Vikan


Vikan - 06.11.1980, Blaðsíða 20

Vikan - 06.11.1980, Blaðsíða 20
SPURNINGARNAR ÞRJÁR 1. Hvað varð til þess, að þú tókst þó ákvörðun að takast á við vartdann — að alvöru? 2. Hvað kom þér mest á óvart í meðferðinni? 3. Hvemig tók samfálagið þér að meðferð lokinni? NÚ ER ÉG FRJÁLS GUNNAR ÖRN GUNNARSSON: 33 ára, myndlistarmaður. Var í meðferð hjá SÁÁ í maí/júní 1980. A ALKÓHÚLISMA ER ENGINN EÐLISMUNUR INGER LAXDAL EINARSDÓTTIR: 28 ára, við heimspekinám í Háskóla íslands. Var í meðferð hjá SÁÁ á síðastliðnu vori. 1. Ákvörðunin átti sér langan aðdraganda, og ég sé það núna, hvernig mér hefur hrakað smám saman. Hvað mína atvinnu snerti, þá var ég vanur að vera mjög aktívur, en afköstin minnkuðu jafnt og þétt, og að lokum hætti ég að geta unnið. Þegar þessi staðreynd hvolfdist yfir mig, réttlætti ég hana með því, að ég hefði runnið mitt skeið sem málari. Mér datt auðvitað aldrei til hugar að játa það fyrir sjálfum mér, að ég væri að missa stjórn á lífi mínu, í stóru og smáu, vegna drykkju. Ég var þá líka farinn að verð- launa sjálfan mig fyrir ótrúleg- ustu hluti, sem þjónuðu sem réttlæting fyrir minni drykkju. Eftir að ég hætti að geta unnið hvolfdist ég endanlega niður í flöskuna, með öllum þeim ótta og því vonleysi, sem fylgir því að verða ósjálfbjarga. Sjálfsvirðing- in var auðvitað löngu búin að kveðja mig, án þess að ég vildi skilja hvers vegna. Þá fór það blessunarlega þannig, að ég stóð uppi drekkandi án réttlætingar. Það voru innri átök, sem ég vildi ekki upplifa aftur. Það mætti líkja því við, að verið væri að tæta mann í sundur innan frá. Hluti af uppgjöfinni kom svo, þegar ég var byrjaður að loka mig inni og gat hvorki sofið né hætt að drekka. Þá hringdi ég og bað um meðferð. En þrátt fyrir allt fór ég i meðferð til að fá þá til að stoppa mig og kenna mér aðdrekka í hófi. 2. Ég fékk hreinlega andlegt sjokk fyrstu dagana á Pollinum. Allt, sem talað var um, var akkúrat um mig, og þá stað- reynd, að ég væri bullandi alkó- hólisti, gat ég ekki flúið lengur. Mér kom mjög á óvart, út á hvað meðferðin gekk, þessi sjálfskönnun, sem maður verður að ganga í gegnum. Og mér skildist smám saman, hvað ég hafði verið orðinn fársjúkur. Það var stórkostlegt að upplifa það, hvernig eðli mitt náði smátt og smátt yfirhöndinni yfir blekkingarvef sjúkdómsins. 3. Maður er bara í startholun- um, þegar maður kemur úr meðferð, sagði einn góður AA- maður einu sinni. Það er átak að koma úr því verndaða umhverfi, sem maður nýtur í meðferð- inni, og láta reyna á það, sem maður hefur lært. Afstaða manna er tvískipt. Margir skilja þetta vel, en ennþá er sú afstaða algeng, að þetta sé aumingja- skapur, og það fólk fæ ég ekki til umræðu um þessa hluti. Hvað sjálfan mig snertir, reyni ég að vera mér meðvitaður um, að ég er og verð alltaf alkóhólisti. En nú ræð ég að mestu sjálfur, hvernig mér líður, og í dag líður mér vel. Nú er ég frjáls. 1. Það var engin persóna, sem lagði að mér að leita hjálpar, heldur fór ég af eigin hvötum. Ástæðan var sú, að ég var komin í skóla og farin að læra það, sem ég hafði áhuga á, og ég fann, að mín áfengisneysla stóð mér verulega fyrir þrifum, þ.e. ég gat ekki stundað mitt nám sem skyldi. Allar ytri aðstæður voru mér hagstæðar, ég hafði gaman af því, sem ég var að gera, átti góða fjölskyldu og vini, og öll skilyrði t>ess, að mér liði vel, voru fyrir hendi. Samt fór áfengisneysla mín stigversn- andi, ég réð ekki við hana, og því leitaði ég hjálpar SÁÁ. 2. Áfengisnotkun mín hafði lengi verið mér hulin ráðgáta, mér fannst hún í blóra við alla skynsemi. Ég taldi hana stafa af einhverjum andlegum kvillum. Það kom mér ef til vill mest á óvart að komast að raun um, að ég drakk ekki, vegna þess að mér leið illa, heldur leið mér illa, vegna þess að ég drakk. Enn- fremur fékk ég skýringu á þvi, hvers vegna ég hafði ekki getað komið mér út úr þessum víta- hring sjálf. Ég skildi einfaldlega ekki, hvert vandamálið var. Maður getur hætt um stundar- sakir sjálfur, en manni liður alveg jafnilla eftir sem áður, og fyrr eða síðar fer allt í sama farið aftur. Meðferðin kennir okkur, hver vandinn er og hjálpar okkur að takast á við hann. Alkóhólisti er svo gjör- samlega týndur í sínu vanda- máli, tilfinningalífið er svo flækt, öll hans viðbrögð svo fjarri raunveruleikanum, að það tekur tíma að finna sjálfan sig aftur, koma lagi á tilfinningar sínar og viðbrögð. Ennfremur kom mér á óvart að komast að raun um, að á alkóhólisma er enginn eðlismunur. aðeins stigs- munur. 3. Viðhorf annarra mótast vafalaust af minni eigin afstöðu, vegna þess að ég er sjálf svo ánægð með að hafa farið i meðferðina og hef á engan hátt farið dult með það. Ég er þakklát fyrir þá opnu umræðu og aukna skilning manna á þessum sjúkdómi, sem vissulega átti sinn þátt í því, að ég leitaði mér aðstoðar, áður en verr var komið. 20 Vlkan 45. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.