Vikan


Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 49

Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 49
láta mig vita. Hann kom aftur og ók eins og brjálæðingur inn innkeyrsluna. Hann var líka allur í svitabaði eins og hann hefði hita. Hann hefur líka gengið hér um á næturnar — nótt eftir nótt Við höfum fundið sígarettustubbana urn allan garðinn og i sundlauginni á morgn ana. Þess vegna var ég svo hrædd við að skilja hann eftir einan. Það var lika þess vegna sem ég bað þig um að bjóða honum í hádegismat nú um daginn." Fay lagði hendurnar á armana á stólnum og stóðupp. „Nú veistu hve þakklát ég er þér,” sagði hún. „Síðastliðnar nætur hefur Noel raunverulega sofið og í morgun — jæja, en ég ætlaði varla að trúa þvi þegar hann fór að tala um að fara aftur til London. Það á að byrja að æfa nýja leik- ritið eftir tvær vikur. Og þarna stóð hann i morgun, fullur af áhuga. Auðvitað kem ég til með að sakna hans, en er þetta ekki dásamlegt?” „Jú, jú, það er dásamlegt. Ég er svo glöðfyrir þína hönd, Fay." Nú myndi Noel snúa sér aftur að sviðsljósinu. Hann myndi þrýsta á hnappinn og þessi fallega rödd hans — „góða Claire,” hún brosti kaldhæðnis lega — myndi hljónta yfir allan salinn. Lífið yrði bara að halda áfram án hans, það var allt og sumt. Þó yrði það ekki eins. Hún gæti aldrei gifst Bruce eftir það er skeð hafði. Það væri ekki heiðar legt gagnvart honuni. Hún varðaðsegja honum frá þvi. Claire var að aka útsýnisleiðina þegar hún mundi allt i einu eftir því að hún hafði gleymt að segja Bruce frá mál- verkasýningunni og hr. Halliday ásamt viðtalinu. En hún varð að einbeita sér að einu i einu, hugsaði hún, og skipti um gír þegar billinn fór að erfiða upp brekk una. Síðan leit hún hugsandi á farþega sinn. Efraim þagði og var mjög þungbúinn á svipinn. Þetta undraði hana. Hún hafði oft ekið honum áður en hann hafði aldrei verið svona brúnaþungur. Síðan ákvað hún að þetta hlyti að vera eitt- hvað sem fylgdi táningaaldrinunt og hætti að hugsa um það. Þegar henni hafði loksins tekist að finna bílaslæði á bak við bankann fór Efraim út úr bílnum án þess að þakka fyrir sig eins og venjulega og beið, með hendurnar í vösunum á þröngum svörtum buxunum, eftir að hún læsti bílnum. Hann stóð þarna þráðbeinn og starði niður götuna i áttina að verslun Bruces. Hann leit út eins og aðrir reiðir ungir menn um allan heiminn. Síðan sneri Efraim sér við, um leið og Claire setti bíllyklana niður i veskið, og sagði eitthvað sem hún skildi ekki. Þegar hún hnyklaði brýrnar og spurði: „Hvað sagðirðu?” gekk hann niður götuna og benti á framhlið verslunar Langleys, þar sem málningin var enn eftir á veggnum. „Hann hefur ekki náð því öllu af,” sagði unglingurinn. „Papemálverk!” Hann hló hatursfullur, síðan bætti liann allt í einu við: „Þakka þér fyrir ferðina,” og hljóp í burtu. Hvað í öllum heiminum gekk að Efraim? Hann hafði sennilega farið bak dyramegin, í leit að föður sínum. Claire leit aftur á afganginn af rauðu málningunni á framhlið verslunarinnar. Stafirnir VERK voru enn skýrir, en þó voru þeir daufari en siðast. Bruce hlaut að hafa reynt aftur að ná þeim af. Verk? Málverk? Pape? En hvers vegna? Claire yppti öxlum og gafst upp. Síðan gekk hún að versluninni. Þar virtist ekki vera eins mikið úrval og venjulega og henni reyndist ekki erfitt að ganga í gegnum . --------------------------------1— verslunina án þess að reka sig utan i. Það var ekki fyrr en hún kom að þrepun- um sem lágu að bakherberginu að hún varð vör við að Ali var hvergi sjáan- legur. Hún hrópaði á hann en þá birtist Bruce sjálfur og hann virtist vera undrandi aðsjá hana. Framhald í næsta blaði. TASSO vegg- stríginn fráokkurer auðveldur •■J: ‘f'J jí | 3''Is ír-gy I | . |i,d í uppsetningu MASSO Bouclé Grensásvegi 11 - sími 83500. l.tbl. Vikan 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.