Vikan


Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 45

Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 45
Framhaldssaga eftir Hildu Rothwell UNDIR AFRÍKUHIMNI NÍUNDI HLUTI / Um leið og Noel byrjaði að lýsa atburðunum sá Claire þá fyrir sér eins og hún hefði sjálf verið viðstödd. „Hún gerði mig öskureiðan með þvi að segja að hún hefði ekki hugsað sér að taka þá áhættu að aka með drukknum bílstjóra. Það eru einmitt þess konar hlutir sem kona getur sagt til að særa mann, jjegar hún er að niðurlotum komin af þreytu. Áður hafði ég verið fullur afsökunar og sjálfsásökunar en þegar hún sagði þetta sleppti ég mér víst alveg. „Ég er ekki drukkin," mótmælti ég og Marcia hreytti út úr sér: „Ég vildi ekki sjá þig þurfa að blása í þessa blöðru lögreglunnar.” „Hvað, um miðja nótt, héðan og til Farnham? Það verður enginn á veginum." „Það geturðu aldrei verið viss um. Og þar að auki ertu ekki í neinu ástandi til að keyra." „Vitleysa! Ég er jafnedrú og dómari." Það var rétt hjá mér og það vissi hún, blessunin. „Það geturðu sagt lögreglunni ef hún stoppar þig. Það kemur til með að taka sig vel út í dagblöðunum. „Þar sem hr. John Kendrick —” „Allt í lagi, allt i lagi. Komdu bara núna ef þú hefur hugsað þér að koma með. Þú getur ekið til Farnham ef þú vilt.” Þegar þögnin féll aftur á sagði Claire mjög blíðlega: „Og það gerði hún. Og án þess að þekkja almennilega á gírana og allt. hitt, eftir að vera vön að aka Peugeot.” „Einmitt, Claire. Hún var ekkert hrifin af þvi,” sagði Noel stíft. „Það er að segja, hún varð rólegri — þú veist hvemig það er. Hún vissi að ég var ekki drukkinn. Hún vissi líka að ég þekkti bæði bílinn og veginn eins og mina eigin vasa. Ég er fæddur og uppalinn þarna rétt hjá. „En þá var ég kominn í fýlu. Ég man að ég hugsaði, leyfum henni bara að keyra. En ég get svarið að ég hafði gleymt öllu um bölvaðan Peugeotinn. „Leiðin er svo sem nógu auðveld að degi til. En á næturnar — ó nei. Vegurinn er allur í óvæntum hlykkjum og beygjum og umhverfis hann eru tré alla leiðina. Við eina beygjuna sáum við Ijós koma á móti okkur. Það voru einu bílljósin sem við höfðum séð. Ég man að ég sagði við Marciu: „Sveigðu inn i kantinn,” siðan hrópaði ég: „Stansaðu. stansaðu!" Rödd Noels brast og þegar hann setti hendurnar fyrir andlitið, tók Claire eftir að tárin runnu niður kinnar hans. Án þess að hugsa sig um lagði hún höndina róandi á hné hans. Eftir nokkra stund lagði hann sínar eigin hendur yfir þær. Hann bætti rólega við: „Ég býst við að hún hafi orðið kærulaus vegna þess að engin umferð var á veginum, eins og maður verður svo oft. Síðan held ég að ofboð hafi gripið hana. Hún var góður ökumaður, en hún þekkti hvorki veginn né bílinn og hann sveik hana á hættuaugnablikinu. Hún lækkaði heldur ekki Ijósin og hinn öku- maðurinn blindaðist þvi að vegurinn er mjór og nóttin var kolsvört. „Hinn bíllinn beygði út af og siðan man ég ekki meira. Ég hafði ekki fest öryggisbeltið — ég var enn í fýlu þegar ég fór inn í bilinn. Það hafði hún hins vegar gert, svo að þegar ég flaug út úr bílnum vöfðust Marcia og Jagúarinn utan um tré." „En þú gast ekki vitað að þetta myndi ske,” sagði Claire blíðlega „Þetta var bara slys.” Noel leit framan i hana í fyrsta skipti síðan hann byrjaði að segja henni frá þessu. Hún gat ekki afboriðsársaukann í augum hans svo að hún leit undan. Að lokum hvíslaði hann: „Marcia lést samstundis, sögðu þeir. En það segja þeir alltaf, ekki satt? Hvernig geta þeir verið vissir? Og hvað eiga þeir við með „samstundis"? Var hún enn reið? Hugsaði hún kannski: „Jæja, ég er þó allavega með öryggisbeltið en ekki hann"? Vissi hún að hún myndi deyja? Hafði hún fyrirgefið mér eða hataði hún mig hreinlega? Hve mikill sársauki kemst fyrir í einni sál og einum líkama á einni sekúndu? Var hún tilbúin? Hún var heittrúuð, kaþólsk. En það hef ég víst sagt þér áður, er það ekki?" „Hættu, hættu, Noel,” baðClaire. 55 VeISTU að þetta er í fyrsta skipti sem þú notar nafnið mitt?” spurði hann undrandi. Síðan greip hann um axlir hennar og endurtók: „Veistu það Claire?” Andlit hans var allt í einu mjög nálægt hennar og þau horfðu hvort á annað eins og þau væru dáleidd. Claire fann einhvern titring innra meðsér. Það var eins og hún hefði þekkt hann allt sitt lif. Þegar varir þeirra mættust, blíðlega, næstum varlega i fyrstu, var það eins og það væri það eðlilegasta sem skeð gæti. Allt í einu breyttist þetta og mjúkir handleggirnir þrýstu Claire fastar að sér og munnurinn varð harðari. Þetta var eins og að drukkna í gleðitilfinningu. Allur líkami hennar virtist bráðna eins og is í sólskini. Hún hafði aldrei fundið slíkar tilfinningar áður. „Claire frænka,” sagði mjó rödd frá dyrunum. „Ég er þyrstur.” Enn einu sinni virtist Noel verða að allt annarri persónu. Á meðan hún sat 1. tbl. Vikan 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.