður en hann dó. Og svo ók ég Jagúar einu sinni. Hvers vegna?” „Ég átti Jagúar. Marcia átti Peugeot. Hefurðu nokkurn tíma ekið Peugeot?” „Nei, aldrei.” „Veistu eitthvað um þá?” „Ég veit að þeir eru framleiddir í Frakklandi.” „Victor — unnusti hennar — gaf henni hann. Veistu eitthvað meira um hvernig bíllinn er?” „Ja. — Allur stýrisútbúnaðurinn er öfugu megin við t.d. stýrisútbúnaðinn í Jagúar.” Einmitt. Þar hittirðu naglann á höfuðið.” Þegar þarna var komið þagði Noel svo lengi að Claire, eftir að hafa litið framan í hann, sótti tvöfaldan koníak í glas fyrir hann. „Hérna,”sagði hún, „fáðu þér.” Hann tók við glasinu og starði niður í gylltan drykkinn áður en hann sagði hugsandi: „Veistu, að ég drekk ekki mikið í raun og veru. Eg á við að ég get bæði tekið það og látið það vera. Jafn- vel siðastliðnar vikur —” Hann hló gleðilaust. „Jæja, það væri synd að segja að ég hefði ekki reynt en það virðist ekki vera min björgunarlína. En hvað um það.” Noel fékk sér sopa, lagði frá sér glasið, rétti siðan fram höndina og dró Claire niður aftur, við hlið sér. „Ég vil hafa þig hér,” sagði hann. „Ég get aðeins sagt þér frá þessu ef ég þarf ekki að lita i augun á þér.” Eftir smáþögn tók hann til máls: „Meðal áhorfenda þetta kvöld voru nokkrir vinir minir, atvinnumenn eins og ég sjálfur. Ég hafði ekki séð þá lengi. Einn þeirra hafði meira að segja verið ár i New York og var einmitt nýkominn heim aftur. Þeir komu i búningsher- bergið mitt eftir sýninguna, í góðu skapi og hálfdrukknir. Þú veist hvað ég á við — með flöskuna i hendinni og nokkra vasapela undir beltunum. Jæja, en svona var nú málunum háttað. Við fengum okkur í glas á meðan ég fjarlægði sminkið, siðan hellti einn þeirra aftur í glasið hjá mér. Ég var alls ekki drukkinn. Ég fann reyndar ekki einu sinni á mér. „Marcia kom inn til að athuga hvort ég væri tilbúinn og það var ekki fyrr en ég sá hana gjóta augunum illilega til flöskunnar að ég skildi hvað var á seyði. Hún hafði treyst því að fá far með mér til Farnham og síðan myndi ég halda áfram til London. „Marcia var þreytt. Það erum við alltaf á laugardagskvöldum. Svo að eftir að vinir minir voru farnir byrjaði hún að skammast. Þú veist hvað ég á við.” Hann baðaði óþolinmóður út höndun- um. „Maður segir svo margt sem maður alls ekki meinar.” 44 Vikan I.tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.