Vikan - 03.04.1980, Side 35
Popp
McCartney:
BRAUTRYÐJANDI ENN í FULLU FJÖRI
Þorgeir
Ástvaldsson
Ef rekja ætti feril McCartney allt frá
æskudögum i Liverpool, þegar samstarf
Bítlanna hófst snemma á síðasta áratug
til dagsins í dag yrðu þéttskrifaðar
blaðsíðurnar fleiri en ein og fleiri en
tvær og einkenndust eflaust af
upptalningu fremur en frásögn.
Fáir, ef nokkrir popptónlistarmenn,
geta státað af jafnmikilli velgengni og
stöðugum vinsældum og McCartney.
Hann var eins og kunnugt er annar af
tveimur burðarásum the Beatles, sem
öðrum hljómsveitum fremur skóp þá
popptónlist, sem þekkt er í dag og olli
miklum breytingum í fari æskufólks um
heim allan á áratugnum 1960-1970. Hér
er með öðrum orðum átt við svonefnt
Bítlaæði og verður það ekki tiundað
frekar hér.
Þessi mynd er ein af þeim siðustu, sem teknar voru af
Bitlunum áður en leiðir skildu kríngum 1970.
Útgefendur og höfundar metabókar McGuiness
heiðruðu Paul McCartney 24. okt. 1979. Enginn
maður, sem starfað hefur á tónlistarsviðinu fram til
þessa hefur jafnoft verið heiðraður. McCartney hlaut
þvi nafnbótina „The most honoured man in music”. Er
það mál McGuiness-manna, að það met eigi lengi eftir
að standa, nýr handhafi er a.m.k. hvergi i sjðnmáli.
Þótt McCartney sé ágætur hljóðfæra-
leikari og söngvari er hann fyrst og
fremst frábær lagahöfundur og útsetjari.
Eftir hann liggja mörg hundruð laga-
smíðar, sem margar hverjar geta talist
sígildar og hafa gegnum árin verið
teknar til flutnings og hljóðritunar af
ótöldum listamönnum. Á laga-
smíðunum einum gæti McCartney lifað
góðu lífi, en hann ætlaði sér ekki að lifa
einungis á frægðinni og er sá Bítillinn,
sem mest hefur látið að sér kveða eftir
að the Beatles slitu samskiptum kringum
1970. Hann stofnaði hljómsveitina
Wings árið 1973 ásamt konu sinni Lindu
og gítarleikaranum Dennis Laine og
hefur sá kjarni haldið hópinn allt fram á
þennan dag. Ýmsir aðrir hljóðfæra-
leikarar hafa verið kallaðir til samstarfs
en þeir tollað stutt i vistinni enda þykir
McCartney ráðríkur stjórnandi og vill
ráða ferðinni í einu og öllu. Alls eru
plötur hljómsveitarinnar orðnar 5 að
tölu og hafa allar hlotið mjög góðar
viðtökur — nú síðast „Back to the egg,”
sem kom út í fyrra.
McCartney hefur tekist að halda
fjölskyldulífi sinu aðgreindu frá spila-
Hljómsveitin Wings, sem oröiö hefur fyrir tíðum
mannabreytingum siðustu árin. Kjarni hljómsveitar-
innar hefur þó verið hinn sami frá upphafi þ.e.
McCartney, annar frá vinstri, Linda kona hans fyrir
miðju og Dennis Laine annar frá hægri.
mennskunni og á sveitasetur í Skotlandi.
Þar, fjarri skarkala heimsins, dvelur
hann öllum stundum I faðmi
fjölskyldunnar, sem hann er ekki á
þeytingi með hljómsveit sína heimshorn-
anna á milli. Samkvæmislíf stórborg-
anna á ekki við hann og lætur hann
öðrum stórstjörnum poppsins eftir að
stunda það.
Fyrir rúmu ári gerði McCartney
samning við Capitol hljómplötufyrir-
Bitlarnir I fullum skrúða. Mynd þessa er að finna á
umslagi plötunnar „Sgt. Pepper Heart Club Band”
sem út kom árið 1967. Talin ein besta poppplata allra
tíma.
tækið, sem kveður á um fimm hljóm-
plötur á næstu árum svo enn er langt í
land að kappinn setjist i helgan stein.
Þessa dagana vinnur hann að gerð
hljómplötu, þar sem hann einn sér um
allan hljóðfæraleik og er sú plata
væntanleg á markaðinn í maí nk.
14. tbl. Vikan 35