Vikan - 24.12.1981, Blaðsíða 23
Fjölskyldumál
senda svo jákvæðra viðbragða sé
einstaklega gott samband á milli
hjónanna.
Karlmenn sem gefa sœði
Mörgum finnst einkennilegt til þess
aö hugsa aö til séu karlmenn sem vilja
gefa sæði og geta af sér börn sem þeir
munu aldrei fá að sjá. Barnið er og
verður þeim óþekkt. Karlmenn sem gefa
sæði koma yfirleitt á sjúkrahús og gefa
sæði sem siðan er notað strax eða fryst
þangað til not eru fyrir það. Þessir menn
yfirgefa sjúkrahúsið áður en konan sem
á að fá sæðið kemur þangað. Þessir
einstaklingar, sem hugsanlega eignast
barn saman með tæknilegri frjóvgun, fá
aldrei að hittast.
Karlmenn sem gefa sæði geta eignast
mörg börn meö mismunandi konum og
oft er reynt að fá sömu mennina aftur og
aftur til að gefa sæði, af því að það
reynist vel.
Karlmenn sem gefa sæði eru oft giftir.
Oft eiga þeir börn í hjónabandi. Það er
alltaf haft langt viðtal við þá áður en
þeir gefa sæðið og ef þeir eru giftir er
oftast rætt við konur þeirra líka. Margar
konur vilja ekki að eiginmenn þeirra gefi
sæði, þó svo að þeir séu sjálfir tilbúnir til
þess. Þessi mál snerta mjög tilfinningar
fólks og hafa konur sagt að þær geti ekki
hugsað sér að maðurinn eigi börn með
annarri konu á þennan hátt. Sumar láta
í ljós ótta um að börnin geti líkst þeirra
eigin bömum. Einnig em sumar konur
hræddar um að þær hugsi stöðugt um
hvort þetta eða hitt bamið geti verið
barn mannsins.
„Ég fer að hugsa um þau börn sem ég
mæti á götunni. Á hann kannski þetta
eða hitt?” hefur einhver sagt. Óþægileg
og óbærileg tilfinning fyrir margar'
konur.
Margar konur samþykkja hins vegar
að maður þeirra gefi sæði og þær virðast
ekki vera óánægðar yfir þessari
ákvörðun né virðist hún valda þeim
hugarangri. Það er eins og þær skilji
vandræði kvenna sem langar til að
eignast barn og séu tilbúnar til þess að
leggja eitthvað af mörkum til að svo geti
orðið.
Miöi í happdrætti SÍBS gefur
góða vinningsvon,nær 2/3 hlutar
veltunnar fara í vinninga, og
meira en f jóröi hver miði hreppir
vinning. Þar að auki á hver seldur
miði þátt í því að aðrar vonir
rætist. Vonir þeirra sem þurfa á
endurhæfingu að halda —
endurheimta afl og heilsu með
þjálfun og störfum við hæfi.
Arlega fá nær 600 manns
þjálfun og vinnu að Reykjalundi
og 40 öryrkjar starfa að jafnaði á
Múlalundi. Og enn er átak
framundan: nýþjálfunarstöð að
Reykjalundi og nýtt húsnæði fyrir
Múlalund.
Almennur stuðningur landsmanna
erlykillinn að árangursríku
starfi SÍBS______________^
Happdrætti SÍBS
MIÐAVERÐ AÐEINS 30 KR.
Hæsti vinningur 150.000 kr.
Lausn fyrir marga
Það er enginn vafi á því að tæknileg
frjóvgun hefur verið lausn fyrir marga
sem hafa búið við barnleysi. Aukning
þess háttar frjóvgana víða um heim sýnir
að áhuginn er fyrir hendi. Mörgum
finnst þetta hins vegar vafasamt út frá
siðferðilegu sjónarmiði og hafa ýmsir
áhyggjur út af stöðu barna í þessum fjöl-
skyldum. Hvað gerist til dæmis ef for-
eldrar skilja? Hvað rétt hefur barnið þá?
Út frá lagalegu sjónarmiði eiga þessi
börn engan föður. Lög taka mið af
kynföður bama. 1 skilnaðarmálum
óttast sumir að málin geti oröiö erfið ef
eiginmaður neitar til dæmis að borga
með barni á þeim forsendum að hann
eigi ekkert í barninu og vilji vera laus
allra mála.
Læknar hafa hins vegar sagt að tækni-
leg frjóvgun sé það mikilvæg fyrir marga
aö ekki sé hægt að stöðva þess háttar
frjóvganir út frá þvi sjónarmiði að ein-
hver vandamál kynnu að koma í kjöl-
farið. Framtíðin mun hins vegar skera
úr um hvort tæknileg frjóvgun reynist
það vel að sæðisbankar verði raunveru-
legt tilboð fyrir þá sem lifa í hjónabönd-
um þar sem maðurinn er ónýtur.
52. tbl. Vlkan 25