Vikan


Vikan - 03.01.1980, Síða 63

Vikan - 03.01.1980, Síða 63
Vandamál hvað ég kjafta mikið Hæ, allra besti Póstur! Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa þér og vona því aö Helga sé södd. En ef svo vildi til að hún væri svöng fær hún hér með smáblað að borða. Ég hef krassað á það því þú hefui áður sagt að hún vildi frekar blað með krassi á. Jæja. jæja, ég ætla nú ekki að tala um mín ægilegu ástamál, þótt það séu aðalvandamál mín. Mér fmnst að ég ætti bara að ráða fram úr þeim sjálf. En vandamálið er að ég kjafta svo mikið. Vinir mínir verða stundum þreyttir á mér, sérstaklega þegar ég tala við þá í síma. Og tökum til dœmis einn vin minn. hann Jer stundum að hrjóta í símann. Hann og annar vinur minn stríða mér stundum meðþví að segja bara já, já og eftir á: Hvað varslu annars að segja? Ein vinkona mín notar stundum tækifærið ogfer frá símanum ogfram að gera eitthvað. Svo er það líka eitt. Tvær vinkonur mínar tala og tala um vinnuna þeirra og ef ég tala um skólann segjast þær ekki vilja heyra neitt svoleiðis. Þetta kalla ég nú bara illkvittni; finnst þér það 'ekki? Og ég sem hef svona óskap- lega mikla minnimáttarkennd! Mig langar stundum að brynna músum og stundum geri ég það. Og þá er auðvitað hœðst að manni, en er þetta ekki alveg eðlilegt? Kæri, kæri Póstur, hvað er hœgtaðgera viðþessu? Að kjafta svona mikið og þessari ILLKVITTNI. Ég nefnilega HA TA hana. Og hvað er hœgt að gera við skapvonsku? Það er nefnilega stelpa, sem situr við h/iðina á mér í bekknum sem er svo óskaplega skapvond. Maður má bók- staflega ekkert gera! Jæja, ég vona að þú birtir þetta. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Dísa kjaftaskúmur. Satt að segja gat Pósturinn ekki varist hlátri þegar hann las bréfið þitt yfir. Það verður nú að segjast eins og er að sára- sjaldgæft er að fólk geri sér svo ljósa grein fyrir göllum sínum. Fyrst svo er áttu mikla möguleika á að kippa þessu í liðinn með smávægilegri sjálfsögun og það er engin ástæða fyrir þig að hafa minnimáttarkennd vegna þessa. Settu þér ákveðið mark í ýmsum tilvikum, svo sem þegar þú talar í síma. Nokkrar mínútur ættu að nægja nema sérstaklega standi á og fátt er hvimleiðara en fólk sem notar símann sem nokkurs konar pyndingartól á nánustu vini og vandafnenn. Sama gildir um samræður í skólanum og utan hans. Þú verður að gera þér grein fyrir því að það þurfa fleiri að láta ljós sitt skína en þú ein og samræður vinkvenna þinna um vinnu sína geta verið hreinasta sjálfs- vörn þeirra, svo þær komist einhvern tíma sjálfar að. Ekki þarf að taka það fram að sama ástæða getur verið fyrir geðvonsku sessunautar þíns í skólanum. Hins vegar skaltu alls ekki taka þetta svo mjög nærri þér, því enginn er alveg gallalaus og þetta telst varla svo mjög alvarlegt. Ástæðulaust er að hafa einhverja minnimáttar- kennd (en fólki með minnimáttarkennd hættir oft til að annaðhvort segja ekkert eða tala í síbylju) og þú getur verið viss um að þetta bagar ekki vini þína jafnmikið og þeir vilja vera láta. Það sem þér finnst vera illkvittni getur verið góðlátleg stríðni, sem þú tekur allt of nærri þér. Og fyrir alla muni, láttu þau ekki sjá þig tárast. Það er að vísu alveg eðlilegt en þú skalt samt forðast það í lengstu lög, því þú verður engu bséttari með slíkuhi viðbrögðum. Ég veit að þið þekkið einhvem Kæri Póstur! Mig langar til þess að biðja ykkur á Vikunni að gera mér stóran greiða. Þannig er mál með vexti að ég stend á mjög merkum timamótum í lífi mínu. Þess vegna langar mig mikið til að vita hvað framtíðin ber í skauti sér, en hér er engin spákona. Það sem mig langar að biðja ykkur að gera fyrir mig er að láta þann sem les úr skrift fá þetta bréf. Ég veit að þið þekkið einhvern. Ekki birta þetta bréf né svarið í Vikunni, heldur sendið svarið ípósti. Og þetta skal vera leyndarmál okkar í milli. Elsku besti, gerðu þetta nú fyrir mig. Bestu kveðjur. Sveitakona Eftir mikla umhugsun var tekið það ráð að birta bréfið þitt hér í dálkunum og vonar Pósturinn að þú fyrirgefir honum það. Það er regla hér, sem fylgt hefur verið af kostgæfni, að senda ekki svör heim til penna- vina heldur birta þau hér í dálkunum. Ef bréf eru hins vegar þannig að hætta er á að bréfritari gæti þekkst af ein- hverjum ástæðum er birtingu sleppt, en bréfritari fær þá engin svör við erindi sínu. í þínu tilviki má telja öruggt að engin leið er að gera sér nokkra grein fyrir hver bréfritari er því ekkert gefur til kynna hvaðan skrifað er né hver það gerir. Því miður höfum við hér á Vikunni misst samband við rithandarsérfræðinginn, hann er ekki lengur í lifenda tölu og engan nýjan hefur rekið á fjörur okkar. En við lýsum hér með eftir einum slíkum fyrir þig og ef einhver slíkur er hér á landi á hann visa birtingu á nafni sínu og heimilisfangi hér á síðunum. Ptnnavinir Witha Leung, Rm 2413, Tak Man House, Oi Man Estate, Kowloon, Hong Kong, er 18 ára og hefur áhuga á að skrifast á við íslenska stráka og stelpur. Mireille Clerx, La Prouveresse, 06530 Peymeinade, France, er 14 ára frönsk stúlka sem hefur áhuga á að skrifast á við íslenska stráka og stelpur. Lisa Young, 86 Martello Drive, Kongston 17, Jamaica, West-lndies, er 14 ára og vill gjarnan eignast íslenska pennavini. Evelyne Carrel, Bd. de’s Eplatures 68, 2304 La Chaux-del-Fond Switzerland, er 17 ára stúlka sem hefur áhuga á að skrifast á við íslenska stráka og stelpur. Maria Forsström, Tiiliskiventie 14B, 02320 Espoo 32, Finland, hefur áhuga á að eignast íslenska pennavini á aldrinum 13-15 ára. Hún skrifar á ensku og áhugamál hennar eru dýr, blóm, frímerki, skátar, bréfaskriftir og margt fleira. HJALP! 1. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.