Vikan


Vikan - 24.12.1981, Page 28

Vikan - 24.12.1981, Page 28
nistandi sviöi kossa hennar var það síðasta, sem hann vissi í þessum heimi. Himinninn var myrkur. Skógurinn dekkri. Engir refir léku sér í rjóðrinu. Tunglið kom upp og sendi silfurgeisla sína inn milli trjákrónanna og það glampaði á brostin augu veiðimannsins. Bianca þerraði varir sinar á blóm- blöðum. „Sjö sofandi. sjö vakandi,” sagði Bianca. „Viður að viði. Blóð að blóði. Þið til mín.” Handan við nokkur tré, eyðilegan stig, aldingarð og jarðgöng heyrðist hljóð líkt og eitthvað væri rifið í tvennt. Þá heyrðist sjöfalt fótatak. Nær. Það nálgaðist óðum. Hopp, hopp, hopp, hopp. Hopp, hopp, hopp. Sjö s\ört og kræklótt i aldin- garðinum. Sjö svört og ámáttleg á stígnum milli limgerðisins. Það brast í runnum, greinar brotnuðu. Inn milli trjánna og að rjóðrinu hoppuðu sjö kræklótt, vansköpuð og dvergvaxin tré. Svartur mosinn minnti á skinnfeld, íbenviðar grímur á kolsvartan viðinn. Augu eins og lýsandi rifur, munnur eins og rakur hellisskúti. Fléttu- skegg. Kræklóttir fingur. Glottandi. Krjúpandi. Meðandlitin viðjörðu. „Velkomnir,” sagði Bianca. Galdradrottningin stóð við gluggann. Rúðan minnti á vinblöndu. Hún leit i töfraspegilinn. „Spegill. Hvað sérðu?” „Ég sé þig, frú. Ég sé mann í skóginum. Hann fór á veiðar, en ekki dýraveiðar. Augu hans eru opin, en hann er dáinn. Ég sé alla í landinu. Nema einn.” Galdradrottningin tók fyrir eyrun. Fyrir utan gluggann voru ekki lengur stýfðu kræklóttu trén sjö. „Bianca,” sagði drottningin. Það var dregið fyrir gluggana og enga ljósskímu lagði út. Ljósið logaði i grunnri skál. Það var fölt eins og þroskað korn. Það hvíldi á fjórum sverðum, sem bentu í austur og vestur, sem bentu i norður og suður. Fjórir vindar geisuðu í herberginu og feyktu upp silfurgráu dufti tímans. Hendur galdradrottningarinnar bærðust í loftinu líkt og laufblað á vatni og hún tónaði með skraufþurrum vörum: „Pater omnipotens, mitere digneris sanctum Angelum tuum de Infernis." Ljósið fölnaði og blossaði upp aftur. Rautt sem blóð Þama milli sverðhjaltanna fjögurra stóð engillinn Lucefiel, gullinn og fagur, andlit í skugga, gylltir vængirnir þandir og Ijómandi „Ég veit hvers þú óskar, fyrst þú ákallaðir mig. Þetta er tilgangslaus ósk. Þú biður um þjáningar.” „Þú talar um þjáningar, Lucefiel lávarður, sem þekkir þjáninguna allra best. Verri þjáningu en nagla í fótum og úlnliðum. Verri en þyrnikórónu, bitran bikar og sverðstungu í siðu. Ég kalla þig ekki til illverka, því að ég þekki þig, sonur Guðs, bróðir Sonarins.” „Þú þekkir mig. Ég skal veita þér ósk þina.” Og Lucefiel (sem sumir nefna Satan, Rex Mundi, en aðrir kalla vinstri hönd guðs, sem óheillaverkin vinnur) þreif eldingu af himnum og varpaði henni til galdradrottningarinnar. Eldingin lenti í hjarta hennar. Hún féll til jarðar. Ljósið féll í gullin augu engilsins, en þau voru ógnvekjandi og þó ljómandi af samhygð um leið og sverðin brustu og hann hvarf. Galdradrottningin skjögraði upp af gólfinu. Hún var ekki lengur fogúr, heldur visin gömul norn. Lengst inni í hjarta skógarins skein sólin ekki einu sinni um hádegið. Blómin uxu í grasinu, en þau voru litlaus. Yfir þeim var dimmgrænt laufþak, en þar flögruðu hvit fiðrildi og mölflugur í grænleitri skímunni. Trjábolirnir voru sléttir og slímugir eins og stilkur sjávarjurtar. Leðurblökur flögruðu um að degi til og fuglarnir héldu, að þeir væru leðurblökur. Þarna var gröf vaxin mosa. Beinin lágu á víð og dreif við hana, ultu að rótum kræklóttu dvergtrjánna sjö. Þau líktust trjám. Stundum hreyfðust þau úr stað. Stundum glitraði á auga eða tönn í skugganum. Bianca sat við leiðið og kembdi hár sitt. Einhver bærði á sér í rökkrinu. Trénsjö litu við. Kerlingarhró kom út úr skóginum. Hún var með herðakistil og öll kreppt, höfuðið gnæfði fram milli herðanna, visið og nær hárlaust eins og haus á gammi. „Þá erum við komin,” sagði nornin með hrægammsröddu. Hún kom nær og lét fallast á hnén og laut höfði uns andlit hennar nam við svörðinn og litlaus blómin. Bianca sat kyrr og starði á hana. Nornin rétti úr sér. Tennur hennar voru dökkgular geiflur. „Ég færi þér hollustueiða nornanna og þrjár gjafir,” sagði nornin. „Hvers vegna gerirðu það?” „Þú ert fljót að hugsa, þó að þú sért aðeins fjórtán vetra. Hvers vegna? Vegna þess að við óttumst þig. Ég á að friöþægja þér með gjöfum.” Bianca hló. „Sýndu mér þær.” Nornin rétti út höndina og úr lausu lofti greip hún silkiband, sem var fléttað með mannshári. „Hér er mittisband, sem á að verja þig gegn brellum prestanna, gegn krossum og kaleikum og hinu bölvaða vígða vatni. í það er fléttað lokkum hreinnar meyjar, lokkum konu, sem ekki var betri en henni bar að vera, og hári látinnar konu, og hér—” nú hélt hún á greiðu I hendinni, blálakkaðri yfir grænt lakk —er greiða frá hafdjúpinu, greiða hafmeyjar, til aö töfra og undir- oka aðra. Greiddu hár þitt með henni og hafilmurinn fyllir vit mannanna og sjávarhljóðið eyru þeirra, flóð og fjara munu fjötra þá. Að síðustu,” bætti nomin við, „færðu tákn illskunnar, blóðrauðan ávöxt Evu, eldrautt epli. Bíttu í það og þú hefur bragðað á aldini Skilningstrés góðs og ills, sem höggormurinn lofaði svo mjög.” Aftur rétti hún fram höndina, sem nú hélt á mittislinda, greiðu og epli. Bianca leit á stýfðu trén sjö. „Mér falla gjafirnar vel, en ég treysti henni ekki.” Svipbrigðalausar grímur litu á hana. Augun glitruðu. Það glamraði i klónum. „Samt skaltu hnýta mittislindann um mitti mitt,” sagði Bianca, „og greiða hár mitt.” Nornin hlýddi og brosti heimskulega. Hún vaggaði til Biöncu eins og frosk- padda. Hún batt lindann um mitti hennar. Hún greiddi hrafnsvart hárið. Allt neistaði. Hvítir neistar frá mittis- bandinu, eiturgrænir frá greiðunni. „Bragðaðu nú á eplinu, norn.” „Það verður stolt mitt,” sagði nornin, „að segja systrum mínum, að við höfum deilt eplinu saman.” Og nornin beit I eplið, smjattaði og tuggði, gleypti og sleikti út um. Þá tók Bianca eplið og beit í það. Bianca veinaði — henni svelgdist á. Hún spratt á fætur. Hárið flögraði um hana eins og stormaský. Andlit hennar varð blátt, steingrátt, hvítt aftur. Hún hvildi á litlausum blómunum, hreyfðist hvorki né andaði. Dvergtrén sjö veifuðu rótunum og hristu mosavaxin höfuðin, en til einskis. Þau gátu ekki hoppað án Biöncu. Þau teygðu fram klærnar og rifu og tættu í hárlufsur nomarinnar og skikkju hennar. Hún flýði frá þeim. Hún flýði inn i skógarrjóðrið, sem var uppljómað af 'Oskunx öllum. samxnnnumönnum. oc\ ö&rum landsmötinum cjleöilecjrajóla* árs oq friöar. ^ SAMBAND (SLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA 28 Vikan 52. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.