Vikan - 06.11.1980, Page 51
Draumar
Bónord í
draumi
Kæri draumráðandi.
Viltu ráða fyrir mig tvo
drauma. Þeir eru svohljóðandi:
Ég var á gangi á götu en að
henni lágu tveir stígar. Á
öðrum stígnum gekk strákur
sem ég veit hvað heitir og hef
ég haft augastað á honum. En
á hinum var strákur sem ég hef
aldrei séð. Þeir voru báðir með
skólatöskur. Þeir komu báðir til
mín samtímis og sá er ég veit
Itvað heitir bað mig um að
giftast sér. Hinn bað mig um
að fara með sér og ég fór með
honum. Hinn varð eftir.
Svo er það hinn draumurinn:
Fyrir nokkru drevmdi mig
að hárið á mér löðraði allt í
svörtum flugum.
Eg bið þig að ráða þessa tvo
drauma fyrir mig.
Norðlendingur.
Ungu mennirnir tveir eru fyrir-
boði góðs. Þú munt brátt þurfa
að taka ákvörðun í máli þar sem
báðir kostirnir eru jafngóðir og
erfitt að gera upp á milli. Ekki
verður þú þó alveg ein í ráðum.
eitthvað óvænt ber til og málið
fær ekki þau endalok sem í
upphafi var talið. Að öllum
Hkindum snertir þetta samskipti
þín við hitt kynið og margt
bendir til að ástamál þín verði
farsæl. Seinni draumurinn er
óljós en er án efa fyrirboði erfið-
leika eða veikinda sem þú reynir
að halda leyndum fyrir öðrum.
bar sem þú lætur ekkert meira
fylgja er ekki hægt að segja um
hvort þú yfirvinnir þessa
erfiðleika. Með tilliti til fyrra
draumsins má þó ætla að svo
fari.
Hann pakkaöi
nidur
Kœri draumráðandi.
Mig langar að fá ráðinn
draum sem mig dreymdi. Hann
er svona:
Þegar ég kom heim einn
daginn var X inni í herberginu
mínu. (Við erum saman. hann
býr hjá mér.) Hann var að láta
fötin sín niður í tværferða-
töskur og sagði að hann væri
að fara frá mér. Eg fór að
gráta en hann sagði að það
þýddi ekkert. hann væri
ákveðinn í að fara. Þá kom
mamma með bréf. öll merkt
mér og X. og bað mig að fara
út í búðfyrir sig. Þegar ég var
á leiðinni út í búð stoppaði Z
mig og fór að sprauta á mig
vatni. Þá sá ég X og Y og
kallaði á X. Þá bað hann Z um
að halda mér svo ég sæi ekki
hvert hann væri að fara.
Þá vaknaði ég. Draumurinn
var mjög skýr.
Ein ástfangin
Þessi draumur tengist að
öllum líkindum meðvituð-
urn eða ómeðvituðum ótta
þínum um að X yfirgefi þig.
Draumurinn bendir til tíma-
bundinna erfiðleika í samskipt-
um þínum við hann vegna
þinnar eigin afbrýðisemi. Bréfin
stíluð bæði á þig og hann benda
til þess að þér þyki hann ekki við
eina fjölina felldur í ástamálum,
en þær upplýsingar hefur þú
frá öðrum og ættir að trúa
varlega. Vatnssprautunin táknar
að einhver vinur ykkar muni
blanda sér í málið ykkur til
hjálpar. Gráturinn er fyrir góðu
og ákveðni X í draumnum
bendir til trygglyndis hans við
þig-
Aldrei fengið
hlaupabólu.
Kæri draumráðandi.
Mig langar til þess að biðja
þig um að ráðafyrir mig tvo
drauma. Sá fyrri hljóðar
þannig: Eg var með sár í andlit-
inu eins og eftir hlaupabólu (ég
hef aldrei fengið hlaupabólu).
Sá seinni er þannig: Eg var í
hvítum tískubuxum. (víðum)
Mig vantaði peysu við en ég
vildi hafa hana með rúllukraga.
Eg keypti mér rauða og hvíta
pevsu með rúllukraga. Hún var
með rauðum tíglum um brjóst-
kassann allan hringinn. Hún
var prjónuð úr garni
(sléttprjón). Eg þakka fyrirfram
birtinguna.
K.H.
Þótt ótrúlegt kunni að virðast
boðar þessi fremur leiðinlegi
sjúkdómur í draumi velgengni í
vökunni. Þú munt kynnast nýju
fólki sem reynist þér vel og
hjálpar þér til fjár og frama í ein-
hverri mynd.
Litadýrðin í seinni draumnum
er þér líka fyrir einhverju góðu.
Litir tákna þó ekki alltaf það
sama. Hvít föt eru fyrir happi og
að kaupa ný föt er fyrir nýjum
vinum. Rauða peysan skraut-
lega ætti einnig að vera góðs
viti. Mjög líklega boðar þessi
draumur það sama og hinn fyrri,
þ.e. eitthvert lán hendir þig að
tilstuðlan nýrra vina. Þar sem
draumarnir eru að öðru leyti lítt
útskýrðir hjá þér er erfitt að
segja frekar um hvers kyns þetta
lán verður. Rauður litur í
draumi bendir oft til þess að
dreymandi ætti að hafa
taumhald á skapi sínu.
Skop
! (qW v X
Hún skipar mcr aldeilis ekki fyrir verkum. Ég skúra
cldhúsgðinð ÁÐUR EN ég vaska upp.
45. tbl. Vikan 59