Vikan - 15.01.1981, Side 51
Draumar
Síendurteknar
blódnasir í veisl-
unni
Ágæti draumráðandi!
Sannast sagna hef ég skrifað
þér drauma áður og þakka
kærlega ráðningarnar. Þær
hafa reyndar verið svokallaðar
langtímaráðningar sem ef til
vill koma fram síðar.
Síðustu nótt dreymdi mig
enn draum sem veldur mér
talsverðum heilabrotum og
þætti betra að fá ráðningu ef
hægt er.
Ég var staddur ísamkvæmi
þar sem margt manna var
saman komið og talsverður
hávaði. Þá fannst mér allt í
einu að blæða fœri úr mér. það
er að segja ég fékk heilmiklar
blóðnasir. Þetta hætti eftir
skamman tíma en kom alltaf
aftur og aftur eftir því sem á
samkvæmið leið. Að lokum
varð mér Ijóst að ég var allur
orðinn blóði drifinn.fötin
mín, borðdúkurinn og gólfð í
kringum mig. Svo raunveru-
legur var þessi draumur að ég
fann blóðkökkinn í hálsinum
greinilega.
Skyndilega var ég svo
staddur I sundlaug en man
reyndar ekki eftir því hvort ég
synti þar eða hitti annað fólk.
Vatnið man ég þó greinilega en
að öðru leyti er draumurinn
mjög óljós.
Kær kveðja og von um
skjóta birtingu. Skagamaður
Við ráðningu þessa draums er
nokkuð erfitt að greina á milli
hvort þarna er um veikan tákn-
draum að ræða eða fyrirboða
breytinga á framtíð þinni. Sé
þetta einungis veikur tákn-
draumur er merkingin varðandi
veðurfar, þannig að eftir þennan
draum ætti þá að hafa komið
mikið hvassviðri og hálka á
götum.
Ef við gerum hins vegar ráð
fvrir að þarna eigi draumurinn
við framtið þína og þinna verður
að segjast eins og er að þar
munu skiptast á skin og skúrir.
Fjártjón og veikindi munu baga
þig um tíma og þér finnst á
stundum að ekki muni úr rakna.
Þarna þarf ekki að vera um þig
sjálfan að ræða heldur einnig
einhvern sem er þér svo
nátengdur að hans örlög eru
jafnframt þín. Hins vegar er
ýmislegt sem bendur til að úr
rætist og einhvers staðar i
framtíðinni glittir í fasteign og
fleira gleðilegt viðvíkjandi
viðskiptum og starfi.
Mörg bréf
4
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mér
finnst afar einkennilegur.
Mér fannst endilega vera
laugardagur og mamma vœri
frammi í eldhúsi með R. (kona
sem ég leigi hjá). Hún var að
spyrja R. hvers vegna póst-
kassarnir væru niðri I forstofu
en ekki í kjaUaranum. R.
svaraði að póstkassarnir væru
alltaf í forstofunni í fjölbýlis-
húsum. Svo voru mamma og
strákarnir hennar R. sest fyrir
framan sjónvarpið í stofunni.
Þá fór ég niður I forstofu og
opnaði póstkassann hennar R.
Hann var fullur (sem er skrýtið
því það er ekki borinn út
póstur á laugardögum og R.
eða ég losum hann á hverjum
degi). Það sem var I póst-
kassanum var allt til mín. Það
var Heimilis-Tíminn sem var
brotinn I tvennt og utan um
var blað sem á var handskrifað
nafn mitt og mig minnir að
það væru fimm frímerki á því
einnig. Svo voru mörg bréf til
mín. Á nokkur þeirra höfðu
verið, límdir límmiðar með
nafninu mínu vélrituðu á, ofan
á það sem áður hafði verið
handskrifað. Flest þessara bréfa
voru frá útlöndum. Og svo
voru einnig bréf þar sem
nafnið mitt var handskrifað
utan á. Ég var mjög glöð og
fór upp í íbúðina og inn I
stofu. Eg fór að lesa bréfin, en
ég var alltaf að velta því fyrir
mér hver hefði sent mér
Heimilis- Tímann.
Mérfinnst mjögskrýtið með
bréfin að utan. Eg á nokkuð
marga pennavini I útlöndum og
mamma sendir mér alltaf þau
bréf sem ég fæ einu sinni í
viku, öll í sama umslagi. (Eg er
í skóla úti á landi.) Eg vona að
þú ráðir þennan draum fyrir
mig.
Með fyrirfram þökk. FMV
P.S. Fyrir hverju er það ef
mann dreymir að maður tali
útlensku í draumi? Mig
dreymdi í sumar að ég var að
tala við pennavinkonu mína á
Spáni í síma á spænsku. Eg
kann ekki spænsku.
Það er svolítið erfitt um það að
segja hvort draumurinn hefur
táknræna merkingu vegna þess
hve mjög hann ber svip af því
sem gæti raunverulega gerst. Þú
segist eiga marga pennavini í
útlöndum og fá mikið af bréfum.
En í draumi þínum eru mörg
tákn og hafa þau nokkuð þver-
sagnarkennda merkingu. Bréf í
draumi boða gjarnan óvæntar
fréttir. Einnig geta bréf verið
fyrir óvæntum atburðum og
ævintýrum. Blaðið (Heimilis-
Tíminn) getur merkt fréttir úr
fjarska en einnig að þér beri að
fara varlega. Draumurinn í heild
boðar breytingar á högum
þínum, sennilega vegna frétta
langt að. Þú gætir lent í ýmsum
óvæntum ævintýrum. í
draumnum felst hins vegar
sterkleg aðvörun um að fara
varlega, sérstaklega í sam-
skiptum við hitt kynið sem
kunna að fylgja í kjölfar þessara
breytinga. Án alls tillits til
persónu kvennanna tveggja í
vökunni boðar nærvera móður
þinnar í draumnum heill og
hamingju, en R. (konan sem þú
leigir hjá) er fyrir vandræðum og
og mótlæti. Hvernig sem allt
verkast munu skiptast á si:in og
skúrir hjá þér í framtíðinni.
Gættu vel að þér en gleymdu
ekki að gæfan er alltaf á næsta
leiti.
Að tala við útlending i draumi
á hans máli er fyrir fréttum af
vinum sem þú hefur ekki heyrt
frá lengi og alltaf fyrir einhverju
góðu. Sennilega hefur þessi
draumur þegar komið fram.
Móðir og lykill
Fyrir skömmu dreymdi mig
draum sem mér finnst mjög
einkennilegur og vildi frá
ráðningu á ef það er hægt.
Mér fannst ég vera stödd
heima á bœnum þar sem ég er
fædd og uppalin, en er nú
kominn í eyði. Mér fannst allt
vera eins og það var þegar ég
var lítil nema að það var
enginn maður sjáanlegur. Þar
sem ég stend þarna að mig
minnir í eldhúsinu kemur
móðir mín (sem er dáin fyrir
allmörgum árum) I gættina.
Hún horfir eitthvað svo
einkennilega á mig og er star-
sýnt á fæturna á mér. Þá
verður mér litið niður og sé að
ég er komin I hjólastól. Þá snýr
móðir mín sér við og gengur
fram. Hún kemur fijótlega
aftur og heldur á stórum lykli I
hendinni. Hún lætur mig fá
lykilinn og segir um leið: Þetta
ætti að duga til að koma þér á
fætur. Lengri varð draumurinn
ekki. Ef það skiptir einhverju
máli þá hét móðir mín
Jóhanna. EVA
Það er kvenfólki ætíð fyrir góðu
að dreyma móður sína. Það er
sérlega góður fyrirboði að
dreyma móður sína lifandi sé
hún látin. Nafnið Jóhanna
táknar og gott. Að dreyma að
manni sé gefinn lykill er fyrir
fjárhagslegum ávinningi eða
hjálp frá vinum í áhrifastöðum.
Lömun er hins vegar fyrir
erfiðleikum. Sennilegt er að þú
eigir nú þegar eða í náinni
framtið í nokkrum erfiðleikum
vegna bágs fjárhags. Fljótlega
mun rætast úr fyrir þér og
tengist það sterklega einhverjum
nánum ættingja þínum( ef til vill
systkini) sem reynist þér mjög
vel þegar á reynir.
3. tbl. Vikan 51