Vikan - 06.11.1980, Side 10
Jónas Kristjánsson skrifar frá Flórens
Allt er óbreytt
Flórcns er oft kölluð Aþena Italíu.
Eins og Aþena var stjarna menningar
l'ornaldar, varð Flórens stjarna endur
reisnarinnar eftir myrkur miðalda. í
fimm aldir, frá tólftu öld til sextándu
aldar, var Flórens helsta menningar-
miðstöð Evrópu.
Flórensmenn urðu fyrst ríkir af
vefnaði og síðan flugrikir af banka-
rekstri. Flórinan varð á þessum tíma
virtasti gjaldmiðill Evrópu. Flórens-
menn fjármögnuðu styrjaldir og brúð-
kaup aðalsætta Evrópu á endurreisnar-
tímanum.
Undir forustu Medici-furstanna varð
Flórens uppeldisstöð og griðastaður lista-
manna og rithöfunda, einkum þeirra,
sem brutust undan fornum hefðum og
hófu stíl endurreisnartimans til vegs og
virðingar.
Öll miðborg Flórens er enn eins og
henni hafi verið kippt úr endurreisnar
timanum inn til nútímans. Styrjaldir og
eldsvoðar hafa látið borgina í friði. Þar
er enn þann dag í dag ekki þverfótað
fyrir listaverkum Botticelli, Leonardoda
Vinci. Michelangelo og Rafael, svo að
örfá dæmi séu nefnd.
Þessi óhreyfða gamla miðborg er svo
sem kilómetri á hvern veg. Á því svæði
er allt. sem skiptir ferðamanninn máli,
hallir, kirkjur og söfn, hótel og veitinga-
hús. Það tekur aðeins kortér að ganga
ntilli fjarlægustu staða.
Kokkar Katrínar
Á stórveldistíma Flórensmanna voru
þeir taldir bestu matreiðslumenn áll'-
unnar. Þegar Katrín af Medici giftist
snemma á sextándu öld Hinriki af
Orleans, síðar konungi Frakklands,
flutti hún með sér matreiðslumenn sina.
Hefðir flórenskrar matargerðar
fluttust því til frönsku hirðarinnar og
breiddust þaðan út til annarra Vestur
landa. Hin klassiska matreiðsla, sem enn
heldur velli á Norðurlöndum, á rætur
sinar að rekja til Flórens.
Heldur lægra er risið á matargerðar
listinni þar i borg um þessar mundir.
Meðan Rórn hefur 18 fyrsta flokks
veitingahús, Feneyjar 12 og Mílanó 7,
hefur Flórens ekki nema 6. Hún er ekki
lengur fremsta matargerðarborg ítaliu.
hvað þá Evrópu.
Flórens hefur samt þann kost eins og
Róm, að þessi veitingahús eru ekki dýr
ari en hver önnur. I öllum þeirra nema
cinu kostar þríréttaður veislumatur með
vini og kaffi ekki nenia 6.500-
8.000 krónur á ntann. Og á dýrasta
húsinu kostar veislan þó ekki nema
12.000 krónur.
Fylgst með
eldamennsku
Hór er Grazia Bruno i forgrunni
útsýnisins frá borði okkar inn i
eldhúsiö. (Ljósm. KH)
og fagmennsku. Einnig sáum við inn i
opin arininn, þar sem maturinn var grill-
aður.
Le Fonticine er tæplega grein af
hinum flórenska meiði matargerðar
listar. Eigandinn, Grazia Bruno, er
norðar úr landinu. frá héraðinu Emiliu.
sem telja má á landamærum hrísgrjóna
og hveitis, meðan Flórens er alveg í
hveitilandinu.
Sérgreinar signor Bruno
Grazia Bruno er frægur fyrir
„risotto”, hrisgrjónarétti og „bollito".
soðið kjöt. Einnig tvenns konar hveiti-
rétti, „lasagne al forno” og „tortelloni di
ricotta”. Hið síðastnefnda er ricotta
sauðaostur, innbakaður í hveitihylki.
Lasagne-hveitiræmurnar eru búnar til
með spínatblöndu og eru grænar að lit.
Þær eru soðnar í vatni í fimm minútur.
Síðan er blandað í þær þykkri sósu úr
nautakjöti. kjúklingalifur, beikoni.
kryddi, tómatsósu og hvítvini. Að lokum
er osti stráð yfir og rétturinn bakaður
við vægan hita í hálftíma.
Þá eru frægar tvær súpur i le
Fonticine. Önnur er páfasúpan, „Zuppa
pavese”: Egg eru soðin í kjúklingasoði.
síðan tekin upp, soðið síað og eggin látin
aftur i soðið. Siðan er ristað brauð látið i
súpuna og ostur rifinn þar ofan á.
snillinga
Þetta er í borg, þar sem dýrasta hótel-
herbergið kostar 60.000 krónur á nótt.
Og þar sem mönnum tekst tæplega að
finna ódýrara hótelherbergi en 40.000
krónur, þótt þeir gangi sig upp að
hnjám, svo sem lýst var i siðustu grein
minni.
Ættað frá Emilíu
Eitt besta veitingahús Flórens er le
Fonticine við Via Nazionale 79, eina
aðalgötuna frá torginu fyrir framan
járnbrautarstöðina, um 300 metra frá
torginu. Veitingahúsið er þvi nálægt
norðvesturjaðri miðborgarinnar.
Við komum beint inn i eins konar for-
herbergi með sætum fyrir 28 manns og
buffet-skáp á miðju gólfi. Þar til vinstri
var gengið framhjá opnu eldhúsi.
stuttan gang inn í veislulegri sal, er
rúmaði um 50 manns i sæti.
lnnri salurinn var fullsetinn og við
fengum sæti i fremri salnum. Þaðan var
prýðilegt útsýni inn í eldhúsið. þar sem
kokkar hjuggu heilu dýrin af list. hraða
Inngangurinn i le Fonticine.
(Ljósm. KH)
10 ViKan 45- tbl,