Vikan


Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 78

Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 78
iPósturinn Eiginlega með 13 ára og hrifin tveimur strákum af einum strák, og svo er einn... en ... Ráðagóði Póstur! Ég er i vanda stödd og ég veit ekki hvað ég á að gera svo mér datt i hug að leita til þín. Það er þannig að ég er eiginlega með tveimur strákum, bæði strák sem ég er búin að vera með í tæpt ár og einnig strák sem ég var að kynnast. En ég get ekki sagt þeim fyrrnefnda upp. Svona getur þetta ekki gengið, ég er alveg að deyja úr áhyggjum og vandrœðum. En þú getur ekki sagt mér að gleyma þeim síðarnefnda þvi það get ég ekki. Og svo er annað. Það er strákur sem ég var einu sinni með sem pínir mig i hvert skipti sem við hittumst vegna þess að ég vil ekki byrja með honum aftur. Hvað á ég að gera til að losna við hann? Hvað á ég að gera? Ég dey ef ég fœ ekki svar strax. Og svo, hvað ert þú gamall, gömui? Hvernig er stafsetningin? Ein að deyja úr áhyggjum. Væri ekki happadrýgst að losa sig við þá alla þrjá og snúa sér að öðrum verkefn- um? Þú hefur greinilega ætlað þér of i samskiptum við hitt kynið og veitir sannast sagna ekki af því að taka þér hvíld um tíma. Ekkert liggur á og þegar þér finnst þú hafa öðlast nægan styrk og munir ráða við atburðarásina verður heimurinn ennþá fullur af bæði strákum og körlum — af öllum hugsanlegum stærðum og gerðum. Þegar hætta er orðin á því að svona vandamál valdi andláti viðkomandi — eins og þú lætur að liggja — er mál að linni. Pósturinn er á óræðum aldri. Hœ, hœ, kœri Póstur! Éger 13 ára og ég er hrifm af einum strák, en það er önnur stelpa jafngömul og ég sem er hrifm af honum líka. Hvað á ég að gera til að losa mig við hana svo ég geti reynt að halda áfram I friði? Svo jxtrf ég að spyrja þig annarrar spurningar: Ég veit ekki hvort hann er hrifinn af mér, hvernig á ég að spyrja hann hvort hann sé það? Bœ, bæ. S P.S. Ég verð mjög glöð ef þú svarar mér. Láttu timann líða og leiða í ljós hvort stráksi endurgeldur tilfinningar þínar. Það er þér varla til góðs að segja honum hvað þú hefur i huga alveg strax enda mun meira gaman að láta sig dreyma um lífið og tilveruna. Ef þessi stelpa er vinkona þin ættirðu ekki að losa þig við hana því vinátta hennar er miklu meira virði en andartakshrifning af einhverjum strák sem þið hafið ef til vill báðar gleymt á morgun eða þarnæsta dag. 1 þessu efni sem öðrum er betra að flýta sér hægt og framkvæma ekkert óhugsað sem þú gætir séðeftir síðar. Sætu strákarnir Ifta alltaf á hana Elsku Póstur! Þetta er fyrsta bréftð sem ég skrifa þér og ég grátbið þig um að svara því. Þannig er (byrja ekki flest bréf svona) að ég á systur sem er einu ári eldri en ég. Við erum líkar og höfum oftast sama smekk á strákum. En sætu strákarnir líta alltaf á hana (við erum oft saman) en þessir Ijótari á mig. En ég er svo þrá að ég vil ekki vera með þeim. Hún drekkur en ekki ég. Getur það verið út af því? Ég vonast eftir svari fljótt. Bless — bless. Ein þrá. Sannast sagna getur Pósturinn ekki imyndað sér að það valdi miklu i þessu efni hvort þú drekkur eða ekki. Það væri fremur að þú sért bara ennþá of ung og þar sem systir þín er árinu eldri getur það valdið-Cmhyerju-Tim. Hins íegar skalrú 'hafa pað hugfast að það er ekki allt undir útlitinu komið og þeir sem þér finnast ef til vill heilmiklir karlar núna verða alls ekki jafnglæsilegir nokkrum árum síðar. Persónuleikinn skiptir meginmáli í nánari kynnum tveggja einstaklinga og veldur þar í raun mestu um hvernig til tekst. Gættu þess að láta þetta ekki hafa áhrif á samband ykkar systranna og það væri slæmt ef þetta ylli misklíð og öfund ykkar á milli. Innanhúss- arkitekt leiðréttur! í grein um lýsingu sem birtist í 11. tbl. voru birtar myndir af tveimur gerðum danskra lampa. Var sagt í myndatexta að Rafbúð Domus Medica hefði umboð fyrir þá hér á landi, en hið rétta er að umboðsaðili er verslunin Epal, Siðumúla 21 í Reykjavík. Eftir sem áður fást lampar þessir á báðum stöðunum. Hvar er Ragnar Birgisson? Í 6. tbl. þessa árs birtist i pennavinadálki svohljóðandi: Ragnar Birgisson, Bergstaðastræti 30, 101 Reykjavík, óskar eftir að skrifast á við stúlkur á öllum aldri. Áhugamál eru feröalög, hestamennska, popptónlist o.fl. Mynd fylgi fyrsta bréfi, ef mögulegt er. Og hann er 24 ára. Nú hafa okkur borist hér á ritstjórn tvö bréf til hans, sem hafa verið endur- send þvi hann fyrirfinnst ekki að Bergstaöastræti 30. Svarbréfin tvö verða þvl geymd hér á ritstjórn Vikunnar, Slðumúla 23, og getur hann sótt þau hingað alla virka daga milli klukkan 8 og 17. Pennavinir Joseph V. Foster jr., 75808 — Camp J, Angola, Louisiana, 70712, USA, er 31 árs og óskar eftir að komast í bréfa- samband við íslenskt kvenfólk. Hann biður um að mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Helga Haraldsdóttir, Nónási 1, 675 Raufarhöfn, óskar eftir að komast í bréfasamband við stráka á aldrinum 11- 14 ára. Áhugamál hennar eru dans, sund, ferðalög, diskótek og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Kristbjörg Karlsdóttir, Aðalbraut 35, 675 Raufarhöfn, óskar eftir að komast í bréfasamband við stráka á aldrinum 12- 15 ára. Áhugamál hennar eru dans, ferðalög, bækur, diskótek og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Venke Tröcng, 2542 Vingelen, Norge, er 16 ára norsk stúlka sem óskar eftir að komast í bréfasamband við íslenska krakka á svipuðum aldri. Hún skrifar á ensku og norsku. en skilur dönsku lika. Áhugamál hennar eru popp, íþróttir, saga, bækur og blaðamennska. Sveinbjörg Gunnarsdóttir, Hraunbæ 174, 110 Reykjavík, óskar eftir að skrifast á við stelpur eða stráka á aldrinum 12-14 ára. Hún er sjálf að verða 13 ára. Áhugamál eru margvísleg og hún svarar öllum bréfum. Sigrún Guðmundsdóttir, Asparfelli 4, 109 Reykjavík, óskar eftir pennavinum á aldrinum 14-17 ára. Áhugamál eru tónlist, diskótek og margt fleira. Jóna G. Einarsdóttir, Hliðartúni 2, 780 Höfn, Hornafirði, hefur áhuga á að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 14-16 ára. Áhugamál hennar eru margvisleg. Lis Könnecke, Holitzberg 80, 2000 Hamburg 62 W-Germany, er 23 ára gömul og hefur áhuga á að skrifast á við fólk á öllum aldri sem hefur áhuga á póstkortasöfnun. Hún skrifar á þýsku, ensku og sænsku og skilur dönsku og norsku. Sigrún SvemtJjötnsdóttir,' •Hagatúni' 6, 780 Höfn Hornafirði, hefur áhuga á að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 13-15 ára. Hún er sjálf 14 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Áhugamál hennareru margvísleg. Inga Hanna Guðmundsdóttir, Brekkugötu 11, 530 Hvammstanga, óskar eftir pennavinum á aldrinum 7-9 ára. Hrund Traustadóttir, Flúðaseli 83, 109 Reykjavík, óskar eftir pennavinum á aldrinum 7-9 ára. Hún er sjálf 8 ára. Hanna A. Guðmundsdóttir, Kárrhöks- gaten 92, 552-69 Jönköping, Sverige, er 16 ára og hana langar til að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 16-20 ára. 78 Vikan 14. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.