Vikan - 06.11.1980, Blaðsíða 45
Ónýtar hemlur Karls gátu naumasl
haldið um koksmolann. Hann brosti
þegar það tókst og bað Weinberg að
halda spjaldinu kyrru.
Svo tók hann til við að teikna með
stórum. sveil'lukenndum dráttum.
Ég hef séð myndina. Inga á hana. Ég
er ekki viss um hvað hún táknar. Mýri.
dimmur himinn, ský, og upp úr grugg-
ugu vatninu teygist hönd í átt til
himins.
Hann teiknaði áfrani. þakkaði
Weinberg fyrir hjálpina og bað hann
um að varðveita siðustu mynd sína.
Karl dó fáeinum vikum síðar — úr
taugaveiki, kóleru, enginn veit það. Ef
til vill svalt hann til bana. Eða þá að
hann missti hreinlega lífsviljann.
Líkanii hans var dreginn burt og
brenndur og aska hans blandaðist ösku
foreldra okkar og milljóna annarra.
Dagbók Eiríks Dorfs
Auschwitz i
nóvember 1944.
Ég er orðinn flökkufulltrúi Þriðja
rikisins, — eilíflega að gefa skýrslur um
endanlegu lausnina, safna saman tölum.
bera mig saman við Eichmann, Hoess.
aha hina, sem þátt eiga i þessu ofboðs-
•ega verki.
Siðasta júlí löru Rússarnir yfir fanga
búðirnar í Lublin. Kötturinn var slopp-
tnn úr sekknum — eins og það hefði
nokkru sinni verið hægt að halda þessu
leyndu. Hryllingsmyndirnar — svo
Anelavitz kennlr Aaron að beita
einni byssunni sem drengurinn
smyglaði inn i gettöið í Varsjé.
nefndu — eru búnar að vera til sýnis
fyrir heiminn allan. Auðvitað neitum
við þeim og fullyrðum að þvert á móti
séu þetta rússnesk grimmdarverk
framin á Pólverjum.
En sú staðreynd, að heimurinn er
smám saman að frétta um viðtæka
„fólksflutninga" okkar hefur ekki dregið
kjarkinn úr Eichmann. Jafnvel nú.
þegar smáatriðin í sambandi við dauða-
búðirnar eru að komast i hámæli. er
hann að skipuleggja fjöldaflutninga
rómanskra gyðinga. Allt haustið 1944 er
Eiehmann með minni aðstoð búinn að
halda flutningunum gangandi, frá
Hollandi. Belgiu, Frakklandi. Þeir sent
lifðu af gettóið i Kraká voru sendir til
Auschwitz. Bara siðasta mánuðinn er
Eichmann búinn að senda 35.U00
gyðinga frá Búdapest til hinna ýmsu
búða, allt það fólk á að „flytja".
í Lublin hengja Rússarnir starfslið
okkar i Maidanek-búðum. Þó gefumsl
við ekki upp. hvorki Eichmann. Hoess,
ég né margir aðrir.
Himmler er búinn að gefa út fyrir
niæli um að likbrennsluofnarnir i Aus-
chwitz verði eyðilagdir. Það er næstum
hætt að taka fólk af lífi með gasi i Aus-
chwitz. Þess í stað leggjum við okkur
alla fram um að flytja fangana vestur,
færa þá búðir úr búðum. skrefi framar
en Rússarnir.
Alls kyns geðveikislegir og fáránlegir
hlutir eru að gerast, eins og enginn liafi
stjórn eða viti nákvæmlega hvernig á
að bregðast við frammi fyrir yfirvofandi
ósigri okkar. I dag bárust fyrirmæli um
að flytja aðeins „ungverska gyðinga" frá
Bergen-Belsen til Sviss — skipanir frá
hverjum? Hvers vegna? Og á morgun fæ
ég kannski skeyti um að allir fangar i
Auschwitz eigi að þramnia vestur. á
staði eins og Gross Rosen og Sachsen
hausen.
Heldur Himmler I raun og sannleika
að hann geti dulið verk okkar?
Heldur hann |og Kaltenbrunner og
aðrir yfirboðarar mínir) í fúlustu alvöru
að þeir geti breytt eðli verka okkar með
því að flytja til okkar þúsundir sveltandi
drauga?
Samt höldum við þeim á ferð um allt
Pólland, Þýskaland. Tékkóslóvakíu,
tugum þúsunda þessara gyðinga. tötrum
klædda, deyjandi við vegarbrúnina,
hrynjandi niður úr hungri og sjúkdóm-
um, Væri ekki einfaldara að binda enda
á þjáningar þeirra á einfaldan hátt með
Zyklon B? Gætum við þá ekki sagt að
aðgerðir okkar hafi sprottið af mannúð?
Mannlegt úthald og lifsvilji er á þrotum
hjá þessum gyðingum — og öðrum —
og er þá ekki það eina rétta að leyfa þeim
að deyja eins hratt og kvalalaust og
unnt er? En óekkí. Yfirmenn mínir
halda uppi þeim blekkingarleik að
búðirnar hafi aldrei verið til. að þar hafi
aldrei neinn dáið. að aldrei hafi verið
nokkuð í likingu við gasklefa og ofna.
Stundum finnst mérég næstum trúa þvi.
Auðvitað hefur þetta bitnað á einka-
lífi minu. Ég hitti Mörtu sjaldan, og við
tölum fátt saman, hvað þá að við deil-
um rúmi. Nú er Pétur kominn í
einkennisbúning og er i þjálfun með
svonefndri „úlfahjörð" sem á að berjast
uns yfir lýkur til að verja Berlín. Hann
er hávaxinn og myndarlegur piltur, þó
hafði ég fátt að segja við hann þegar ég
hitti hann siðast. Lára grét mikið. Hún
var oftast svöng og kenndi Mörtu og
mér um allt saman, enda sjálfselsk svo
sem barna er háttur. Bechsteininn er
enn í íbúð okkar — skemmdur en ennþá
hægt að leika á hann. Marta ætlaði að
setja Láru í tíma, það varðekki af því.
— # wU /
viltu brevla. þarftuaöbœta
Gólfteppi
Golfdúkar
Málningarvörur Veggfóóur
Vandaóur gólfkorkur verö á m2 kr.5.300 \
Aeryí teppin komin aftur
Óbreytt veró
LITAVER
Giensásvegi 18 Hreyfilshúsinu Sími 82444
45. tbl. Vikan »