Vikan - 03.04.1980, Page 15
Heimilisfaðirinn stjórnar
máltíðinni. Hann les páska-
frásögnina í Mósebókunum,
brýtur ósýrðu brauðin og
útdeilir víninu, en meðan á
máltíð stendur drekka allir
fjórum sinnum glas af víni til að
minna á frelsun og útvalningu
Guðs á þjóð ísraels. Allir
gleðjast og syngja saman gömlu
sálmana við kertaljós.
Páskahald kristinna
manna
Helgihald kristinna manna í
Jerúsalem er til minningar um
píslardauða Jesú og upprisu. Frá
öllum heiminum koma kristnir
pílagrímar til borgarinnar. Þar
minnast þeir þessara atburða og
skoða staðina þar sem þeir raun-
verulega gerðust. Hátíðin byrjar
á pálmasunnudag með göngu
sem gengin er frá Betfage fyrir
austan Jerúsalem yfir Olíu-
fjallið, niður í Kedrondalinn og
inn í Jerúsalem. í Betfage fundu
postularnir ösnuna með folann
sem Jesús reið á og segir frá í
Matteusarguðspjalli. Allir sem
taka þátt í göngunni bera pálma-
greinar til minningar um það
sem fólk gerði er Jesús reið inn í
Jerúsalem. Um þetta segir í 21.
kafla Matteusarguðspjalls:
— „En allur þorri mannfjöld-
ans breiddi yfirhafnir sínar á
veginn, en aðrir hjuggu lim af
trjánum og stráðu á veginn. En
mannfjöldinn, sem fór á undan
honum og fylgdi á eftir, hrópaði
og sagði: Hósanna Davíðs syni!
Blessaður sé sá, er kemur í nafni
Drottins! Hósanna í hæstum
hæðum.”
Hver þátttakendahópur
syngur alla leiðina sálma á sínu |
móðurmáli. Síðastir í göngunni
eru munkar, prestar og
biskupar. Á dögum Jesú var i
aðalinngangurinn að musteris- !
svæðinu um Gullna hliðið og i
inn um það reið hann á fyrsta !
pálmasunnudaginn meðan
lýðurinn hrópaði hósanna. Nú
er aftur á móti farið um Stefáns-
hliðið sem dregur nafn sitt af því
að þar var Stefán píslarvottur
grýttur fyrir að hafa talað gegn
musterinu og lögmálinu.
Áfram segir í guðspjallinu:
„Og er hann kom inn í \
Jerúsalem, komst öll borgin í ;
uppnám og sagði: Hver er þessi? '
En mannfjöldinn sagði: Það er ■
spámaðurinn Jesús frá Nazaret í i
Galíleu.”
Gengið er inn í St. Önnu
klaustrið. Það er byggt til j
minningar um Önnu, ömmu
Jesú. Talið er að hún hafi búið á
þessum stað í Jerúsalem, er hún ;
ól Maríu guðsmóður.
I
Vegur þjáningarinnar
Á föstudaginn langa og ;
reyndar alla föstudaga árið um ;
kring minnast kristnir menn 1
þjáningargöngu Jesú með göngu
eftir Via Dolorosa, en j
svonefndu krossfarar veginn frá i
Antóníusarkastala norðan við j
musterið og út til Golgata. Þeir :
leituðust við að þræða þennan ;
veg og höfðu þá píslargöngu j
Jesú í huga hverju sinni. Via j
Dolorosa er og verður helgust j
gata i heimi hér.
Göturnar eru þröngar og j
mannþrengsli mikil. Allir vilja !
komast sem næst krossinum sem !
14. tbl. Vikan 15