Vikan - 24.12.1981, Blaðsíða 16
Hötundur: Robert MacLeod Teikning: Siguröur Vilhjálmsson 4.hluti
Gaunt kinkaði kolli. — Ég tek tölur
þínar trúanlegar. En ég verð að fá þær
staðfestar siðar, skattskýrslur, samþykki
banka —
— Já, auðvitað sagði Leifur og benti á
konu sína. — Það er í verkahring
Önnu. Ég kann að græða fé, en hún er
reikningshausinn.
Þegar Anna ljómaði upp við hrósið,
dró Leifur annað augað í pung og bætti
við: — Hún eyðir hvort eð er megninu,
aftur.
Þetta var aðeins upphafið að löngum.
þreytandi samræðum, sem færðu
Gaunt heim sanninn um, að það var
ekki komið að tómum kofunum hjá þeim
hjónum. Þau ræddu um afskrift flugvéla
og flugtíma, innistæður í banka og
bankalán, leigu á flugskýli, samninga
um eldsneyti á vélarnar, og smám
saman saxaðist á minnislistann, sem
hann hafði gert í huga sér. Leifur og
Anna töluðu og borðuðu, nýjar bjór-,
flöskur birtust og tæmdust, og loksins
virtist flest sagt, sem ræða þurfti.
— Ekkert fleira, herra Gaunt?
Anna Jörgensdóttir lokaði síðustu
reikningsfærslubókinni í staflanum, sem
hún hafði stuðst við, og gaut augunum
til bónda síns, þegar Gaunt hristi
höfuðið.
— Þá — eh —
—Ég vil selja, þið hafið áhuga á að
kaupa.
Gaunt krumpaði blaðið, sem hann
hafði notað til útreikninga, henti því í
ruslakörfu og hallaði sér aftur á bak í
stólnum. — Mér virðist svo sem hlutur
Jamie Douglas i Arkival Air gæti verið
fjörutíu þúsund punda virði —
Breitt andlit Leifs Ragnarssonar
fölnaði. — Ó. En —
— Bíddu við, sagði Gaunt og yggldi
sig framan í hann. — Ég sagði gæti
verið. Það eru viss lagaleg vandamál í
tengslum við þetta i Skotlandi og við
verðum að fá þetta út úr heiminum,
hvað sém það kostar. Ég býðst til að
selja hlutinn á tuttugu og átta þúsund
sterlingspund út í hönd.
Leifur kyngdi munnvatni og sneri sér
að konu sinni. — Anna, í krónum ...
Hún var þegar tekin að reikna.
Brosandi ýtti hún til hans blaðinu. Hann
leit á það, síðan á Gaunt, kyngdi aftur,
leit á konu sína. Hún kinkaði ákaft kolli.
— Samþykkt, sagði Leifur rámur. —
En ég þarf tíma — eigum við að segja
tvo daga?
— Fjörutíu og átta klukkustundir, og
þú sérð um öll lagaleg atriði og kostnað
hérna megin, sagði Gaunt. Hann hafði
fært þeim kostaboð á silfurfati, ekki gjöf,
en betri kjör en þau höfðu vænst. Svo að
örlitill þrýstingur hjálpaði til að friða
samviskuna gagnvart fyrirtæki hans. —
Við segjum ekkert frá samningnum, uns
allt er frágengið.
Leifur innsiglaði samning þeirra með
kraftmiklu handtaki. Meðan Gaunt var
16 Vikan 52. tbl.