Vikan


Vikan - 24.12.1981, Side 20

Vikan - 24.12.1981, Side 20
Skyndilega gretti Lawton sig, þefaði út í loftið og færði sig frá ofninum. Úlpulafið hans var tekið að sviðna. — Annars erum við alls ekki komnir í fullan gang, helmingurinn af mínum hópi kom ekki fyrr en í gær. Það virðist allt í lagi með þá, sagði hann og yppti öxlum. — Hér er svo annar hópur, sem hefur verið hér lengur, en þeir eru ekki látnir verða á vegi okkar. — Hittist þið ekki? spurði Gaunt undrandi. Hann gaut augunum á minnistöfluna. — Ég hefði haldið.. . — Þú finnur þá ekki þarna, sagði Lawton og gretti sig. — Við köllum þá fyrir jAntidarm en Ulí B.B. BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. okkar á milli líkþráu deildina. Þeir hafa sinn eigin svefnskála, sinn eigin fundar- skála, og ef við erum hér, eru þeir ein- hvers staðar fjarri, og ef við förum í út- rásir, eru þeir hér. Það hljómar dálítið undarlega. — Sömu leiðbeinendur? Lawton kinkaði kolli um leið og hann dró að sér sígarettureykinn. — Þú hlýtur að hafa séð þá einhvern tíma tilsýndar, sagði Gaunt. — Einu sinni eða tvisvar, viður- kenndi Lawton. — Þeir eru átta saman, eldri en við, næstum miðaldra, þú veist, alveg að komast á fertugsaldurinn. — Ég þakka, sagði Gaunt þurrlega. Nú opnuðust dyrnar, og hurðin skellt- ist upp að veggnum. Hávaxinn maður í dökkum, vatnsheldum galla með þvælda húfu keyrða niður á hausinn, kom inn. Hann sendi Lawton illt auga og benti út i myrkrið. — Út, hreytti hann út úr sér. — Áfram með þig. Þú getur grillað á þér gumpinn síðar. Hann gaut augunum á Gaunt, svo æddi hann aftur út og skildi dyrnar eftir opnar. — Fjandinn sjálfur, sagði Lawton og drap snarlega í sigarettunni. — Þetta er Garram, einn af leiðbeinendunum. Við köllum hann Garram górillu. Því miður, svona er þetta. — Bíddu augnablik, sagði Gaunt og stillti sér upp á milli hans og útidyranna. — Adam, hvar heldur þessi sérstaki hópur sig? — Hérna á bak við til vinstri, sagði Lawton um leið og hann smeygði sér framhjá honum. — Það er steinsteypt bygging, einhverjar leifar frá þeim tíma, þegar ameríska geimferðastofnunin hafði hér aðsetur. Hann hvarf á braut og lokaði á eftir sér. Gaunt stóð kyrr í sömu sporum stundarkorn, svo lagði hann frá sér kaffikrúsina, gekk yfir að glugganum og gægðist út meðfram gluggatjaldinu. Ekkert lát virtist á affermingu flugvélar- innar, nokkrir mannanna báru kassa yfir I jeppann, aðrir báru minni kassa yfir í einhvern skálanna. Hugboð, efasemdir og forvitni í nokk- urn veginn jöfnum hlutföllum höfðu rekið hann hingað til Álfaborgar. Enda þótt hann hefði engar sannanir í hönd- unum, var hann nú viss um, að hann væri á réttri leið og hvað svo sem væri hér á seyði, þá væri það á einhvern hátt tengt þessari skringilegu, óaðlaðandi skálaþyrpingu I miðri hraunauðninni. Hann gekk hröðum skrefum til dyr- anna, opnaði þær i hálfa gátt, fullvissaði sig um, að mennirnir væru með hugann við verkefni sitt, laumaðist þvi næst út I næturmyrkrið og lokaði á eftir sér. Úti var kalt, og snjórinn marraði undir fótum hans. Hann hélt sig I skugga skál- anna, meðan hann fylgdi þó óljósum leiðbeiningum Adams Lawton. 20 Vikan 52. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.