Vikan - 24.12.1981, Blaðsíða 4
Hönnun:UffeBalslev Myndir: RagnarTh.
Quðunum tildýrðar
, 1 • T- i ^ i i 1__ V'- - ká c-í> TVCU A XT A ok.™«-;i
Japanska skreytilistin, sem
kölluð hefur verið IKEBANA,
er upphaflega kínversk og er
talin hefjast fyrir um 2000
árum. Þá voru blðma-
skreytingarnar liður í trúar-
brögðum, blómunum var raðað
upp á ákveðinn hátt til dýrðar
guðunum.
Er búddatrúin barst frá Kína
til Japan fylgdi henni þessi
hugmynd, að blómin væru
liður í tilbeiðslunni, og voru
ætíð notuð lifandi blóm í
skreytingarnar. Á 15. öld höfðu
málin þróast á þann veg að
skreytingarnar voru háðar
föstum reglum og má segja að
þá sé IKEBANA skreytilistin
orðin að fastri hefð í lífi
Japana.
Grundvallarlögunin er
óreglulegur þríhyrningur, oft
eru aðeins þrjú blóm eða
greinar í skreytingunni. Þær
skreytingar eru kallaðar
SHUSHI. Ef notaðar eru fleiri
greinar kallast þær JUSHI og
þeim raðað eftir sömu grund-
vallarreglum og shushi. Þessar
þrjár aðalgreinar eiga að tákna
himininn, jörðina og manninn,
,,shin”, ,,soe” og „hikae”.
Skreytingarnar hér á opnunni
Stílhrein og faileg skreyting úr hvítum rósum og nellikum og
um hana liðast franskar ilmgreinar.
4 Vikan 52. tbl.
Gular rósir og gerbera, fresíur,
chrysanthemum, mímósur og
murtugreinar mynda þessa glæsi-
legu skreytingu.