Vikan - 06.11.1980, Blaðsíða 26
Fjölskyldumál — Guðfinna Eydal
FYRSTA ÁST
UNGLINQA
Hvafl er ást?
Börn hafa þörf fyrir ást foreldra sinna
til að þroskast eðlilega. Ef börn alast upp
án þess að fá hlýju, öryggi og ást geta
þau orðið tilfinningalega fötluð. Það er
vegna þeirrar ástar sem foreldrar sýna
börnum að börnin læra smám saman að
þykja vænt um einhvern. En að taka á
móti ást frá öðrum er ekki það sama og
verða sjálfur ástfanginn. Að verða
ástfanginn er tilfinning sem oft kemur
mjög skyndilega. og það er erfitt að
útskýra með orðum hvaðeiginlega gerist
og hvaðan tilfinningin kemur. Hún er
fyrir hendi allt í einu og maður er
einfaldlega ástfanginn ...
Hvenær byrjar ástin?
Það er erfitt að segja nákvæmlega til
um hvenær tilfinningin um að verða ást-
fanginn kemur upp. En vitað er að i
fyrstu bekkjum grunnskóla. frá 6-10 ára
aldri. leika strákar og stelpur sér sjaldan
hvort við annað. Þeim er hins vegar ekki
sama hvoru um annað á þessum aldri og
þau sýna hvort öðru áhuga. en gjarnan á
neikvæðan hátt. Stelpur á þessum aldri
tala oft um að strákar stríði sér og séu
alltaf með læti, en þeir tala aftur á móti
um að stelpur séu vitlausar og ómögu-
legar að eiga við eða ræða við. Ýmiss
konar uppnefni tiðkast hjá báðum
kynjum á þessum aldri.
Um og eftir 10 ára aldur er ekki
óalgengt að börn finni fyrir og tali um að
þau séu ástfangin. Lýsingar sem þessi
eru ekki óalgengar hjá 10 ára barni:
..Éger stelpa sem er 10 ára og er i oða-
lega ástfangin af strák i mínum bekk. En
honum er ah’eg sama um mig. Þegar
ég er þar sem hann er liður mér vel.
Stundum læt ég eins og hann sé alveg
eins hrifinn afmér eins og ég af honum
og þá ftnn ég hlýju inni i mér. Eg þori
ekki að fara og tala við hann þvi þá
roðna ég svo mikið."
Þetta bréf 10 ára stúlku er einföld og
góð lýsing á fyrstu ástinni. Hún lýsir
vissri vonleysiskennd. draum um
hamingju og hræðslu um að opinbera
tilfinningar sinar.
Bréf unglinga til pósts eða
bréfakassa
Næstum þvi helmingur af bréfum
unglinga til pósts eða bréfakassa blaða.
eins og þeir eru stundum nefndir. fjalla
um ástarsorgir unglinga. Talið er að
tveir þriðju slíkra bréfa komi frá
unglingum á aldrinum 12-14 ára.
Fyrsta ást unglinga er yfirleitt ást i
fjarlægð eða leyndardómsfull ást til ein-
hvers scm maður hittir, t.d. daglega.
Stundum getur þess konar ást varað
lengi án þess að nokkuð gerist í rauninni
annað en það að unglingurinn finnur
sjálfur til þess að hann sé ástfanginn.
Það er ekki óalgengt að stúlkur á
unglingsaldri skrifi eitthvað á þesssa
leið:
,.£g hef verið ástfangin af honum
mjög lengi. en það litur útfvrir að liann
taki ekki eftir því."
Flest bréf til pósts eða bréfakassa eru
frá unglingsstúlkum. En þau sem koma
frá drengjum endurspegla gjarnan
svipaðan hugsunarhált og stúlkur láta i
Ijós. Eftirfarandi bréf er frá 14 ára
dreng:
„Éger fjórtán ára drengur sem er ást-
fanginn af stelpu sem er saulján.
Vandamálið er að ég þori ekki að segja
henni það. Eg hef reynl að sýna að ég er
skotinn i henni. en það litur útfyrir að
hún skilji ekki hvaö ég meina. Núna
hefur þetta staðið í heilan mánuð og ég
verð óhamingjusamari með hverjum
degi sem líður. Eg þoli þetta bráðum
ekki lengur."
Það er sársaukafull reynsla fyrir
unglinga að uppgötva að hann eða hún
taki ekki eftir manni og flestir hugsa
mikið um hvernig þeir eigi að bregðast
við afskiptaleysinu. en án þess að
nokkur lausn finnist.
Fyrste ástin og kynferðis-
legar þarfir
Fyrsta ástin — eða fyrstu skiptin þegar
unglingar verða ástfangnir eru yfirleitt
án meðvitaðra kynferðislegra þarfa.
Unglingar éru fremur ástfangnir af
imynd sem hægt er að gæða jákvæðum
eiginleikum. Þeir imynda sér oft að ef
draumur þeirra um ástina myndi rætast
þá yrði samvera þeirra með þeim út-
valda eilif hamingja án nokkurra
vandamála. Í mörgum tilvikum eru
imyndanir unglinga flótti frá gráum og
leiðinlegum hversdagsleika.
2fc Vikan 45. tbl.