Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 10
Páskaundrið
GUNNLAUGUR
A. JÓNSSON
Sanna Tórínó-líkklse
upprisu Jesú Krists?
Úpprisan er grundvöllur
kristinnar trúar
„Ef Kristur er ekki upprisinn, þá er
ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar.”
Þannig kemst Páll postuli að orði í fyrra
bréfi sínu til Korintumanna.
Upprisa Krists hefur þannig frá
upphafi verið þungamiðjan í boðun
kristinnar kirkju, sá grundvöllur sem
kirkjan i raun stendur og fellur með.
Forsenda kristinnar trúar er sú að
maður að nafni Jesús, er lifði á
tilteknum stað og tilteknum tíma í
sögunni, sé meira en maður sem lifði á
tilteknum tíma í sögunni: Hann sé opin-
berun hinsta leyndardómsins í tilveru
mannsins.
Kenningin um upprisu Krists hefur á
öllum tímum hneykslað vantrúaða og
fjölmargir þeirra sem dá Jesúm frá
Nazaret sem siðferðilega fyrirmynd og
trúarlega hetju, líta á kenninguna um
upprisu hans sem hreina fjarstæðu og
upplýstum mönnum ekki bjóðandi.
Sönnun fyrir
upprisunni?
Er það hugsanlegt að þessir
vantrúuðu aðilar eigi nú kost á sönnun
fyrir páskaundrinu sem nefnt hefur
verið svo, sönnun fyrir því að Kristur
hafi risið upp og þar með tekið af öll
tvímæli um eðli sitt? Þótt það sé viðtekin
venja að svara þessu á þá leið að þessi
einstæði atburður, sem kristnir menn
telja vera — verði aldrei sannaður með
vlsindalegum aðferðum, hann hljóti
alltaf að verða viðfang trúarinnar, þá fer
þeim nú stöðugt fjölgandi sem telja sig
hafa fengið sönnun, kannski ekki
sönnun I strangasta vísindalega skilningi
en sönnun sem þeim nægir algjörlega og
visindin hafa a.m.k. ekki getað afskrifað
þrátt fyrir ýtarlegar rannsóknir.
Þau „sönnunargögn” sem hér um
ræðir eru Tórínó-líkklæðin svonefndu,
sem kölluð eru af ltölum „Santa
Sindone” eða heilög líkklæði. Þvi er sem
sé haldið fram fullum fetum að líkklæði
Jesú séu enn til og varðveitt i dómkirkju
heilags Jóhannesar skírara i Tórínó á
Itallu.
Fjarstæðukennd
hugmynd
Sjálf hugmyndin um að líkklæði Jesú
hafi varðveist fram á okkar daga virðist
mjög fjarstæðukennd. En hitt virðist
enn fjarstæðukenndara að þessi líkklæði
hafi að geyma svipmynd af Jesú eins og
hann lá I gröfinni, mynd sem orðið hafi
til á óskiljanlegan hátt. Þessu er engu að
síður haldið fram og það af mönnum
sem verða kenndir við allt annað en trú-
girni.
Breski sagnfræðingurinn Ian Wilson
segir mjög varfærnislega í inngangi að
bók sinni, The Turin Shroud, að hafi
Jesús I raun og veru skilið umrædd klæði
eftir þá séu þau einstæð sönnun fyrir lífi
hans, píslum og jafnvel upprisunni. Við
lestur bókar Wilsons kemur í Ijós að
hann er þeirrar skoðunar að hér sé um
líkklæði Krists að ræða og að þess sé
tæpast langt að bíða að menn viður-
kenni þau almennt sem slik og að þau
séu nánast sönnun fyrir upprisu Krists.
Sjálfur var Wilson guðleysingi er hann
hóf rannsóknir á sögu líkklæðanna.
Núna játar hann rómversk kajxMska trú.
Svipmynd
af Jesú?
Á líkklæðum þeim sem hér um ræðir
er að finna svipmynd af mannslíkama,
sem haft hefur þyrnikórónu á höfði og
sár að því er virðist eftir nagla bæði á
höndum og fótum. Önnur sár eru
merkjanleg á líkamanum og koma þau
heim og saman við það sem guðspjöllin
segja um krossfestingu Jesú. Likklæði
þessi geta sannanlega verið frá tímum
Jesú og sýnt hefur verið fram á með
efnafræðilegum rannsóknum að þau
hafa á einhverju tímaskeiði verið I Pale-
stinu.
Meginástæða þess að klæði þessi hafa
ekki fyrr en á síðustu árum hlotið þá
athygli sem þau verðskulda er annars
vegar sú að myndin á klæðinu varð ekki
fyllilega Ijós fyrr en með tilkomu ljós-
myndatækninnar, því hún kemur ekki
fullkomlega I ljós fyrr en á „negatífri”
Ijósmynd, og hins vegar það að gæsla
klæðanna hefur verið mjög ströng og
þau aðeins sýnd opinberlega einu sinni á
10 Vikan 14. tbl.