Vikan


Vikan - 24.12.1981, Page 21

Vikan - 24.12.1981, Page 21
Framhaldssaga Þær dugðu honum. Steinsteypt húsið blasti við honum í tunglsljósinu,. stirð- legt og afkáralegt. Það stóð ögn frá skálaþyrpingunni ásamt litlum, stökum skúr. Hann varð að fara yfir opið svæði til að nálgast bygginguna. Stærðar loft- netsmastur gnæfði upp af flötu þakinu, og ljós skein úr nokkrum glugganna, sem voru háir og mjóir. Aðeins einar dyr voru sýnilegar á húsinu, og á steinveggnum við hliðina á dyrunum var áletrað spjald. Gaunt gekk nær, skjálfandi af kuldanum, sem næddi gegnum fötin, og las aðvörunina á spjaldinu: „Óviðkomandi bannaður aðgangur á öllum tímum”. Þetta var endurtekið jafnstórum stöfum á þýsku, frönsku og íslensku. Ekki vantaði gestrisnina. Gaunt tók í hurðarhúninn og komst að raun um, að dymar voru læstar. Hann yppti öxlum og hélt áfram könnunarleiðangri sínum í kringum húsið án þess að komast að nokkru markverðu. Innan úr húsinu hárust veikir ómar af tónlist. Nú barst honum nýtt hljóð til eyrna, drunurnar í jeppanum. Gaunt þrýsti sér upp að veggnum við húshornið, þegar UNDIR FÖLSKU FLAGGI jeppinn ók upp að húsinu með fullum ljósum og nam staðar rétt fyrir utan dyrnar. Aðeins einn maður var i bílnum, hann vatt sér út, gekk að dyrunum og barði hnefanum á hurðina. Dyrnar opnuðust. 1 ljósinu, sem barst út um dyrnar, bar Gaunt kennsl á bíl- stjórann. Það var Garram górilla, og hans hafði greinilega verið vænst. Þrír menn komu út úr húsinu og klæddu sig í úlpur á hlaupunum. Með aðstoð Garrams tóku þeir að lyfta kössum út úr jeppanum og bera þá inn í húsið. Þeir ræddust við, meðan þeir unnu, en of lágt til að Gaunt heyrði, hvað þeir sögðu. Einn mannanna hló. í sama bili rann einn kassinn til — og hláturinn breyttist í óttablandið varnaðaróp, þegar kassa- brúnin skall við jörðu Mennirnir stóðu sem frosnir stundarkorn, svo hló sami maður aftur, í þetta sinn auðheyrilega taugaóstyrkur, og þeir tóku aftur til við verk sitt. Þegar aðeins einn kassi var eftir i jepp- anum, komst Gaunt að þeirri niður- stöðu, að ekki væri skynsamlegt að staldra lengur við. Hann hraðaði sér aftur sömu leið og hann kom og not- færði sér skugga húsanna. Hann náði til skrifstofuskálans, opnaði dyrnar og gekk inn fyrir. — Þér var sagt að bíða hér, sagði kuldaleg, reiðileg rödd. Franz Renotti stóð í miðju herberginu, skeggjað andlit hans sem grafið í stein, og hangandi hendurnar minntu á ránsfuglsklær. Jarl Hansen stóð við hlið hans, áhyggju- fullurásvip. — Við erum — uh — búnir, sagði flugmaðurinn ungi næstum afsakandi — Enginn vissi, hvaðorðið hafði af þér. — Ég biðst afsökunar. Gaunt glotti við Renotti og gekk yfir að ofninum til að orna sér. — Mér datt i hug aðganga aðeins um, liðka mig, áður en ég træði mér aftur inn í flugvélina. I SESSALON Vandaðir — Fallegir Verð aðeins HUSCOCN BÓLSTRUN SKULACOTU 63 SÍMI 25888 REYKJAVÍK - ICELAND 52. tbl. Vikan 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.