Vikan - 24.12.1981, Blaðsíða 11
íslensk kvikmyndagerð
sem stundum koma fólki á óvart.
Atriði 35
Inni. Morgunn. Svefnherbergi
foreldranna. Jón Oddur og Jón
Bjarni eru nývaknaðir.
JÓN ODDUR:
Vá, maður, mig dreymdi að ég
væri enn þarna í hellinum.
JÓN BJARNI:
...og svo komu útilegu-
mennirnir...
JÓN ODDUR:
... eða tröll...
JÓN BJARNI:
...og mér var svo kalt á
löppunum...
Mamma kemur inn.
MAMMA:
Jæja, svo strokumennirnir eru
vaknaðir. Strákar mínir, flýtið
ykkur nú að klæða ykkur og
koma fram. Pabbi ætlar að
keyra mig og hann Kormák afa
ykkar upp á spítala og Kormák
langar að sjá ykkur áður en
henn fer.
Mamma fer. Strákarnir þjnla á
fœiur og klœda sig.
sem sat þarna í rólegheitum í
morgunkaffi, siðan í hádegis-
mat, þá síðdegiskaffi og loks
kvöldmat. Svo áhugasamur var
hann að fylgjast með öllu
umstanginu!
Sjálf kvikmyndatakan stóð
frá maílokum til júlíloka og við
höfðum á að skipa þaulvönum
kvikmyndagerðarmönnum. Það
voru þau Baldur Hrafnkell
Jónsson kvikmyndatökumaður
frá sjónvarpinu, Kristín Páls-
dóttir sem sá um klippinguna,
hún hlaut menntun við London
Film School sem kvikmynda-
stjóri, og Friðrik Stefánsson
hljóðupptökumaður frá útvarp:
inu.
Sum atriði lofa góðu í kvik-
myndahandriti en reynast öðru-
vísi þegar á hólminn er komið.
Önnur atriði reynast miklu betri
en virtist á pappírnum. Að
lokinni kvikmynduninni kemur í
ljós úr hverju maður hefur að
moða. Þá reynir á klipparann
og klippingin er að mínu mati
mest spennandi hluti kvik-
myndagerðarinnar. Um það
leyti fer kvikmyndin að „taka á
sig mynd”.
Tónlist og leikhljóð voru
unnin af Agli Ólafssyni í nánu
samhengi við klippinguna. Hann
samdi og útsetti alla tónlist í
kvikmyndinni. Tónlistin undir-
byggir og styður það andrúms-
loft sem reynt er að skapa í kvik-
myndinni um Jón Odd og Jón
Bjarna.Notuð eru áhrifahljóð og
tónlist sem undirstrikar til-
finningar drengjanna, reynt að
lýsa hvernig þeir finna sig í
landslagi eða hvernig þeim líður
við ýmis tækifæri. Segja má að
tónlistin hafi veigamiklu hlut-
verki að gegna í myndinni.
Klipping og endanlegur
frágangur hljóðs fór fram í
ágúst, september og október og
var lögð í það mikil vinna.
Þráinn Bertelsson fór síðan með
allt saman til Kaupmannahafnar
þar sem hann gekk frá lokalit
greiningu á hinum einstöku
myndskeiðum og frá endanlegri
hljóðblöndun. Þráinn kom svo
heim um miðjan desember með
sýningareintökin en myndin
verður frumsýnd annan dag
jóla.
Að lokum vil ég taka fram að
það er þessi góði samstarfsandi,
sem ég hef minnst á, sem gerir
kleift að vinna kvikmyndir við
þær aðstæður sem ríkja hér á
landi. Við gerð kvik-
myndarinnar um Jón Odd og
Jón Bjarna fannst mér þessi andi
áberandi góður.
52. tbl. Vikan IX